Viðvaranir um efnahagsmál á Íslandi

OECD, Efnahags- og framfara­stofnun Evrópu, fagnar hröðum efnahags­bata en varar við stöðunni á Íslandi.

Ísland
Ísland Stendur fram­ar­lega á flestum sviðum, en kunn­ug­leg hættu­merki eru á lofti. Mynd: NASA

Þrátt fyrir að Efnahags- og framfara­stofnun Evrópu fagni góðum árangri Íslands í nýlegri skýrslu um efnahagslíf landsins er varað við nokkrum hættu­merkjum í hagkerfinu.

Íslenska krónan og launa­hækkanir eru farin að grafa undan samkeppnis­hæfni Íslands, traust vantar á vinnu­markaði og gæta þarf að því að vernda óbyggðir Íslands, er meðal þess sem OECD varar við.

Sterk króna lamar nýsköpun

Hátt gengi krónunnar veldur því að laun, og þar með kostnaður við vinnu­framlag, er mun hærri hér á landi en annars staðar, þrátt fyrir að fram­leiðni sé minni en meðal­talið í ríkjum OECD. Íslendingar bæta lága fram­leiðni á hverja vinnu­stund með því að vinna mun fleiri klukku­stundir en samanburðar­þjóðir.

Fram kemur að einn vandinn sé að nýsköpunar­fyrirtæki eigi erfitt vegna styrkingar krónunnar og aukningar launa­kostnaðar, auk þess sem erfitt sé að láta fyrirtæki vaxa í litlu hagkerfi, en vöxtur slíkra fyrir­tækja knýr gjarnan framleiðni­aukningu.

 „Yfir­standandi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár