Kaupendur að hlut í Íslandsbanka hafa þegar hagnast um 4,5 milljarða króna

22,5 prósent hlutur ríkis­sjóðs í Íslands­banka sem var seldur í lokuðu útboði fyrir 52,65 milljarða króna til nokkur hundruð aðila sem flokkast „fagfjár­festar“ fyrir viku síðan er nú 57,15 milljarða króna virði.

Þegar 22,5 prósent hlutur í Íslands­banka var seldur fyrir viku síðan til valins hóps fjárfesta borguðu þeir 117 krónur fyrir hvern hlut, eða alls 52,65 milljarða króna. Það var rúmlega fjögur prósent undir skráðu gengi bankans á þeim tíma og afslátturinn rökstuddur með því að það væri alvanalegt alþjóð­lega þegar stór hlutur í skráðu félagi væri seldur með tilboðs­fyrir­komulagi að gefa afslátt.

Við lokun markaða í gær var gengi bréfa í Íslands­banka 127 krónur á hlut, eða 8,5 prósent yfir því gengi sem var á bréfunum í lokaða útboðinu sem fór fram í síðustu viku. Virði þess hlutar sem var seldur er nú 57,15 milljarðar króna og kaupendurnir hafa því hagnast um 4,5 milljarða króna á einni viku.

Markaðs­virði Íslands­banka í heild við lokun markaða í gær var 254 milljarðar króna.

Tilgangurinn ekki að fá hæsta verðið

Alls 430 fjár­festar fengu að skrá sig fyrir hlut í Íslands­banka og var margföld umfram­eftirspurn eftir þátttöku. Kjarninn hefur rætt við fjárfesta sem voru tilbúnir að greiða að minnsta kosti markaðs­verð fyrir hluti í bankanum í útboðinu en fengu ekki það sem þeir sóttust eftir heldur voru látnir sæta skerðingum eins og aðrir tilboðs­gjafar. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, hefur enda sagt að megin­tilgangurinn hafi ekki verið að fá hæsta verðið heldur að tryggja dreifða eignar­aðild.

Engar skýrar upplýsingar hafa hins vegar verið veittar um megin­þorra þeirra sem fengu að kaupa. Tilkynnt var til Kaup­hallar Íslands um þrjá aðila sem sitja í stjórn eða framkvæmda­stjórn Íslands­banka, eða tengjast aðilum sem það gera, en samanlagt keyptu þeir fyrir um 93 milljónir króna.

Fyrir liggur að stórir íslenskir lífeyris­sjóðir keyptu mest í útboðinu og Lífeyris­sjóður starfs­manna ríkisins (LSR), stærsti sjóður landsins, er nú til að mynda næst stærsti eigandi Íslands­banka á eftir íslenska ríkinu, sem á 42,5 prósent, með 5,23 prósent eignar­hlut. Gildi er þriðji stærsti eigandi bankans með 5,07 prósent hlut og þá keypti bandaríska sjóðs­stýringar­fyrirtækið Capital Group, sem þegar átti 4,5 prósent hlut í Íslands­banka, viðbótar­hlut og á nú 5,06 prósent.

Voru metnir af fyrirtækjunum sem þeir eiga regluleg viðskipti við

Að óbreyttu verða einungis birtar upplýsingar um þá sem eiga meira en eitt prósent hlut í Íslands­banka og þeir eru sem stendur tíu talsins. Auk þeirra sem nefndir hafa verið hér að ofan Lífeyris­sjóður verzlunarmanna með 4,57 prósent hlut, Brú lífeyris­sjóður með 2,1 prósent hlut og Stapi lífeyris­sjóður með 1,58 prósent hlut. Auk þess er Arion banki skráður fyrir 1,72 prósent og Lands­bankinn fyrir 1,55 prósent hlut, en leiða verður líkur að því að bankarnir séu að halda á hlutum fyrir hönd viðskipta­vina sinna sem gerðir voru fram­virkir samningar við og að keypt hafi verið bréf fyrir veltubók bankanna. Íslands­sjóðir, sjóðs­stýringar­fyrirtæki í eigu Íslands­banka heldur svo á 1,55 prosent hlut fyrir sína viðskipta­vini, sem eru að uppistöðu lífeyris­sjóðir og fjár­sterkir einstaklingar.

Flestir hinna svokölluðu „fagfjárfesta“ sem fengu að kaupa í bankanum með afslætti eru einstaklingar sem voru metnir hæfir til þátttöku af þeim fjármála­fyrirtækjum sem valdir voru sem sölu­ráðgjafar, og eru í mörgum tilvikum þau sömu og umræddir aðilar eiga í viðskiptum við dags daglega. Fyr­ir­tækið á þá að leggja mat á sér­fræði­kunn­áttu, þekk­ingu og reynslu við­kom­andi og hvort hún veiti nægi­lega vissu fyrir því að hann geti sjálfur tekið ákvarð­anir um fjár­fest­ingar og skilji áhætt­una sem í þeim felst.

Til að þessir ein­stak­lingar geti talist fag­fjár­festar þurfa þeir að upp­fylla að minnsta kosti tvö af þremur skil­yrð­um: í fyrsta lagi að hafa átt umtals­verð við­skipti á við­eig­andi síð­ast­liðið ár, eða að með­al­tali a.m.k. tíu sinnum á hverjum árs­fjórð­ungi, í öðru lagi að fjár­mála­gern­ingar þeirra og inni­stæður séu sam­an­lagt virði 500 þús­und evra (71 milljón króna) eða meira eða í þriðja lagi að fjár­festir hafi gegnt eða gegni, í að minnsta eitt ár, stöðu í fjár­mála­geir­anum sem krefst þekk­ingar á fyr­ir­hug­uðum við­skiptum eða þjón­ust­u.

Vísað í sölu á hlutum í öðrum banka

Umsjón­ar­að­ilum hins lokaða útboðs hafa sagt að sá afsláttur sem var gefinn af hluta­bréfunum hafi þótti lít­ill í sam­an­burði við sam­bæri­legar sölur erlendis á árinu 2022, sér­stak­lega eftir þann mark­aðsóróa sem skap­að­ist þegar Rúss­land réðst inn í Úkra­ínu fyrir rúmum mán­uði síð­an.

Hefur þar, meðal annars á fundi fulltrúa Banka­sýslu ríkisins og fjármála- og efnahags­ráðuneytisins með efnahags- og viðskipta­nefnd í síðustu viku, verið vísað í sölu á hlutum í NatWest Group, áður þekkt sem Royal Bank of Scotland, en breska ríkið hefur verið að selja sig niður þar í mörgum skrefum á undan­förnum árum eftir að hafa tekið yfir félagið í kjölfar banka­hrunsins. Það er þó ýmislegt ólíkt með bæði aðkomu ríkis­sjóðs Íslands að Íslands­banka og breska ríkis­sjóðsins að NatWest, auk þess sem sölu­ferlið ytra hefur verið mun langdregnara og stigið í smærri skrefum en það sem ráðist var í hér. Þess utan starfar NatWest á alþjóð­legum mörkuðum, er tvískráður bæði í London og New York og er með viðskipta­vini út um allan heim. Bankinn er þegar með verulega dreift eignar­hald og síðasti kaupandi að hlutum ríkisins í honum var bankinn sjálfur.

Íslands­banki gerir upp í íslenskum krónum, þjónustar að uppistöðu íslensk fyrirtæki og heimili og var með 24 þús­und hluthafa í fyrra­sumar eftir að hann var skráður á hluta­bréfa­markað í byrjun júní. Hlut­höfum í bank­anum fækk­aði á tæpu hálfu ári um 35 pró­sent, um 8.400, og hlut­hafa­hóp­ur­inn telur í dag um 15.600 manns. Hlutabréf í bankanum hafa hækkað um næstum 61 prósent frá því að 35 prósent hlutur ríkisins var seldur í honum í fyrra. Sá hlutur hefur hækkað um tæpa 34 milljarða króna í virði frá því að ríkið seldi hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár