Vill að ráðherra hætti að veita uppreist æru meðan lögin eru endurskoðuð

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Vinstri grænna, vonar að Alþingi sameinist um að veita ráðherra umboð til að hætta afgreiðslu umsókna um uppreist æru meðan laga­umhverfinu er breytt.

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Vinstri grænna og fulltrúi flokksins í allsherjar- og menntamála­nefnd Alþingis, ætlar að leggja til að Alþingi veiti dómsmála­ráðherra skýra laga­heimild til að hætta að veita mönnum uppreist æru meðan unnið er að breytingum á laga­umhverfinu um slíkar stjórnsýslu­athafnir.

„Það virðast allir sammála um að kerfið í kringum uppreist æru sé ónýtt og kalli á umfangs­miklar laga­breytingar. Við þær aðstæður er eðlilegt að ráðuneytið afgreiði héðan í frá ekki umsóknir um uppreist æru, en ráðherrann virtist á fundinum ekki telja sig hafa heimild til þess,“ segir Andrés Ingi í samtali við Stundina.

Á opnum fundi allsherjar- og menntamála­nefndar í gær neitaði ráðherra að svara spurningu Andrésar um hvort ráðuneytið hygðist setja ferli við veitingu uppreist æru „í frost“ meðan vinna við endur­skoðun laga­ákvæða stæði yfir. 

Andrés segir mikilvægt að ráðherra fái skýra laga­heimild til þess. „Ég hef sett af stað vinnu við að semja frumvarp sem frysti kerfið á meðan unnið er að lagfæringum. Þegar málið er tilbúið mun ég bjóða öllum þing­mönnum sem áhuga hafa að flytja það með mér og vona að við getum klárað það hratt og örugglega,“ segir hann.

Fyrir rúmum tveimur vikum birti dómsmála­ráðneytið yfirlit um beiðnir um uppreist æru. Þar kemur fram að umsókn barna­níðings, sem hlaut 18 mánaða dóm, liggur fyrir í ráðuneytinu en ákvörðun hefur ekki verið tekin í málinu.

Mikil reiði blossaði upp í vor eftir að greint var frá því að kynferðis­brota­maðurinn Robert Downey hefði fengið uppreist æru og öðlast lögmanns­réttindi á ný. Robert var dæmdur í þriggja ára fangelsi árið 2008 fyrir að brjóta gegn fjórum stúlkum, einni sem var fjórtán ára þegar brotin voru framin og þremur sem voru fimmtán ára. Hann komst í samband við stúlkurnar með blekkingum og tældi þær til kynmaka með peninga­gjöfum. Árið 2010 var hann dæmdur á ný fyrir brot gegn fimmtu stúlkunni án þess að honum væri gerð refsing í því máli.

Ólöf Nordal, þáverandi innan­ríkis­ráðherra, lagði til við forseta Íslands þann 14. september 2016 að Robert fengi uppreist æru og óflekkað mannorð en bréfið var undir­ritað af forseta tveimur dögum síðar og öðlaðist þá formlegt gildi. Stundin greindi svo frá því í síðustu viku að sama dag hefði maður, sem dæmdur var árið 2004 fyrir að nauðga stjúpdóttur sinni nær daglega frá því hún var um 5 ára gömul þar til hún var tæplega 18 ára, fengið uppreist æru.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár