Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna var í sambandi við sendiherra Rússa

Jeff Sessions hafði í tvígang samband við sendi­herra Rússlands í Banda­ríkjunum í aðdrag­anda forseta­kosninganna.

Jeff Sessions, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna.
Jeff Sessions, dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Jeff Sessions, dómsmála­ráðherra Banda­ríkjanna, var í tvígang í sambandi við sendi­herra Rússlands í Banda­ríkjunum á síðasta ári. Frá þessu var greint á vef Boston Globe í dag, og í kjölfarið á öllum helstu fjöl­miðlum, en áður hafði Sessions greint þingnefnd Banda­ríkjaþings frá því að hann hefði ekki verið í sambandi við Rússa eða embættis­menn á vegum stjórn­valda í Rússlandi, í aðdrag­anda kosninganna sem fóru fram 8. nóvember í fyrra.

Fram kemur að gögn frá starfs­mönnum leyni­þjónustu­stofnanna Banda­ríkjanna sýni að Sessions hafi átt fundi með Sergey Kislyak, sendi­herra, og fór síðari fundurinn fram í september á skrifstou Sessions. Tölvu­árásir rússneskra hakkara voru búnar að eiga sér stað á framboð Hillary Clinton, fram­bjóðanda Demókrata í forseta­kosningunum, og leiddu þær meðal annars til þess að tölvu­póstar Hillary voru birtir opinber­lega.

Fyrri fundur Sessions var í júlí, og voru fundirnir báðir einka­fundir hans með sendi­herranum. Skömmu áður en Barack Obama, fyrr­verandi Bandaríkja­forseti, hætti vísaði hann öllum rússneskum erindrekum úr landi sem tengdust rússneska sendi­ráðinu, þar með talið sendi­herranum.

Dómsmála­ráðuneytið hefur staðfest að fundir hafi átt sér stað, en ekkert óeðlilegt hefði verið rætt á fundunum eða þeir verið hluti af ráða­bruggi milli framboðs Donalds Trumps og Rússa.

New York Times greindi frá því í gær að fólk úr starfs­liði Obama hefði safnað saman gögnum um tengingar aðila úr innsta hring í framboði Donalds Trumps við Rússa, og komið þeim til réttra aðila innan kerfisins. Ástæðan fyrir því að þetta var gert, var meðal annars vegna ótta við það, að gögnum yrði eytt eða ekkert gert með þau.

Greinilegt er að upplýsingar sem lágu að baki þeirri ákvörðun tengjast fundum rússneskra embættis­manna bandarískum þing­mönnum og fleirum. Á meðal þeirra sem átti fundi með Kislyak var Michael Flynn, sem var skipaður aðal­ráðgjafi Banda­ríkjanna í öryggis- og varnar­málum. Þegar upp komst að hann hefði sagt Mike Pence vara­forseta Banda­ríkjanna ósatt um hvort hann hefði rætt við sendi­herra Rússa, og þá sérstak­lega um viðskipta­þvinganir gagnvart Rússum, þá sagði hann af sér.

Rannsókn er nú í gangi á vegum leyni­þjónustunnar CIA og alríkis­lögreglunnar FBI þar sem tengsl Rússa við tölvu­árásir á Banda­ríkin í aðdrag­anda kosninganna eru til skoðunar, og sömuleiðis tengsl Rússa við þingmenn og embættis­menn innan Banda­ríkjanna.

Sessions er sem dómsmála­ráðherra yfirmaður FBI en hann hefur ítrekað sagt, að hann telji ekki þörf á því að hann víki sem ráðherra, á meðan á rannsókn stendur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár