Norður-Kórea heldur áfram að ögra með eldflaugaskotum

Banda­ríkin segjast tilbúin að grípa til frumkvæðis­hernaðar ef Kínverjar sýni ekki klærnar.

Kim Jong-un ásamt herforingjum.
Kim Jong-un ásamt her­for­ingjum. Mynd: EPA

Eldflauga­skot Norður-Kóreu halda áfram að ögra Japan, Suður-Kóreu og Banda­ríkjunum. Í gærkvöldi lentu eldflaugar í Japans­hafi sem skotið var frá hafnar­borginni Sinpo.

Samkvæmt tilkynningu frá varnarmála­ráðuneyti Suður-Kóreu þá liggur ekki fyrir hvernig skeytum var skotið á loft, en á undan­förnum mánuðum hefur tilrauna­skotum Norður-Kóreu fjölgað jafnt og þétt. Leiðtogi landsins, Kim Jong-Un, hefur átt í hótunum við Banda­ríkin, Suður-Kóreu og Japan og lætur sér fátt um finnast þó eldflauga- og kjarnorku­tilraunir Norður-Kóreu séu fordæmdar.

Framundan er fundur Donald Trump Band­ríkja­forseta og Xi Jinping forseta Kína, og er talið öruggt að aðal­umræðuefni fundarins verði ógnin sem stafar frá Norður-Kóreu.

Fundurinn fer fram á setri Trumps í Flórída, Mara-a-Lago.

Trump er búinn að lýs því yfir að Banda­ríkin muni grípa til aðgerða gegn Norður-Kóreu að eigin frumkvæði, ef Kínverjar grípi ekki í taumana og stöðvi Norður-Kóreumenn í kjarnorku­tilraunum sína. Kínverjar verði að sýna skýrt að þeir samþykki ekki framferði Norður-Kóreu, annars muni Banda­ríkin taka málin í sínar hendur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár