Lögreglan segist ekki hafa farið fram á að myndatökur yrðu stöðvaðar

Enginn vill kannast við að hafa tekið ákvörðun um að hindra störf blaða­manna Ríkis­útvarpsins við Kefla­víkur­flugvöll þegar fimmtán umsækjendur um alþjóð­lega vernd voru fluttir úr landi af lögreglu. Starfs­menn Isavia segja boðin hafa komið frá lögreglu, sem kannast ekki við það.

Á leiðinni
Á leið­inni Eitt af því sem sér­stak­lega hefur sætt gagn­rýni við aðgerðir lög­regl­unnar er með­höndlun lög­reglu­manna á fötl­uðum manni. Þessi mynd var tekin þegar flytja átti fólkið á Kefla­vík­ur­flug­völl. Mynd: Sema Erla

„Það var aldrei ætlun aðila að hefta störf fjölmiðla með nokkrum hætti,“ segir í sameiginlegri yfir­lýsingu ríkis­lögreglu­stjóra og Isavia, sem send var fjöl­miðlum að loknum sameiginlegum fundi fulltrúum þessara aðila. „Við yfirferð á framkvæmd aðgerðarinnar kom hins vegar í ljós að tilmæli voru ekki nægilega skýr og harma báðir aðilar að svo hafi verið,“ segir í yfir­lýsingunni. 

Atvikið átti sér stað þegar lögreglu­menn á vegum embættis ríkis­lögreglu­stjóra fluttu fimmtán hælis­leitendur úr landi að beiðni Útlendinga­stofnunar. Fólkið var handtekið, safnað saman í rútu í Hafnar­firði, ekið til Kefla­víkur þar sem flogið var með leigu­flugvél til Grikk­lands, þar sem það var skilið eftir. Málið hefur vakið hörð viðbrögð og gagnrýni og hefur umboðs­maður Alþingis beint erindi til bæði lögreglu og Útlendinga­stofnunar vegna þessa. 

Ekki er deilt um að lögregla hafi haft stjórn á framkvæmd aðgerð­anna en lögregla þvertekur fyrir að hafa gefið fyrir­mælin um að stöðva mynda­tökuna. Hins …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    "Ekki benda á mig, segir varðstjórinn.
    Þetta kvöld var ég að æfa lögreglukórinn......"
    0
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Hver fyrirskipaði þessa fasistaaðgerð? Er ómögulegt að fá það á hreint?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár