Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, tekur endanlega ákvörðun um sölu á hlut í ríkisbanka.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tekur end­an­lega ákvörðun um sölu á hlut í rík­is­banka. Mynd: Golli

Hverjir eru æskilegir eigendur að íslenskum viðskiptabanka og hvernig er best að selja hann?

Í rúm­lega níu ár hafa verið í gildi lög um hvernig selja eigi banka í eigu íslenska rík­is­ins. Það hefur tekið mun lengri tíma en lagt var upp með að hefja það ferli og mik­illar tor­tryggni gætir gagn­vart hverju skrefi sem er stigið.

Alls 22,5 pró­sent hlutur í Íslands­banka var seldur í vik­unni fyrir 52,65 millj­arða króna, með 2,25 millj­arða króna afslætti frá mark­aðsvirði bank­ans. Almenn­ingi stóð ekki til boða að taka þátt en fyrir liggur að 430 svo­kall­aðir „fag­fjár­festar“ skipta hinum keypta hlut á milli sín.

Það mun ekki liggja fyrir fyrr en eftir helgi hverjir nákvæm­lega keyptu og senni­lega mun það aldrei verða upp­lýst að fullu. Lög gera ein­ungis ráð fyrir því að allra stærstu eig­endur séu opin­beraðir.

Fyrir liggur að inn­lendir aðilar keyptu þorra þess sem selt var. Því er ljóst að stór erlendur banki, sem lengi hefur verið talin eft­ir­sókn­ar­verð­asti kost­ur­inn sem til staðar væri þegar kæmi að því að selja íslenska banka, er ekki á meðal kaup­enda. Stórir líf­eyr­is­sjóðir keyptu mest og margir aðrir stofn­ana­fjár­festar, inn­lendir og erlendir, skráðu sig líka fyrir eins miklu og þeir fengu að kaupa. Þá keyptu fjár­sterkir ein­stak­lingar líka fyrir umtals­verðar fjár­hæðir.

Þótt salan hafi farið fram í sam­ræmi við boð­aða fram­kvæmd þá virð­ist hún hafa komið mörgum í opna skjöldu. Stjórn­völd telja að hún hafi verið vel heppnuð og náð settum mark­miðum. Stjórn­ar­and­staðan, verka­lýðs­leið­togar og fjöl­margir aðrir hafa hins vegar gagn­rýnt hana og kallað eftir upp­lýs­ingum um hvernig jafn­ræði bjóð­anda hafi verið tryggt, hvaða „fag­fjár­festar“ það hafi verið sem voru valdir til að kaupa rík­is­eign og hvernig það hafi verið tryggt að allur hóp­ur­inn upp­fylli skil­yrði til að telj­ast slíkur.

Þá hefur verið kallað eftir frek­ari rök­stuðn­ingi fyrir þeim afslætti sem var gef­inn í ljósi þess að umfram­eft­ir­spurn eftir hlutum í Íslands­banka var marg­föld.

Þótt annað skref í sölu Íslands­banka hafi verið stigið, og íslenska ríkið sé orðið minni­hluta­eig­andi í bank­anum með 42,5 pró­sent hlut, liggur fyrir að enn er mikið starf óunnið til að slá á gagn­rýn­is­raddir í sam­fé­lagi þar sem ein­ungis 23 pró­sent lands­manna bera traust til fjár­mála­kerf­is­ins.

Lagaheimild fyrir sölu frá 2013

Salan á bönkum í rík­i­s­eigu á sér langan aðdrag­anda. Lög um sölu­með­ferð þeirra tóku gildi í byrjun árs 2013.

Síðar það ár urðu rík­is­stjórn­ar­skipti og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur haft það á stefnu­skránni alla tíð síðan að selja eign­ar­hluti rík­is­sjóðs í bönkum, í sam­ræmi við stefnu síns flokks.

Á árinu 2015 var langstærsti eign­ar­hlut­inn í fjár­mála­kerf­inu sem ríkið hélt á nán­ast allt hlutafé í Lands­bank­anum. Í apríl á því ári lagði Bjarni fram frum­varp sem fól í sér að eign­ar­hlutir rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum yrðu færði beint undir hann og að Banka­sýsla rík­is­ins, stofnun sem stofnuð hafði verið eftir banka­hrunið til að halda á hlut­unum til að skapa arms­lengd­ar­fjar­lægð milli ríkis og banka, yrði sam­hliða lögð niður.

Eign­ar­hald rík­is­ins á fjár­mála­kerf­inu breytt­ist síðar það ár, þegar þrotabú glitni afsal­aði sér eign­ar­haldi á Íslands­banka til rík­is­ins á grund­velli stöð­ug­leika­samn­ing­anna.

Skyndi­lega átti ríkið tvo banka til að selja.

Framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið mótuð

Ferlið hefur hins vegar gengið hægt. Tíðar kosn­ingar á árunum eftir að stöð­ug­leika­samn­ing­arnir voru gerðir, sem voru til­komnar vegna hneyksl­is­mála tengdum ráð­herrum í rík­is­stjórnum, voru hluti þeirrar ástæðu að illa gekk að taka í gikk­inn.

Það var ekki fyrr en að fyrri rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur tók við völdum haustið 2017 að gangur komst á málið.

Lárus L. Blöndal leiddi Hvítbókarhópinn og er formaður stjórnar Bankasýslu ríkisins.
Lárus L. Blöndal leiddi Hvít­bók­ar­hóp­inn og er for­maður stjórnar Banka­sýslu rík­is­ins.

Til að und­ir­búa sölu á öllum Íslands­banka og hluta af Lands­bank­anum var þá skip­aður starfs­hópur til að skrifa hvít­bók um fram­tíð­ar­sýn fyrir fjár­mála­kerfið. Formaður hóps­ins var Lárus L. Blöndal lög­maður, en hann hefur verið stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins, þeirrar stofn­unnar sem fer með eign­ar­hluti rík­is­ins í banka­kerf­inu, frá árinu 2015. Lárus var skip­aður af Bjarna Bene­dikts­syni, þáver­andi og núver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Hvít­bókin leit dags­ins ljós í des­em­ber 2018. Hún var mikið verk og benti á fjöl­margar gagn­legar vörður sem hægt væri að byggja til að móta fjár­mála­kerfi Íslands til fram­tíðar. Á meðal þess sem fjallað var um í henni var æski­legt eign­ar­hald á bönkum og hvernig færi best á því að selja banka í eigu rík­is­ins.

Í milli­tíð­inni hafði ríkið selt 13 pró­sent hlut sinn í Arion banka í febr­úar 2018 á grunni kaup­réttar sem samið var um 2009. Arion banki var þá þegar skráður á markað og salan því ann­ars eðlis en sala á hlutum í Íslands­banka og Lands­bank­anum.

„Mik­il­vægt er að eig­endur hafi lang­tíma­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi“

Samkvæmt könn­unum sem gerðar voru fyrir starfs­hóp­inn kom fram að langt væri í það að almenn­ingur hefði traust á fjár­mála­kerf­inu. Einungis 16 pró­sent sagð­ist treysta því. Þegar fólk var beðið um að segja af hverju það treysti ekki íslenska banka­kerf­inu var nið­ur­staðan nokkuð afger­andi. Það sem flestum Íslend­ingum datt í hug til að lýsa kerf­inu voru orð eins og spill­ing og græðgi. Þeir not­uðu hug­tök eins og háir vext­ir, dýrt og okur til að skil­greina kerf­ið.

Þegar fólk var spurt hvernig væri hægt að auka traust til banka­kerf­is­ins þá sagði stór hluti að það væri hægt með minni græðgi, minni ofur­laun­um, lægri vöxtum og því almennt að bjóða upp á betri kjör.

Í Hvít­bók­inni er líka fjallað um eign­ar­hald í banka­kerf­inu. Þar seg­ir: „Heil­brigt eign­ar­hald er mik­il­væg for­senda þess að banka­kerfi hald­ist traust um langa fram­tíð. Í því felst að eig­endur banka séu traust­ir, hafi umfangs­mikla reynslu og þekk­ingu á starf­semi banka og fjár­hags­lega burði til að standa á bak við bank­ann þegar á móti blæs. Mik­il­vægt er að eig­endur hafi lang­tíma­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi.“

Bein aðkoma erlends banka myndi hafa „jákvæð áhrif“

Þar er einnig farið yfir hvað væri ákjós­an­leg sam­setn­ing eign­ar­halds og sagt að fjöl­breytt og dreift eign­ar­hald gæti stuðlað að breiðri sátt um stefnu­mörkun banka og dregið úr hættu á of nánum beinum og óbeinum inn­byrðis tengslum á milli stórra eig­enda og stjórn­enda banka. Það myndi byggj­ast í senn á ólíkum hópum fjár­festa og inn­lendu og erlendu eign­ar­haldi. „Bein aðkoma erlends banka að einum íslensku bank­anna er lík­leg til að hafa jákvæð áhrif á sam­keppn­isum­hverfi bank­anna til fram­tíðar, auka stöð­ug­leika og minnka kerf­is­á­hættu með fjöl­breytt­ara eign­ar­haldi banka­kerf­is­ins og minnka þar með hættu á kross­eign­ar­tengslum. Ef erlendur banki keypti íslenskan banka að fullu mætti leiða líkur að því að íslenska bank­anum yrði breytt í útibú, sem væri þá að nokkru leyti undir eft­ir­liti erlends fjár­mála­eft­ir­lits. Ef um væri að ræða banka og öfl­ugt eft­ir­lit, t.d. á Evrópska efna­hags­svæð­inu, ætti slíkt að geta dregið enn frekar úr áhættu og kostn­aði og aukið sam­keppni.“

Það var því nið­ur­staðan að erlendur lang­tíma­fjár­festir, helst banki, væri eft­ir­sókn­ar­verð­asti kost­ur­inn sem til staðar væri þegar kæmi að því að selja banka.

Lítill áhugi erlendra banka á að kaupa

Vanda­málið er, og hefur ætið verið, að erlendir bankar hafa ekki haft sýni­legan áhuga á að kaupa íslenska við­skipta­banka. Sá eini sem hefur gert það sem ein­hverju nemur var lítil þýskur einka­banki, Hauck & Auf­häuser, sem keypti stóran hlut í Bún­að­ar­banka Íslands 2003. Fjórtán árum síðar opin­ber­aði rann­sókn­ar­nefnd að hann hefði verið leppur til að tryggja stjórn­endum Kaup­þings og Ólafi Ólafs­syni fjár­festi yfir­ráð yfir bank­anum. Kaupin voru blekk­ing og þýski bank­inn tók þóknun fyrir að taka þátt í að fram­kvæma hana.

Í minn­is­blaði sem Banka­sýsla rík­is­ins skil­aði inn til Hvít­bók­ar­hóps­ins sagði að reglu­leg sam­skipti við alþjóð­lega fjár­fest­inga­banka hefðu leitt í ljós að „á und­an­förnum árum og í kjöl­far fjár­málakrepp­unnar hefur verið afar lítið um sam­runa og yfir­tökur á bönkum á milli landa í Evr­ópu. Bitur reynsla af fyrri yfir­tök­um, lág arð­semi, flókn­ara reglu­verk og auknar eig­in­fjár­kröfur hafa átt sinn þátt í því[...]Bankar eru að draga sig út úr fjár­fest­ingum fyrri ára og ein­beita sér að kjarna­rekstri á eigin heima­mark­aði, en ekki að frek­ari land­vinn­ing­um.“

Samtöl Kjarnans við bæði inn­lenda og erlenda aðila innan fjár­mála­kerf­is­ins á und­an­förnum árum hafa leitt í ljós að sú áhætta sem fylgir íslensku krón­unni hafi líka leikið lyk­il­hlut­verk í því að erlendir bankar vilja ekki kaupa ráð­andi hlut í íslenskum við­skipta­banka. Áður en íslenskra ríkið tók yfir Íslands­banka eftir stöð­ug­leika­samn­ing­anna voru það helst hópar frá lönd­unum við Persafló­a í Mið-Aust­ur­löndum og Kína sem höfðu lýst yfir áhuga á að eign­ast bank­ann.

Faraldur frestar sölu

Í sept­em­ber 2019 lagði Banka­sýsla rík­is­ins til að fjórð­ungs­hlutur í Íslands­banka yrði seld­ur. Bjarni Bene­dikts­son sagði í við­tali við Morg­un­blaðið í byrjun febr­úar 2020 að sölu­ferlið myndi hefj­ast innan nokk­urra vikna.

Í kjöl­farið var gerð mála­miðlun milli stjórn­ar­flokk­anna sem í fólst að ríkið myndi eiga áfram „veru­legan hlut“ í Lands­bank­anum til lang­frama og ákvörðun um að selja eitt­hvað í honum yrði ekki tekin fyrr en Íslands­banki yrði að öllu leyti seld­ur. Þessi mála­miðlun birt­ist í breyttri eig­enda­stefnu rík­is­ins sem var gerð opin­ber 1. mars 2020. Nú er heim­ild til staðar til að selja allt að 30 pró­sent hlut í Lands­bank­anum.

Svo kom kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn og sölu­ferlið var sett á ís. Það þótti ekki raun­hæft að selja banka á þeim tíma vegna efna­hags­legra aðstæðna á Íslandi og alþjóða­vett­vangi.

Hætt við að tvískrá erlendis

Málið var svo sett aftur í gang 17. des­em­ber 2020, degi áður en Alþingi fór í jóla­frí. Það gerð­ist þannig að Banka­sýsla rík­is­ins – stjórn hennar og for­stjóri – sendu til­lögu til Bjarna Bene­dikts­sonar um að selja hlut í Íslands­banka í gegnum skrán­ingu á íslenskan mark­að. Meg­in­rökin sem voru sett fram fyrir þessu í minn­is­blaði sem fylgdi með voru þau að hluta­bréfa­mark­aðir hefðu hækkað í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum.

Fjórum dögum síð­ar, þegar þing­menn voru komnir í jóla­frí, sendi Bjarni, ásamt ráðu­neyt­is­stjóra sín­um, bréf til Banka­sýsl­unnar og sam­þykkti til­lög­una. Sam­hliða var send grein­ar­gerð til Alþingis og nefnd­ar­mönnum í fjár­laga­nefnd og efna­hags- og við­skipta­nefnd gefin mán­uður til að skila inn umsögn um mál­ið. Hún átti að ber­ast 20. jan­ú­ar 2021, eða tveimur dögum eftir að fyrsti þing­fundur eftir jóla­frí fór fram.

Grein­ar­gerðin opin­ber­aði það að ekki átti lengur að freista þess að finna erlenda aðila til að kaupa í Íslands­banka. Það þætti ekki lík­legt til árang­urs. Svo­kallað sam­hliða sölu­ferli var því aflagt og ákveðið að skrá Íslands­banka ein­ungis á markað á Íslandi, ekki tví­skrá líka erlendis eins og upp var lagt með til að byrja með.

Kaup­endur yrðu því, að uppi­stöðu, íslenskir fjár­festar.

Selt á lágu verði og hluthöfum hefur fækkað um meira en þriðjung

Fyrsta skrefið var stigið í fyrra­sumar. Þá var haldið útboð og 35 pró­sent hlutur seldur á geng­inu 79 krónur á hlut. Verðið var gagn­rýnt harð­lega víða að í aðdrag­anda útboðs­ins þar sem það þótti of lágt, sér­stak­lega í sam­an­burði við mark­aðsvirði Arion banka, banka af nán­ast sömu stærð sem var þegar skráður á markað. Níföld umfram­eft­ir­spurn stað­festi það að fjár­festum fannst hluta­bréf í bank­anum á þessu verði vera eft­ir­sókn­ar­verður fjár­fest­ing­ar­kostur.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, hringir inn fyrstu viðskipti með bréf bankans í fyrrasumar.
Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, hringir inn fyrstu við­skipti með bréf bank­ans í fyrra­sumar.

Almenn­ingi var boðið að taka þátt og gat keypt fyrir eina milljón króna án þess að hlutur hans yrði skertur. Fyrir vikið voru hlut­hafar í bank­anum um 24 þús­und þegar hann var skráður á hluta­bréfa­markað í byrjun júní. Stærstur hluti var keyptur af líf­eyr­is­sjóðum og inn­lendir fag­fjár­festar keyptu einnig tölu­vert. Einu sýni­legu erlendur aðil­arnir sem keyptu voru tveir fjár­fest­inga­sjóðir, Capital World Investors og RWC Asset Mana­gement LLP, sem sam­an­lagt keyptu 10,5 pró­sent hlut.

Frá því að þessi sala átti sér stað hefur mark­aðsvirði hluta­bréfa í Íslands­banka hækkað um næstum 60 pró­sent. Á nokkrum mán­uðum leystu margir út hagnað vegna þess­arar hækk­unar. Erlenda eign­ar­haldið hefur til að mynda lækkað um þriðj­ung og annar sjóð­anna sem keypti hefur selt nán­ast allt sitt í Íslands­banka. Hlut­höfum í bank­anum fækk­aði á tæpu hálfu ári um 35 pró­sent, um 8.400, og hlut­hafa­hóp­ur­inn telur í dag um 15.600 manns. Því er ljóst að margir litu á kaup í Íslands­banka sem skamm­tíma gróða­tæki­færi, ekki lang­tíma­fjár­fest­ingu.

Ákveðið að selja til „hæfra fjárfesta“

Næsta skref í sölu á hlutum rík­is­ins í Íslands­banka hófst form­lega 20. jan­úar 2022 þegar Banka­sýslan lagði fram til­lögu um að stór hlutur yrði seldur með svoköll­uðu til­boðs­fyr­ir­komu­lagi.

Slíkt fyr­ir­komu­lag felur í sér að sölu­ráð­gjafar kanna áhuga „hæfra fjár­­­festa“ á að taka þátt í útboði. Þeir verða sam­hliða tíma­bundnir inn­herjar. Ef slíkur áhugi er til staðar fá þeir mög­u­­leika á að kaupa hluta­bréf í bank­­anum á gengi sem væri nokkru undir mark­aðs­verði þeirra dag­inn fyrr. Í grein­ar­gerð fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra frá 11. febr­úar sagði að ástæða þess að „hæfir fjár­­­fest­ar“ myndu fá afslátt væri vegna þess að þeir væru að kaupa stærri hlut í bank­­anum en aðr­ir, auk þess sem óvissa væri um nákvæma þróun hluta­bréfa­verðs­ins á vik­unum eftir útboð­ið.

Þing­nefndir Alþingis fjöll­uðu í kjöl­farið um málið og síð­degis síð­asta föstu­dag, eftir lokun mark­aða, var birt til­kynn­ing um að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefði ákveðið að hefja fram­hald sölu­­­­með­­­­­­­ferðar á hlutum í Íslands­­­­­­­banka í sam­ræmi við til­­­­lögu Banka­­­­sýslu rík­­­­is­ins.

Haft samband við þá sem talið væri að hefðu áhuga

Á þriðju­dag, ell­efu mín­útum eftir að mark­aðir lok­uðu, var svo látið til skara skríða. Í aðdrag­anda þess höfðu sölu­ráð­gjafar sem fengnir voru að söl­unni rætt við stóra fjár­festa á borð við líf­eyr­is­sjóði um kaup og fengið óskuld­bind­andi vil­yrði fyrir því að þeir myndu vera til­búnir til að kaupa þann 20 pró­sent hlut sem til stóð að selja að lág­marki. Almennum fjár­festum var ekki boðið að taka þátt í við­skipt­unum en sölu­ráð­gjafar stjórn­valda höfðu sam­band við þá skil­greindu fag­fjár­festa sem þeir töldu að hefðu áhuga og buðu þeim að kaupa.

Klukkan rúm­lega tíu sama kvöld, sex klukku­tímum eftir að til­kynnt var um sölu­ferlið og 40 mín­útum eftir að frestur til að skila inn til­boðum rann út, birt­ist ný til­kynn­ing um að seldur yrði 22,5 pró­sent hlutur á 52,65 millj­arða króna, með 2,25 millj­arða króna afslætti. Afslátt­ur­inn var veittur þrátt fyrir að marg­föld umfram eft­ir­spurn hefði verið í útboð­inu og að bæði „inn­lendir og erlendir hæfir fjár­festar sýndu útboð­inu mik­inn áhuga.“

Umsjón­ar­að­ilum þótti það lít­ill afsláttur í sam­an­burði við sam­bæri­legar sölur erlendis á árinu 2022, sér­stak­lega eftir þann mark­aðsóróa sem skap­að­ist þegar Rússland réðst inn í Úkraínu fyrir rúmum mán­uði síðan.

Snemma morg­uns á mið­viku­dag lá fyrir að Bjarni Bene­dikts­son hafði sam­þykkt söl­una og íslenska ríkið var orðið minni­hluta­eig­andi í Íslands­banka með 42,5 pró­sent eign­ar­hlut.

430 skráðu sig fyrir hlut

En hverjir fengu að taka þátt og hverjir keyptu? Því verður ekki svarað að hluta fyrr en á mánu­dag eða þriðju­dag, þegar þeir sem skráðu sig fyrir hlut borga fyrir hann. Senni­leg­ast er þó að almenn­ingur fái aldrei að vita nákvæm­lega hverjir það eru sem fengu að kaupa. Lög gera ein­ungis ráð fyrir því að þeir sem eiga eitt pró­sent eða meira í skráðu félagi séu birtir á hlut­haf­alista þess. Fáir þeirra sem tóku þátt munu upp­fylla það skil­yrði.

Einn ráð­gjafa stjórn­valda, STJ Advisors, birti til­kynn­ingu á heima­síðu sinni á mið­viku­dag þar sem kom fram að 430 aðilar hafi skráð sig fyrir hlut. Þetta er hóp­ur­inn sem upp­fyllti það skil­yrði stjórn­valda að telj­ast til „hæfra fjár­festa“.

Það var því ljóst að um afmark­aðan hóp var að ræða. Fyrir liggur að íslenskir líf­eyr­is­sjóðir keyptu stóran hlut. Þar fóru fremstir í flokki þrír stærstu sjóðir lands­ins: Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Gildi. Samkvæmt flöggun til Kaup­hallar Íslands er eign­ar­hlutur LSR til að mynda nú kom­inn í 5,23 pró­sent. Samkvæmt frétt Innherja frá því á mið­viku­dag fengu þeir að kaupa um 30 pró­sent af því sem þeir skráðu sig fyrir.

Íslenskir verð­bréfa­sjóðir og trygg­inga­fé­lög keyptu einnig tölu­vert og ein­hverjir erlendir sjóðir líka. Það gerðu líka fjár­sterkir ein­stak­lingar sem töld­ust „hæfir fjár­festar“. Þeir sem voru metnir lang­tíma­fjár­festar fengu að kaupa fyrir rúm­lega 40 pró­sent þeirra upp­hæðar sem þeir skráð sig fyrir, sam­kvæmt Innherja.

Vegna þess að umfram­eft­ir­spurn var þá skert­ust allir sem gerðu til­boð, en mis­mun­andi mikið. Það byggði meðal ann­ars á hug­lægu mati ráð­gjafa á því hvort við­kom­andi var tal­inn vera skamm­tíma- eða lang­tíma­fjár­festir.

Ferlið harðlega gagnrýnt

Um sölu á hlut íslenska rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum gilda sér­stök lög sem tóku gildi í byrjun árs 2013. Í þriðju grein lag­anna er fjallað um meg­in­reglur við sölu­með­ferð. Þar segir meðal ann­ars að áhersla skuli vera lögð á „opið sölu­ferli, gagn­sæi, hlut­lægni og hag­kvæmni. Með hag­kvæmni er átt við að leitað sé hæsta verðs eða mark­aðs­verðs fyrir eign­ar­hluti. Þess skal gætt að skil­yrði þau sem til­boðs­gjöfum eru sett séu sann­gjörn og að þeir njóti jafn­ræðis.“

Hörð gagn­rýni hefur verið sett fram á stjórn­völd um að þessum ákvæðum hafi ekki verið mætt í söl­unni sem fór fram í vik­unni, meðal ann­ars af þing­mönnum stjórn­ar­and­stöðu­flokka.

Gefin hafi verið afsláttur upp á 2,25 millj­arða króna að óþörfu í ljósi þess að umfram­eft­ir­spurn var marg­föld.

Þótt þeir sem eru virkir á mark­aði hafi áttað sig á að sala væri yfir­vof­andi út frá bréfa­send­ingum milli Banka­sýsl­unnar og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins sem birtar höfðu verið opin­ber­lega hafi almenn­ingur ekki gert það og fram­kvæmdin því komið mörgum sér­kenni­lega fyrir sjónir, að stór rík­is­eign hafi verið seld á einni kvöld­stund. Í ljósi þess að nýj­ustu mæl­ingar Gallup sýna að traust til fjár­mála­kerf­is­ins er enn afar lítið, 23 pró­sent, þá hefði átt að vanda betur til verka við að koma almenn­ingi, eig­anda bank­ans, í skiln­ing um hvað væri að fara að ger­ast.

Þá hafa margir þátt­tak­endur á fjár­mála­mark­aði gagn­rýnt fyr­ir­komu­lagið fyrir ógagn­sæi og að ekki hafi verið gætt jafn­ræðis þegar þeir sem fengu að kaupa voru valdir.

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til Seðla­banka Íslands og spurði hvort hann hafi haft hlut­verki að gegna til að gæta jafn­ræðis bjóð­enda í hinu lok­aða útboði. Í svari bank­ans segir að það sé ekki hlut­verk hans að „taka út bjóð­endur nema eign­ar­hlutur þeirra við kaupin verði virkur eign­ar­hlutur í bank­anum.“

Ráðgjafar valdir úr hópi áhugasamra

En hvernig voru þeir valdir? Í stuttu máli þá voru það umsjón­ar­að­ilar útboðs­ins sem það gerðu. Þeim var gert að líta ein­ungis á Banka­sýslu rík­is­ins sem við­skipta­vin sinn í tengslum við við­skiptin en ekki kaup­endur, sem þó eru margir hverjir við­skipta­vinir þeirra til margra ára og sterk per­sónu­leg tengsl eru við.

Umsjón­ar­að­ilar og sölu­ráð­gjafar geta átt von á hárri þóknun fyrir sína aðkomu að söl­unni. Beinn kostn­aður íslenska rík­is­ins við skrán­ingu og hluta­fjár­út­boð Íslands­banka um mitt síð­asta ár nam til að mynda 1.704 millj­ónum króna, að stærstum hluta vegna sölu­þókn­unar til fjölda erlendra og íslenskra ráð­gjafa. Ekki hefur verið greint frá því hvað ráð­gjaf­arnir fá fyrir annað skrefið í sölu Íslands­banka.

Í til­kynn­ingu sem Banka­sýslan birti á mið­viku­dags­morgun kom fram að „Citigroup, Fyr­ir­tækja­ráð­gjöf og Verð­bréfa­miðlun Íslands­banka og J.P. Morgan höfðu umsjón með við­skipt­unum. HSBC Continental Europe og Fossar mark­aðir, höfðu aðkomu að við­skipt­unum sem sölu­ráð­gjafar.“

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til Jóns Gunnars Jóns­sonar, for­stjóra Banka­sýsl­unnar, um hvernig við­kom­andi umsjón­ar­að­ilar og sölu­ráð­gjafar voru valdir. Í svari hans sagði að þeir hefðu verið valdir úr hópi þeirra sem lýstu yfir áhuga á mögu­legu hlut­verki fjár­mála­ráð­gjafa og umsjón­ar­að­ila með sölu­með­ferð á eign­ar­hlutum í Íslands­banka í byrjun árs 2021, þegar þessi hlut­verk voru boðin út. Hlut­verkin voru ekki boðin út nú, þar sem að salan féll undir und­an­tekn­ing­ar­á­kvæði laga um opin­ber inn­kaup.

Hvenær er fjárfestir „hæfur“?

Hvað skil­greinir þá sem eru taldir „hæfir fjár­fest­ar“? Sam­­kvæmt lögum verða fjár­­­festar sem hyggj­­ast fara með virkan eign­­ar­hlut í banka að stand­­ast hæf­is­mat sem bygg­ist á ítar­­legri grein­ingu og gagna­öfl­un. Þeir þurfa að hafa gott orð­­spor og búa við sterka fjár­­hags­­stöðu, en auk þess ætti eign­­ar­haldið ekki að tor­velda eft­ir­liti eða leiða til pen­inga­þvættis eða ann­arrar ólög­­legrar starf­­semi.

Eign­ar­hlutur telst virkur ef hann er tíu pró­sent eða meira og því á ofan­greint ekki við um þá sem tóku þátt í kaupum á hlutum í Íslands­banka í vik­unni.

Í lögum um mark­aði fyrir fjár­mála­gern­inga sem sam­þykkt voru í fyrra­sumar er að finna skil­grein­ingu á þeim sem telj­ast fag­fjár­festar. Það eru við­skipta­vinir sem búa „yfir reynslu, þekk­ingu og sér­fræði­kunn­áttu til að taka sjálfur ákvarð­anir um fjár­fest­ingar og meta áhætt­una sem þeim fylgir.“ Á meðal þeirra sem telj­ast laga­lega upp­fylla það skil­yrði eru stórir þátt­tak­endur á mark­aði, t.d. bankar, verð­bréfa­fyr­ir­tæki, trygg­inga­fé­lög, sjóð­stýr­ing­ar­fé­lög og líf­eyr­is­sjóðir. Sömu sögu er að segja um stór fyr­ir­tæki sem upp­fylla tvo af þremur skil­yrðum: að vera með efna­hags­reikn­ing sem er yfir 20 millj­ónir evra, árs­veltu yfir 40 millj­ónum evra eða eiga eigið fé sem er tvær millj­ónir evra eða meira. Rík­is­stjórnir, hér­aðs­stjórnir, seðla­bankar og alþjóða­stofn­anir telj­ast líka til fag­fjár­festa.

Þeir sem eru metnir af verðbréfafyrirtækjunum

Svo eru það þeir sem geta óskað eftir því að vera fag­fjár­festar án þess að til­heyra ofan­greindum hópi. Þetta á aðal­lega við um ein­stak­linga eða litla hópa sem stunda verð­bréfa­við­skipti í meira mæli en almennt tíðkast.

Þeir geta kallað eftir því að verð­bréfa­fyr­ir­tæki sem þeir eigi í við­skiptum við flokki þá sem slíka. Verð­bréfa­fyr­ir­tækið á þá að leggja mat á sér­fræði­kunn­áttu, þekk­ingu og reynslu við­kom­andi og hvort hún veiti nægi­lega vissu fyrir því að hann geti sjálfur tekið ákvarð­anir um fjár­fest­ingar og skilji áhætt­una sem í þeim felst.

Til að þessir ein­stak­lingar geti talist fag­fjár­festar þurfa þeir að upp­fylla að minnsta kosti tvö af þremur skil­yrðum: í fyrsta lagi að hafa átt umtals­verð við­skipti á við­eig­andi síð­ast­liðið ár, eða að með­al­tali a.m.k. tíu sinnum á hverjum árs­fjórð­ungi, í öðru lagi að fjár­mála­gern­ingar þeirra og inni­stæður séu sam­an­lagt virði 500 þús­und evra (71 milljón króna) eða meira eða í þriðja lagi að fjár­festir hafi gegnt eða gegni, í að minnsta eitt ár, stöðu í fjár­mála­geir­anum sem krefst þekk­ingar á fyr­ir­hug­uðum við­skiptum eða þjón­ustu.

Þrír keyptu fyrir um 93 milljónir

Einu aðil­arnir sem tóku þátt í kaupum á hlut í Íslands­banka sem hafa verið skil­greindir sem fag­fjár­festar af verð­bréfa­fyr­ir­tækj­unum sem þeir eiga við­skipti við á grund­velli ofan­greindra krafna sem opin­ber­lega er búið að greina frá eru stjórn­ar­maður í Íslands­banka, fram­kvæmda­stjóra í bank­anum og sam­býl­is­maður stjórn­anda innan hans. Ástæðan er sú að birtar voru til­kynn­ingar um kaup aðila tengdum stjórn og yfir­stjórn bank­ans á hlut.

Um var ræða Ara Dan­í­els­son, stjórn­ar­mann í Íslands­banka, sem keypti fyrir 55 millj­ónir króna, Ríkharð Daðason, sam­býl­is­mann Eddu Her­manns­dóttur mark­aðs- og sam­skipta­stjóra bank­ans, sem keypti fyrir tæpar 27 millj­ónir króna og Ásmund Tryggva­son, fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tækja og fjár­fest­inga­sviðs, sem keypti fyrir rúmar 11 millj­ónir króna.

Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, gerði kaup mann­anna þriggja að umtals­efni á Alþingi í gær, og minnt­ist sér­stak­lega á kaup félags Ríkharðs, RD Invest ehf., sem er með nei­kvætt eigið fé upp á rúm­lega 135 millj­ónir króna sam­kvæmt síð­asta birta árs­reikn­ingi þess, vegna árs­ins 2020. Jóhann Páll sagði þetta vekja upp spurn­ingar um hvernig fag­fjár­festar voru valdir og að það þyrfti að ræða á Alþingi.

Kjarninn kall­aði eftir upp­lýs­ingum frá Íslands­banka um hvort ein­hverjar tak­mark­anir hafi verið settar á þátt­töku stjórn­ar­manna eða starfs­manna bank­ans í útboð­inu á þriðju­dag. Í svari frá bank­anum sagði að svo væri ekki en allir þátt­tak­endur þyrfti að vera skil­greindir fag­fjár­festar. Það hafi úti­lokað flesta starfs­menn frá þátt­töku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár