Kvenréttindafélagið krefst afsagnar þingmannanna

Þingmenn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins brutu gegn siða­reglum Alþingis, að mati Kven­rétt­inda­fé­lags Íslands.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Anna Kolbrún Árnadóttir
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Anna Kolbrún Árna­dóttir

Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands krefst taf­ar­lausrar afsagnar þing­mann­anna sex sem náð­ust á upp­töku á Klaustri bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

„Í sam­tali þing­mann­anna kom fram djúp kven­fyr­ir­litn­ing, fatlað og hinsegin fólk var smánað og nið­ur­lægt og kyn­þátta­for­dómar afhjúpaðir,“ segir í yfir­lýs­ingu frá stjórn félags­ins. „Þó voru þarna á meðal ein­stak­lingar sem í trún­að­ar­störfum sínum hafa staðið í fylk­ing­ar­brjósti sem kyndil­berar jafn­réttis á lands­vísu og á heims­vísu.“

Í yfir­lýs­ing­unni er bent á að í siða­reglum alþing­is­manna er sagt að þing­menn skuli  „ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með fram­komu sinni“. Auk þess skuli þeir „leggja sig fram um að skapa í störfum sínum heil­brigt starfs­um­hverfi innan þings sem utan og hvar­vetna þar sem þeir sinna störfum sínum þar sem hafnað er hvers konar kyn­ferð­is­legri eða kyn­bund­inni áreitni, ein­elti eða annarri van­virð­andi fram­komu.“

Þá skuli þeir „í öllu hátt­erni sínu sýna Alþingi, stöðu þess og störfum virð­ingu“ og „ekki sýna öðrum þing­mönnum, starfs­mönnum þings­ins eða gestum kyn­ferð­is­lega eða kyn­bundna áreitni, leggja þá í ein­elti eða koma fram við þá á van­virð­andi hátt.“

Kven­rétt­inda­fé­lagið seg­ist ekki líða að fólk sé smánað með þeim hætti sem heyra má á upp­tök­unni. „Ljóst er að þing­menn­irnir sex hafa brotið gegn öllu þessu og við blasir að mál­efni þeirra hljóta að fara í þann far­veg sem kveðið er á um í siða­regl­unum. Stjórn Kven­rétt­inda­fé­lags­ins krefst þess að þing­menn­irnir axli ábyrgð, horf­ist í augu við að þeir eru rúnir trausti og segi taf­ar­laust af sér þing­mennsku.“

Yfirlýsing Stjórnar Kvenréttindafélags Íslands í heild sinni

Á morgun fögnum við 100 ára full­veldi þjóð­ar­innar. Í vik­unni voru birtar glefsur úr upp­tökum á sam­tali hóps alþing­is­manna sem staddir voru á veit­inga­stað. Upp­tök­urnar opin­bera fyr­ir­litn­ingu og for­dóma sem fylgt hafa full­veld­is­sögu þjóð­ar­innar, þrátt fyrir bar­áttu ótal kvenna og karla fyrir betra sam­fé­lagi.

Í sam­tali þing­mann­anna kom fram djúp kven­fyr­ir­litn­ing, fatlað og hinsegin fólk var smánað og nið­ur­lægt og kyn­þátta­for­dómar afhjúpaðir. Þó voru þarna á meðal ein­stak­lingar sem í trún­að­ar­störfum sínum hafa staðið í fylk­ing­ar­brjósti sem kyndil­berar jafn­réttis á lands­vísu og á heims­vísu.

Það er ekki nóg að á Íslandi ríki laga­legt og (næstum því) töl­fræði­legt jafn­rétti sem mælist efst á alþjóð­legum listum. Jafn­rétti felst ekki síst í því að fólk beri virð­ingu hvert fyrir öðru, óháð kyni, kyn­hneigð, fötlun og öðrum þeim breytum sem hafa áhrif á fólk, hvort sem það er í opin­berum störfum eða í einka­líf­inu.

Við búum í sam­fé­lagi sem breyt­ist ört í átt til jafn­réttis. #MeToo bylt­ingin hefur eflt kraft okkar til að takast á við ójafn­rétti á öllum sviðum sam­fé­lags­ins og í kjöl­far hennar hafa öll við­mið um sam­þykkta hegðun færst til. Við líðum ekki lengur að konur, og raunar allt fólk, sé smánað í skjóli valda­mis­munar.

Siða­reglur alþing­is­manna kveða skýrt á um að þing­menn skuli „ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með fram­komu sinni“. Auk þess skulu þeir „leggja sig fram um að skapa í störfum sínum heil­brigt starfs­um­hverfi innan þings sem utan og hvar­vetna þar sem þeir sinna störfum sínum þar sem hafnað er hvers konar kyn­ferð­is­legri eða kyn­bund­inni áreitni, ein­elti eða annarri van­virð­andi fram­komu.“ Þá skulu þeir „í öllu hátt­erni sínu sýna Alþingi, stöðu þess og störfum virð­ingu“ og „ekki sýna öðrum þing­mönnum, starfs­mönnum þings­ins eða gestum kyn­ferð­is­lega eða kyn­bundna áreitni, leggja þá í ein­elti eða koma fram við þá á van­virð­andi hátt.“

Ljóst er að þing­menn­irnir sex hafa brotið gegn öllu þessu og við blasir að mál­efni þeirra hljóta að fara í þann far­veg sem kveðið er á um í siða­regl­unum. Stjórn Kven­rétt­inda­fé­lags­ins krefst þess að þing­menn­irnir axli ábyrgð, horf­ist í augu við að þeir eru rúnir trausti og segi taf­ar­laust af sér þing­mennsku.

Í upp­hafi ann­arar aldar full­veld­is­ins brýnir Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands Alþingi og önnur stjórn­völd, kjós­endur og þjóð­ina alla að kvika ekki frá bar­átt­unni fyrir jafn­ara og sann­gjarn­ara þjóð­fé­lagi þar sem ekki hallar á neinn. Sköpum saman Ísland þar sem jafn­rétti ríkir, fyrir okkur öll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár