Stjórnarliðar styðja tillögu Sigríðar og benda á að ráðherra hafi verið ósammála dómnefndinni

Meirihluti stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis styður tillögu dómsmála­ráðherra um að víkja frá hæfnis­mati nefndar við skipun dómara í Landsrétt. „Eigum við að leyfa Sjálfstæðis­flokknum og Viðreisn að stela dóms­valdinu?“ spyr stjórnar­andstöðu­þingmaður.

Meirihluti stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis styður tillögu dómsmála­ráðherra þess efnis að vikið verði frá mati nefndar um mat á umsækjendum um dómara­störf við skipun í Landsrétt.

Tillaga ráðherra felur í sér að fjórir umsækjendur af þeim fimmtán sem dómnefndin taldi hæfasta verða ekki skipaðir dómarar en aðrir fjórir umsækjendur verða skipaðir í þeirra stað.

Á meðal þeirra sem dómsmála­ráðherra og meirihluti stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar vilja skipa þvert á mat dómnefndarinnar eru Jón Finnbjörnsson og Arnfríður Einars­dóttir.

Jón Finnbjörnsson lenti í 30. sæti á lista dómnefndarinnar, en hann er eigin­maður Erlu S. Árna­dóttur sem var vinnu­veitandi ráðherra til margra ára hjá lögmanns­stofunni Lex. Arnfríður Einars­dóttir er eiginkona Brynjars Níels­sonar, þingmanns Sjálfstæðis­flokksins. Brynjar er formaður stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar og vinnur þannig náið með meirihluta nefndarinnar.

„Meiri hlutinn tekur fram að hann hefur fjallað um þær forsendur sem liggja að baki tillögu ráðherra um tilnefningar einstakra dómara í Landsrétt, þ.m.t. um að breyta út frá tillögu dómnefndar, og fellst á þær,“ segir í nefndar­áliti meirihluta stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar sem birtist á vef Alþingis nú á ellefta tímanum. Fulltrúar stjórnar­meirihlutans í nefndinni eru sjálfstæðis­mennirnir Birg­ir Ármanns­son, Njáll Trausti Friðberts­son, Vil­hjálm­ur Árna­son og Hildur Sverris­dóttir og Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar. Sagði Brynjar Níelsson sig frá málinu vegna fyrr­nefndra tengsla. 

Í nefndar­álitinu kemur fram að dómsmála­ráðherra telji enga formgalla hafa verið á meðferð dómnefndar við mat á umsækjendum. Eftir að dómnefnd skilaði umsögn sinni til ráðherra hafi ráðherra sem veitingar­valds­hafi þurft að meta tillögurnar sjálfstætt. „Fram kom að ráðherra hefði hins vegar verið að hluta til ósammála vægi dómnefndarinnar á einstaka mats­þáttum, m.a. varðandi þætti er lúta að dómara­reynslu, þ.e. stjórn þinghalds, samningu og ritun dóma og almenna starfs­hæfni,“ segir í álitinu. „Bendir ráðherra á að með því að gera ekki tilraun til þess að leggja tvo fyrr­nefndu þættina til grund­vallar heildar­mati verði ekki annað ráðið en að reynsla dómara hafi ekki fengið það vægi sem tilefni er til og gert er ráð fyrir í reglum nr. 620/2010 um störf dómnefndar sem fjallar um hæfni umsækjenda um dómara­embætti.“ 

„Eigum við að leyfa Sjálfstæðis­flokknum og Viðreisn að stela dóms­valdinu?“ 

Mikil reiði hefur blossað upp í netheimum og meðal þingmanna stjórnar­andstöðunnar vegna málsins. „Hvað er til ráða? Á að leyfa ráðherra að skapa vantraust gagnvart heilu nýju dómstigi með því að frekjast fram með órökstudda hentisemis­skoðun sína? Eigum við að leyfa Sjálfstæðis­flokknum og Viðreisn að stela dóms­valdinu?“ skrifar Smári McCarthy, þingmaður Pírata, á Facebook en Píratar hafa hótað að leggja fram vantrausts­tillögu gegn dómsmála­ráðherra. Þá skrifar Oddný Harðar­dóttir, þingkona Samfylkingarinnar: „Tillaga dómsmála­ráðherra að skipan dómara við nýjan Landsrétt er hneyksli. Breytingar hennar á tillögu dómnefndar um hæfustu umsækjendur er órökstudd og virðist byggð á huglægu mati. Framganga ráðherrans grefur undan trausti og er fúsk leyfi ég mér að segja. En stjórnar­liðar ætla styðja fúskið.“

Í áliti meirihluta stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis kemur fram að fyrir nefndinni hafi verið skiptar skoðanir um hvort ráðherra eigi að vera bundinn af umsögn dómnefnda. „Með því mundi dómnefnd í raun ráða hverjir verði skipaðir dómarar. Ef ráðherra væri undan­tekningar­laust skylt að fara eftir áliti dómnefndar væri ábyrgðin á skipun dómara hjá stjórn­valdi sem er ekki ábyrgt gagnvart þinginu en slík tilhögun hefur sums staðar þótt orka tvímælis,“ segir í álitinu. „Meiri hlutinn tekur fram að með þeirri tilhögun sem samþykkt var með lögum á Alþingi um að ráðherra sé óheimilt að skipa í dómara­embætti mann sem dómefnd hefur ekki talið hæfastan meðal umsækjenda, nema Alþingi samþykki tillögu ráðherra um heimild til að skipa í embættið annan nafn­greindan umsækjenda sem fullnægir að mati dómnefndar skilyrðum laganna, er tekin skýr afstaða til þess að veitingar­valdið er hjá ráðherra en ekki hjá dómnefndinni. Til þess að tillaga ráðherra sem víkur frá niður­stöðu dómnefndar öðlist gildi þarf hún engu síður aðkomu annars handhafa ríkis­valdsins, í þessu tilviki löggjafar­samkomunnar.“

Fulltrúar meirihlutans í stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd fullyrða að Sigríður Á. Andersen dómsmála­ráðherra hafi litið til jafnréttis­sjónarmiða þegar hún setti tillögu sína fram. „Meiri hlutinn tekur fram að nái tillaga ráðherra fram að ganga hefur ekki áður verið sett á laggirnar jafn mikilvægt nýtt embætti með svo jöfnum kynja­hlutföllum sem hér um ræðir.“ Eins og Stundin hefur áður greint frá hefur Sigríður lýst sig mótfallna því að litið sé sérstak­lega til kynja­sjónarmiða þegar skipað er í dómara­stöður. Þann 7. febrúar síðastliðinn sagði hún að ekki yrðu gerðar ráðstafanir til að gefa slíkum sjónar­miðum vægi við hæfnismat og skipan í embætti dómara við Landsrétt. „Tel ég ekki til velfarnaðar fallið almennt að hugsa skipan í jafn mikilvæg embætti og dómara­störf eru með þeim hætti sem fyrir­spyrjandi er að kalla eftir að mögulega sé gert, ef ég skil hann rétt, að litið sé sérstak­lega til kynja­sjónarmiða,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár