Minni matarsóun en markmiðum ekki náð

Matarsóun Norðmanna dróst saman um 10 prósent á árunum 2015 til 2020. Í því fellst vissulega árangur en hann er engu að síður langt frá þeim markmiðum sem sett hafa verið. Umhverfis­stofnun Noregs segir enn skorta yfirsýn í mála­flokknum.

Um þriðjungi allra matvæla sem framleidd eru í heiminum er hent.
Um þriðj­ungi allra mat­væla sem fram­leidd eru í heim­inum er hent. Mynd: Wiki Commons

Um þriðjungi allra matvæla sem framleidd eru í heiminum er hent. Um 10 prósent af losun manna á gróðurhúsa­loft­tegundum tengist þessari miklu matarsóun. Á þessum stað­reyndum byggir m.a. stefna Sameinuðu þjóðanna um að helminga matarsóun á heimsvísu fyrir árið 2030. Norsk stjórn­völd og matvæla­fyrirtæki ákváðu árið 2017 að stefna að þessu markmiði.

Ný skýrsla um matarsóun í Noregi árið 2020 sýnir að þótt að málið þokist í rétta átt virðist leiðin að því að uppfylla markmiðið vera torfær. Fyrsta skrefið, að draga úr matarsóun um 15 prósent á fimm ára tímabili (2015-2020) náðist ekki. Á þessum árum tókst þó að minnka matarsóun um 10 prósent að meðaltali þótt ákveðnir geirar hafi náð settu marki.

Að auki kemur fram í skýrslunni að greining á matarsóun og samdrætti sé ófull­komin. Þannig skilgreini ákveðnir geirar og fyrirtæki matarsóun með ólíkum hætti svo dæmi sé tekið.

Talið er að 453.650 tonn af mat hafi endað í norskum sorp­tunnum í fyrra. Það jafnast á við að hver Norðmaður hafi hent 84,7 kílóum af mat. Þetta er stór tala en hún er þó um 9,5 prósent lægri en árið 2015, segir í skýrslunni.

Í skýrslunni er farið nánar ofan í hver er að sóa mat. Heimili eru talin hafa hent 261 þúsund tonnum árið 2020, matvæla­fram­leiðendur 86 þúsund tonnum og matvöru­verslanir um 67 þúsund tonnum.

Inn í þessa greiningu vantar hins vegar matvæla­sóun sem verður í norskum land­búnaði. Ekki var byrjað að safna gögnum til að meta sóunina í þeim geira fyrr en á síðasta ári.

Hver Íslendingur hendir 90 kílóum af mat árlega

Nýlegar mælingar á matarsóun á Íslandi benda til þess að hver einstaklingur hendi í kringum 90 kíló af mat árlega. Í hefð­bundinni fjögurra manna vísitölu fjöl­skyldu er því hent 360 kílóum á ári. Það eru nær 7 kíló af mat á viku. Þetta umfang svipar til hinna Evrópu­landanna.

Í aðgerðar­áætlun íslenskra stjórn­valda, sem gefin var út í júní 2020 til að stuðla að samdrætti í losun gróðurhúsa­lofttegunda fram til 2030, er rætt um áhrif matar­sóunar á losun. Þar er lögð áhersla á að draga eigi úr losun frá úrgangi um 59 prósent miðað við árið 2018. Þar sem matvæli eru stór hluti urðaðs úrgangs á Íslandi þá mun minni matarsóun draga úr urðun og tilheyrandi losun. Þess vegna er það hluti af aðgerðum stjórn­valda að draga úr matarsóun samhliða því að bann við að urða lífrænan úrgang og urðunar­skattur verði settur á, segir í aðgerða­áætluninni. Þar kemur ennfremur fram að með aðgerðum sem fela í sér að draga markvisst úr matarsóun minnki losun koltví­oxíðs frá úrgangi um 14 þúsund tonn til árið 2030.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár