Framkvæmdastjórn Evrópuráðsþingsins hafnar öfga-hægri flokki

Rósa Björk Brynjólfs­dóttir og Þórhildur Sunna Ævars­dóttir leiddu andstöðu við að viðurkenna stjórn­málahóp sem gefur sig út fyrir að vera á móti innflytj­endum og hælis­leitendum.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.
Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir. Mynd: Samsett mynd

Framkvæmda­stjórn Evrópu­ráðs­þingsins hafnaði á fundi sínum í París í dag að nýr stjórnmála­hópur væri viðurkenndur. Rósa Björk Brynjólfs­dóttir, þingmaður Vinstri grænna, og Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­formaður Pírata, leiddu andstöðuna við að viðurkenna stjórnmála­hópinn og segjast afar ánægðar með niður­stöðuna. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfir­lýsingu frá Rósu Björk og Þórhildi Sunnu.

Í yfir­lýsingunni segir að umsókn stjórnmála­hópsins hafi verið afar umdeild enda komi meðlimir hennar úr stjórn­málaflokkum sem séu öfga-hægri flokkar, þjóðernis­sinnar og gefi sig út fyrir að vera á móti innflytjendum og hælis­leitendum.

Rósa Björk segir að þetta sýni að hægt sé að sporna við haturs­orðræðu og kynþátta­hatri í stjórn­málum ef vilji sé fyrir hendi. Þetta sé frábær niður­staða á tímum þegar vegið sé stöðugt að mann­réttindum.

Þrotlaus vinna að standa vörð um gildi Evrópuráðsins

Þórhildur Sunna bætir því við að hún og Rósa hafi lagt þrotlausa vinnu í það að standa vörð um gildi Evrópu­ráðsins í þessu máli og að sú vinna hafi nú skilað þessum mikilvæga árangri í barátt­unni við haturs­orðræðu. „Þetta eru þingmenn öfga-hægri flokka, eins og Alternativ für Deutschland og Lega Nord sem bera enga virðingu fyrir gildum Evrópu­ráðsins. Við gátum ekki samþykkt viðurkenningu þeirra og nú er ljóst að framkvæmda­stjórnin gerir það ekki heldur. Því ber að fagna,“ segir hún.

Niðurstaðan ekki auðveld

Rósa Björk skrifar á Facebook-síðu sína í dag að þau í framkvæmda­stjórn Evrópu­ráðs­þingsins hefðu hafnað því að ný pólitísk grúbba væri stofnuð. „Grúbban samanstendur af stjórn­málamönnum úr öfga-hægri flokkum, þjóðernis­sinnuðum, anti-innflytjenda mönnum.“ Hún segir enn fremur að þessi niður­staða hafi ekki verið auðveld og hafi þurft marga fundi til að komast að niður­stöðu.

Hún segist vera mjög stolt af Þórhildi Sunnu og sér og hvernig þær tvær hafi minnt marga á grunn­gildi Evrópu­ráðs­þingsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár