Isavia segir að lögreglan hafi fyrirskipað að myndatökur fjölmiðla yrðu stöðvaðar

Upplýsinga­fulltrúi Isavia segir að lögreglan hafi beðið um að starfs­menn fyrir­tækisins myndu hindra myndatöku RÚV af vettvangi þegar fimmtán umsækjendum um alþjóð­lega vernd var flogið til Grikk­lands. „Isavia harmar að það hafi gerst í nótt og biðst afsökunar á því,“ segir í yfir­lýsingunni.

Frá aðgerðum
Frá aðgerðum Lög­reglan safn­aði saman fimmtán umsækj­endum um alþjóð­lega vernd á hótel í Hafn­ar­firði í gær, þaðan sem það var svo flutt í rútum til Kefla­vík­ur­flug­vallar þar sem leiguflug­vél á vegum stjórn­valda beið til að fljúga fólk­inu til Grikk­lands. Mynd: Sema Erla

Lögreglan fór fram á það við starfs­fólk Isavia að komið yrði í veg fyrir mynda­tökur fjölmiðla af brott­vísun fimmtán einstaklinga af landinu í nótt. Þetta kemur fram í yfir­lýsingu Isavia þar sem beðist er afsökunar á hátta­laginu. „Að mati Isavia er það ekki hlutverk öryggis­gæslu flug­vallarins að hindra störf fjölmiðla. Isavia harmar að það hafi gerst í nótt og biðst afsökunar á því. Isavia mun fara yfir þessa framkvæmd með lögreglu,“ segir í yfir­lýsingu frá upplýsinga­fulltrúa fyrir­tækisins.

RÚV greindi frá því í morgun að starfs­fólk Isavia hafi komið fyrir bílum sem búnir voru flóð­ljósum gegnt blaða­mönnum miðilsins til að koma í veg fyrir að hægt væri að mynda aðgerðir lögreglunnar. Þetta var gert að beiðni lögreglunnar.

„Þegar aðgerðin stóð yfir fylgdi starfs­fólk öryggis­gæslunnar fyrir­mælum lögreglu. Meðal þess sem lögregla fór fram á var að komið yrði í veg fyrir mynda­tökur af lögreglu­aðgerðinni. Það er ekki hlutverk s …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HMH
    Hildur María Hansdóttir skrifaði
    vanhæf ríkisstjón
    1
  • RS
    Ragnar Sigurðsson skrifaði
    Mér finnst með eindæmum að þetta skuli ekki vera aðalfrétt Stundarinnar. Hér eru fasískar aðgerðir yfirvalda gegn varnarlausu fólki og blaðamönnum leyfðar. Hef á tilfinningunni að sumir stjórnmála- og embættismenn vilji vera í friði fyrir umfjöllun almennings og fjölmiðla. Ég vil vita hvaða yfirmenn Isavia leyfðu aðförina gegn fjölmiðlafólkinu og ég vil vita hver er ábyrgur fyrir skepnuskapnum gegn flóttafólkinu. Stundin: Ég vil nöfn!!
    2
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Skammarlegt!
    1
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ég skammast mín fyrir að vera íslendingur. Að þurfa að teljast samlandi fólks sem vill fsb væða löggæslu og dómsmál á Íslandi. Hvernig líður þeim sem voru látnir vinna þessi verk, eru þeir sáttir eða er kannski biturt að vera notaður sem SA sveit. Nú þurfa margir að horfa í spegil og gera upp við sig. Ég er sjálfur smeykur, það vekur ugg að sjá landið þróast með hverju árinu nær fasisma.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár