Macron: Það er engin pláneta B

Frakk­lands­forseti ávarpaði Banda­ríkjaþing og talaði fyrir nauðsyn þess að andmæla uppgangi þjóðernis­hyggju og mynda samstöðu í barátt­unni gegn hlýnun jarðar.

Emmanuel Macron, Frakk­lands­forseti, ávarpaði Banda­ríkjaþing með ræðu í dag, og eru frétta­skýrendur flestir sammála um, að ræðan hafi verið nær samfelld gagnrýni á opinbera stefnu Donalds Trumps Bandaríkja­forseta, um að setja bandaríska hagsmuni alltaf í fyrsta sæti (American First).

Macron gagnrýndi uppgang þjóðernis­hyggju og sagði stjórn­málin þurfa að þróast á forsendum þess að allir væru velkomnir í samfélögum. Hinn alþjóða­væddi heimur þyrfti að vera móttækilegur fyrir ólíkum viðhorfum. „Ef við opnum augu okkar meira, verðum víðsýnni, þá náum við árangri,“ sagði Macron.

Þá sagði hann það ekki valkost að tefja aðgerðir í barátt­unni gegn mengun og hlýnun jarðar. Hann sagði þjóðir heimsins ekki hafa tíma til þess að deila um mál sem væru augljós. „Það er engin pláneta B,“ sagði Macron, uppskar lófklapp frá þeim hluta Banda­ríkjaþings sem hefur barist fyrir samstilltum aðgerðum gegn loftslags­breytingum og hlýnun jarðar.

Eins og kunnugt er hefur Trump dregið Banda­ríkin út úr Parísar­samkomu­laginu en auðjöfurinn Michael Bloomberg, hefur þegar sagst ætla að greiða þá upphæð sem vanti upp, til að Banda­ríkin geti staðið við skuld­bindingar á grund­velli samkomu­lagsins. Þá hafa allar stærstu borgir Banda­ríkjanna, og stærstu ríkin sömuleiðis, ákveðið að fylgja Parísar­samkomu­laginu og þeim skilyrðum þess sem snýr að þeim.

Macron sagði í ræðu sinni, að Banda­ríkin væri um margt vagga lýðræðislegar þróunar og hins alþjóða­vædda heims eins og við þekktum hann. Hann sagði alþjóða­viðskipti hafa greitt fyrir framförum, og varaði sterklega við tolla­stríðum. Hagsmunir heimsins væru best verndaðir með alþjóða­samstarfi, á víðum grund­velli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár