„Lítur ekki vel út!“

Upp úr klukkan 13 í dag mun bresta á með vestan­hvelli á Suðurnesjum og höfuð­borgar­svæðinu, segir Einar Svein­björnsson veður­fræðingur. Hann segir að einnig verði „foráttu­hvasst“ á Suður­landi.

Appelsínugul viðvörun er í gildi á mest öllu landinu.
App­el­sínugul við­vörun er í gildi á mest öllu land­inu. Mynd: Veðurstofan

Veður­viðvaranir dagsins hafa færst af gulu yfir á appelsínu­gult eftir að nýjustu spár, sem bárust í snemma í morgun, hafa versnað. „Það viðrar illa til ferðalaga og er fólk hvatt til að huga að lausa­munum,“ segja almanna­varnir í færslu á Facebook.

Einar Sveinbjörnsson veður­fræðingur segir lægðina verða bæði dýpri og krappari en spáð hafði verið. „Lítur ekki vel út!“ Lægðar­miðjan fari yfir Reykja­nesskaga í höfuð­borgar­svæðið um hádegi. „Í kjölfar miðjunnar skellur á okkur af fullum þunga V-strengur (e. Sting Jet) hér suðvestanlands. Það versta stendur aðeins í stuttu stund, í rúma klukku­stund eða svo,“ skrifar Einar á Facebook í morgun. Hann segir að einnig verði „foráttu­hvasst“ á Suður­landi, einkum við sjóinn og eins suðaustan- og austanlands með suðvestanáttinni.

Vega­gerðin var með eftir­farandi viðvörun kl. 9 í morgun:

Brestur á með vestan hvelli á Suðurnesjum og höfuð­borgar­svæðinu upp úr kl. 13. Stendur stutt en varasamt verður að vera á ferðinni. Foráttu­hvasst verður frá Landeyjum og austur um á Höfn frá kl. 14 til 19 með SV-átt og áberandi byljótt þar fyrir austan s.s. við Hvalnes, allt austur á Reyðar­fjörð.

Hvað er appelsínugul viðvörun?

Á vef Veðurstofunar er að finna eftir­farandi skilgreiningu á appelsínu­gula litnum í viðvörunar­kerfi stofnunarinnar: Miðlungs eða miklar líkur eru á veðri sem valdið getur miklum samfélags­legum áhrifum. Veðrið getur valdið miklum samfélags­legum áhrifum. Veðrið getur valdið tjóni og/eða slysum og ógnar mögulega lífi ef aðgát er ekki höfð. Skerðing á samgöngum og innviðum/þjónustu tíma­bundin/stað­bundin. Veður sem þessi verða nokkrum sinnum á ári.

Sjá nánar viðvaranir Veður­stofunnar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár