Bandaríkin þrengja að valdaklíku Pútíns

Fjármála­ráðuneyti Banda­ríkjanna ákvað að beita valda­klíku Pútíns viðskipta­þvingunum.

Banda­rísk stjórn­völd hafa samþykkt viðskipta­bann gegn sjö rúss­nesk­um auðmönn­um og 17 hátt sett­um rúss­nesk­um emb­ætt­is­mönn­um. Í tilkynningu frá Steve Mnuchin, fjármála­ráðherra Banda­ríkjanna, segir að aðgerðirnar beinist að þessum hópi, þar sem hann sé innarlega í kjarna spilltrar valda­klíku í Rússlandi.

Segir í tilkynningunni frá Mnuchin að aðgerðirnar séu meðal annars hluti af aðgerðum vegna afskipta Rússa af kosningunum í Banda­ríkjunum 2016, sem Donald Trump vann og tók síðan við sem forseti Banda­ríkjanna, í janúar 2017.

Sjálfur hefur Trump marg ítrekað að ekkert óeðlilegt hafi átt sér stað, og Rússar hefi ekki haft nein afskipti af kosninga­baráttunni. Hann hefur sagt að rann­sóknir á tengslum Rússa við fólk innan Banda­ríkjanna, meðal annars í framboði Trumps, séu hluti af mestu norna­veiðum í sögu Banda­ríkjanna.

Að þessu leyti er tilkynningin frá fjármála­ráðuneyti Banda­ríkjanna að miklu leyti á skjön við málflutning forsetans.

Aðgerðirnar eru einnig hluti af víðtækum refsiaðgerðum gegn Rússum, vegna nethernaðar Rússa, víða í heiminum.

Tólf fyr­ir­tæki í eigu auðmann­anna, rúss­nesk­ur banki og út­flytj­end­ur rúss­neskra vopna eru meðal þeirra sem viðskipta­bannið tek­ur til, að því er segir í tilkynningunni, sem breska ríkis­útvarpið BBC greinir frá.

Meðal þeirra sem viðskipta­banið nær til - og frysting á eignum í Banda­ríkjunum einnig - eru Oleg Der­ipaska, einn kunn­ingja Vla­dimír Pút­ins Rúss­lands­for­seta og Paul Mana­forts kosn­inga­stjóra Trumps. Deripaska hefur auðgast verulega á álframleiðslu og viðskiptum í áliðnaði, en eignir hans hlaupa á milljörðum Bandaríkja­dala.

Su­leim­an Kerimov og fjöl­skylda hans eru einnig á lista þeirra sem viðskipta­banið nær til. Kerimov á eina stærstu gull­fram­leiðslu Rúss­lands.

Al­ex­and­er Tors­hin, sem er innarlega í pólitískum hring Pútíns, einnig á listanum en hann er talinn hafa fjár­magnað verulega Samtök byssu­eigenda í Banda­ríkjunum (NRA), í gegnum skúffu­félög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár