Við hvern hjá OPEC talaði Trump?

Þrátt fyrir tilraunir Bloomberg og Wall Street Journal til að hafa upp á þeim sem Trump sagðist hafa rætt við hjá OPEC, þá hefur ekki fundist út úr því. Trump vill að olíuverð verði lækkað, helst með handafli.

Tilraunir Bloomberg og Wall Street Journal til að fá það staðfest að Donald Trump Bandaríkja­forseti hafi sett sig í samband við OPEC, samtök olíu­framleiðslu­ríkja, til að óska eftir að olíu­verðið verðið lækkað, hafa ekki borið árangur.

Ekkert bendir til þess að Trump hafi sett sig í samband við OPEC formlega til að bera þessa ósk upp, en olíu­verðið hefur að undan­förnu farið hækkandi.

Tunnan af hráolíu hefur farið úr 42 Bandaríkja­dölum í byrjun árs í 65 Bandaríkja­dali nú, og hefur þetta meðal annars leitt til vaxandi verðbólgu­þrýstings í Banda­ríkjunum.

Trump hefur sagt - ekki síst á Twitter síðu sinni - að nauðsynlegt sé að auka fram­leiðslu á olíu, til að auka framboð sem þá myndi leiða til verð­lækkunar. 

En við hvern talaði Trump ef hann hafði ekki formlega samband við OPEC?

Spjótin beinast held að krónprins Sádí-Arabíu, Mohammed Bin Salman, sem Trump hefur átt í góðum samskiptum við, allt frá því hann tók við valda­þráðunum sem forseti í byrjun árs 2017.

Aramco, olíu­fyrirtæki Sádí-Arabíu, er með um 10 prósent markaðs­hlutdeild þegar kemur að olíu­framleiðslu í heiminum, og hagnaðist um 111 milljarða Bandaríkja­dala í fyrra, sem er upphæð sem nemur um 13 þúsund milljörðum króna.

Það er upphæð sem nemur öll virði íbúðar­húsnæðis á höfuð­borgar­svæðinu í fyrra, sé mið tekið af fasteigna­mati.

Sádí-Arabía hefur því mikið um það að segja, hvernig mál þróast á olíu­markaði, og hefur í gegnum árin haft mikla vigt meðal OPEC-ríkja. Olíuríki OPEC eru Alsír, Angóla, Ekvador, Íran, Írak, Katar, Kúveit, Líbía, Nígería, Sameinuðu arabísku fursta­dæmin, Sádí-Arabía og Venesúela, en höfuð­stöðvarnar eru í Vín. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár