Margir einstaklingar, yfirleitt fólk á aldrinum 65 ára og eldra, borga frekar 400 þúsund krónur úr eigin vasa fyrir augnsteinaaðgerð hjá einkareknu augnlæknafyrirtæki í stað þess að bíða eftir að fá sömu aðgerð á kostnað ríkisins. Biðtími eftir slíkri aðgerð á Landspítalanum, eða á einkareknu auglæknastofunni í gegnum Sjúkratryggingar Íslands, er um þrjú ár. Þeir einstaklingar sem ekki eiga 400 þúsund krónur til að borga fyrir augnsteinaaðgerðina sjálfir þurfa hins vegar að bíða í röðinni, jafnvel með skerta sjón sem þó væri hægt að laga með tiltölulega einfaldri aðgerð, þar sem ríkið greiðir allan kostnaðinn.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir