Þúsundir sparast á því að kaupa jólakjötið í réttri verslun

Hörð sam­keppni er í verð­lagn­ingu á jóla­kjöti. Þannig er Bónus með tölu­vert hærra verð á frosnum, heilum kalkún, en aðrar versl­anir sem vana­lega eru með hærri verð­lagn­ingu. Bónus er almennt með lægsta verðið, en í heim­send­ingu kemur Nettó betur út en Heimkaup.

Bónus
Bónus Lægsta verðið er almennt hjá Bónus, sam­kvæmt nýrri könnun ASÍ, en Krónan fylgir fast á eftir. Mynd: Kristinn Magnússon

Óhag­stætt er að kaupa kjöt hjá Heim­kaupum, miðað við heim­send­inga­þjón­ustu Nettó, og hæsta verðið er almennt í Iceland en það lægsta í Bónus, sam­kvæmt nýrri könnun Alþýðu­sam­bands Íslands á verði jólamat­væla.

Meðal und­an­tekn­inga er verðið á frosnum, heilum kalkún. Í Bónus er kíló­verð kalkúns 1.598 krónur og einni krónu hærra í Krónunni, en í Nettó, Kjör­búð­inni og Iceland er kíló­verðið aðeins 1.198. Þannig geta spar­ast 2.400 krónur með því einu að kaupa sex kíló­gramma heilan kalkún í þessum þremur versl­unum frekar en í Bónus eða öðrum versl­unum með enn hærra verð. Ekki eru metin gæði vöru og ekki er til­tek­inn upp­runi hennar í könnun ASÍ.

Helst er það í kjöt­inu sem Nettó og Fjarð­ar­kaup veita Bónus og Krónunni harða verð­sam­keppni. Það er einnig í kjöti sem afbrigði eru í verð­lagn­ingu hjá Iceland, en í nán­ast öllum öðrum vöru­flokkum er Iceland með hæsta verðið, nokkru ofar en Hagkaup sem kemur næst. Costco er ekki mælt í verð­könnun ASÍ.

ASÍ kynnti nið­ur­stöður sínar rétt í þessu og til­greindi sér­stak­lega verð­mun í kjöti, en einnig er gegn­um­gang­andi veru­legur verð­munur á Bónus og Iceland.

„Mikill verð­munur var á jóla­mat í verð­könnun ASÍ sem fram­kvæmd var þriðju­dag­inn 17. des­em­ber. Oft var um 1.500-2.000 kr. verð­munur á kíló­verði af kjöti og getur því munað  háum upp­hæðum þegar kaupa þarf mikið magn af kjöti og mögu­lega fleiri en eina teg­und. Sem dæmi má nefna að 2.006 krónu eða 67% munur var á kíló­verði af  Kea hangilæri sem jafn­gildir 4.012 kr. verð­mun ef keypt er tveggja kílóa læri.

„Í mörgum til­fellum var einnig mik­ill munur á verði á öðrum algengum jóla­vörum eins og konfekti og ávöxtum og græn­meti“

Í mörgum til­fellum var einnig mik­ill munur á verði á öðrum algengum jóla­vörum eins og konfekti og ávöxtum og græn­meti. Má þar nefna að 1.730 kr. munur var á hæsta og lægsta verði á 2kg Quality Street konfekt dós. 

Bónus var oft­ast með lægsta verðið í könn­un­inni, í 75 til­vikum af 122 en Iceland oft­ast með hæsta verðið í 57 til­vikum. Þess ber þó að geta að lægsta verðið á kjöti dreifð­ist á margar versl­anir,“ segir í til­kynn­ingu ASÍ.

Verðið í könn­un­inniRauður litur merkir hærra verð, en grænn lægra.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár