Alls 22,5 prósenta hlutur í Íslandsbanka seldur með 2,25 milljarða króna afslætti

Bjarni Bene­dikts­son er búinn að ákveða að rík­is­sjóður selji stóran hlut í Íslands­banka fyrir 52,65 millj­arða króna. Ríkið mun eiga 42,5 pró­sent hlut í bank­anum og hefur selt bréf í honum fyrir 108 millj­arða króna frá því í fyrra­sumar.

Útboði á stórum hlut íslenska rík­is­ins í Íslands­banka lauk klukkan 21:30 í gær­kvöldi. Í til­kynn­ingu sem birt var í Kauphöll Íslands um 40 mín­útum síðar kom fram að Banka­sýsla rík­is­ins myndi mæla með því að 22,5 pró­sent hlutur í bank­anum yrði seldur til þeirra sem buðu og að verðið í útboð­inu yrði 117 krónur á hlut. Það er 4,2 pró­sent undir dagsloka­gengi í gær og þýðir veittur yrði 2,25 millj­arða króna afsláttur á hlutum í bank­anum og 22,5 pró­sent hlut­ur­inn seldur á 52,65 millj­arða króna.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, tók ákvörðun um að fara að til­lögu Banka­sýsl­unnar og klukkan 6:18 í morgun var til­kynnt að salan væri frá­gengin. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands sagði að „veru­leg umfram eft­ir­spurn var í útboð­inu og bæði inn­lendir og erlendir hæfir fjár­festar sýndu útboð­inu mik­inn áhuga.“

Fyrir hefur legið að sitj­andi rík­is­stjórn ætl­aði sér að selja eft­ir­stand­andi 65 pró­sent hlut í Íslands­banka, að ferlið yrði í höndum Banka­sýslu rík­is­ins og að það yrði Bjarna að sam­þykkja sölur áður en þær eru fram­kvæmdar. Þann 20. jan­úar síð­ast­lið­inn sendi Banka­sýslan til­lögu og minn­is­blað um hvernig hefja ætti næstu skref í söl­unni á hlut rík­is­ins í bank­anum. Þann 11. febr­úar birti Bjarni grein­ar­gerð á vef stjórn­ar­ráðs­ins þar sem kom fram að skyn­sam­leg­ast væri að næsta skref í sölu Íslands­banka væri með útboði á hluta­bréfa­mark­aði, þar sem hæfir fag­fjár­festar fengju mögu­leika á að kaupa hluti í bank­anum á afslætti.

Umsagnir fjár­laga­nefndar og efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis um fram­hald söl­unnar á Íslands­banka lágu svo fyrir fyrr í þessum mán­uði. Þar gagn­rýndu þing­menn Pírata, Sam­fylk­ing­ar­innar og Flokks fólks­ins áform um fyr­ir­hug­aða sölu en sú gagn­rýni var af ýmsum toga. Í efna­hags- og við­skipta­nefnd gagn­rýndi til að mynda full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar það að Bjarni fengi að selja Íslands­banka, í ljósi tengsla hans við fyr­ir­renn­ara bank­ans. Fulltrúi Sam­fylk­ing­ar­innar í fjár­laga­nefnd kall­aði hins vegar meðal ann­ars eftir frek­ari stefnu­mótun, lagði áherslu á í athuga­semdum sínum að fengnir yrðu ábyrgir erlendir lang­tíma­fjár­festar að borð­inu, að það yrði ekki end­ur­tekið að bank­inn yrði seldur á und­ir­verði og að gætt yrði að sam­keppn­is­sjón­ar­miðum.

Eftir að athuga­semdir þing­nefnda lágu fyrir var til­­kynnt um það síð­­degis á föst­u­dag að Bjarni hefði ákveðið að hefja fram­hald sölu­­­með­­­­­ferðar á hlutum í Íslands­­­­­banka í sam­ræmi við til­­­lögu Banka­­­sýslu rík­­­is­ins frá 20. jan­úar síð­­­ast­liðn­­­­­um. Ráð­herr­ann sendi Banka­­­sýsl­unni bréf um ákvörð­un­ina þann dag.

Mælt með því að selja til „hæfra fjárfesta“

Banka­sýslan hafði mælti með því í til­lögu sinni frá 20. jan­úar að bank­inn yrði fyrst seldur með svoköll­uðu til­boðs­fyr­ir­komu­lagi í þessum sölu­fasa. Slíkt fyr­ir­komu­lag fæli í sér að sölu­ráð­gjafar könn­uðu áhuga svo­kall­aðra „hæfra fjár­festa“ til að athuga áhuga þeirra á að taka þátt í útboði. Ef slíkur áhugi væri til staðar myndi þeir fá mögu­leika á að kaupa hluta­bréf í bank­anum á gengi sem væri nokkru undir mark­aðs­verði þeirra dag­inn fyrr. Í grein­ar­gerð Bjarna frá 11. febr­úar sagði að ástæða þess að „hæfir fjár­festar“ myndu fá afslátt væri vegna þess að þeir kaupi stærri hlut í bank­anum en aðr­ir, auk þess sem óvissa væri um nákvæma þróun hluta­bréfa­verðs­ins á vik­unum eftir útboð­ið.

Jón Gunnar Jónsson er forstjóri Bankasýslu ríkisins.
Jón Gunnar Jónsson er for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins.

En hvað eru „hæfir fjár­festar“? Sam­kvæmt lögum verða fjár­festar sem hyggj­ast fara með virkan eign­ar­hlut í banka að stand­ast hæf­is­mat sem bygg­ist á ítar­legri grein­ingu og gagna­öfl­un. Þeir þurfa að hafa gott orð­spor og búa við sterka fjár­hags­stöðu, en auk þess ætti eign­ar­haldið ekki að tor­velda eft­ir­liti eða leiða til pen­inga­þvættis eða ann­arrar ólög­legrar starf­semi.

Fyrir liggur að það eru að uppi­stöðu þrír hópar sem ættu að upp­fylla þessi skil­yrði. Í fyrsta lagi íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, sem hafa verið að stækka við sig í Íslands­banka frá síð­asta sumri. Þeir eiga nú um sex pró­sentu­stigum meira en þá, eða rúm­lega 15 pró­sent hlut. Í öðru lagi erlendir lang­tíma­fjár­festar, t.d. á borð við aðra banka. Í þriðja lagi erlendir fjár­fest­ing­ar­sjóðir sem sér­hæfa sig í fjár­fest­ingum í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Þeir geta verið bæði skamm­tíma- og lang­tíma­fjár­festar. Þegar 35 pró­sent hlutur í Íslands­banka var seldur í fyrra­sumar á 55,3 millj­arða króna keyptu tveir erlendir sjóðir til að mynda sam­an­lagt 10,5 pró­sent hlut. Í byrjun árs 2022 hafði annar þeirra selt sig út og sam­eig­in­legur hlutur erlendu fjár­fest­anna minnkað um 30 pró­sent á örfáum mán­uðum, niður í 7,4 pró­sent.

Íslandsbanki var skráður á markað í júní í fyrra eftir almennt útboð á 35 prósent hlut í honum.
Íslands­banki var skráður á markað í júní í fyrra eftir almennt útboð á 35 pró­sent hlut í honum.

Hlut­ur­inn sem íslenska ríkið seldi er nú um 30 millj­örðum króna meira virði en þegar það seldi hann í júní í fyrra. Sú virð­is­aukn­ing hefur lent hjá nýjum eig­endum hans.

Selt á nokkrum klukkutímum

Næsta skref í sölu Íslands­banka hófst svo form­lega, nokkuð óvænt, ell­efu mín­útum eftir lokun mark­aða í gær þegar til­kynn­ing barst um að minnsta kosti 20 pró­sent hlutur í Íslands­banka yrði seldur fyrir opnun mark­aða dag­inn eftir. Citigroup, Fyr­ir­tækja­ráð­gjöf og Verð­bréfa­miðlun Íslands­banka og J.P. Morgan höfðu umsjón með við­skipt­unum og HSBC Continental Europe og Fossar mark­aðir höfðu aðkomu að við­skipt­unum sem sölu­ráð­gjafar. Þá störf­uðu ACRO verð­bréf, Íslensk verð­bréf, og Lands­bank­inn sem sölu­að­ilar í útboð­inu.

Um þremur klukku­tímum síðar lá fyrir að þegar voru komin ásætt­an­leg til­boð í þann hlut og klukkan rúm­lega tíu í gær­kvöldi, sex klukku­tímum eftir að til­kynnt var um sölu­ferlið og 40 mín­útum eftir að frestur til að skila inn til­boðum rann út, birt­ist ný til­kynn­ing um að seldur yrði 22,5 pró­sent hlutur á 52,65 millj­arða króna, með 2,25 millj­arða króna afslætti, ef fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sam­þykkti söl­una á mið­viku­dags­morgun. Til­kynn­ing um að búið væri að selja hlut­inn var svo birt í Kauphöll Íslands klukkan 6:18 í morgun.

Ekkert liggur enn fyrir um hverjir eru að kaupa þennan risa­stóra hlut í kerf­is­lega mik­il­vægum banka á Íslandi og senni­lega mun það ekki verði gert opin­bert fyrr en við­skiptin verða gerð upp. Það verður gert á mánu­dag, 28. mars.

Eftir það mun blasa við nýr veru­leiki. Í fyrsta sinn frá banka­hruni verður meiri­hluti eignar í kerf­is­lega mik­il­vægu bönk­unum þremur (Lands­bank­anum, Arion banka og Íslands­banka) í eigu einka­að­ila, ekki rík­is­ins eða þrota­búa fall­inna banka. Hlutur rík­is­ins í Íslands­banka fer niður í 42,5 pró­sent. Fyrir sam­tals 57,5 pró­sent hlut mun rík­is­sjóður fá alls tæp­lega 108 millj­arða króna.

Mik­ill hagn­aður í fyrra og stefnt á tugmilljarða útgreiðslur

Íslands­­­­­­­banki hagn­að­ist um 23,7 millj­­­­arðar króna á árinu 2021. Arð­­­­semi eigin fjár var 14,2 pró­­­­sent og sem var vel yfir tíu pró­­­­sent mark­miði bank­ans. Kostn­að­­­­ar­hlut­­­­fall bank­ans lækk­­­­aði úr 54,3 pró­­­­sent í 46,2 pró­­­­sent milli ára.

Eigið fé Íslands­­­­­­­banka var 203,7 millj­­­­arðar króna um síð­­­­­­­ustu ára­­­­mót og eig­in­fjár­­­­hlut­­­­fall bank­ans 25,3 pró­­­­sent. Útlán til við­­­­skipta­vina Íslands­­­­­­­banka juk­ust um 7,9 pró­­­­sent á síð­­­­asta ári. Þá aukn­ingu má að mestu rekja til auk­inna umsvifa á hús­næð­is­­­­mark­aði. Vaxta­munur bank­ans var 2,4 pró­­­­sent. Hreinar vaxta­­­­tekjur voru 34 millj­­­­arðar króna og hækk­­­­uðu um tvö pró­­­­sent milli ára. Þókn­ana­­­­tekjur hækk­­­­uðu hins vegar um 22,1 pró­­­­sent og voru sam­tals 12,9 millj­­­­arðar króna.

Á grund­velli þess­­­­arar afkomu var ákveðið að greiða hlut­höfum sínum 11,9 millj­­­­arða króna í arð. Þar af fóru 65 pró­­­­sent til stærsta ein­staka eig­and­ans, íslenska rík­­­­is­ins, eða rúm­­­­lega 7,7 millj­­­­arðar króna. Þeir sem eiga 35 pró­­­­sent hlut í bank­­­­anum fengu svo sam­an­lagt tæpa 4,2 millj­­­­arða króna í arð­greiðslu. Auk þess stefnir stjórn bank­ans að því að greiða út 40 millj­­­­arða króna í umfram eigið fé á næstu 12-24 mán­uð­­­­um. Sú veg­­­­ferð hófst með því að aðal­­­fundur bank­ans sam­­­þykkti að hefja end­­­­ur­­­­kaup á bréfum fyrir 15 millj­­­­arða króna á næstu mán­uð­­­­um.

Almenn­ingur á móti sölu

Skoð­ana­kann­anir hafa ítrekað sýnt að ekki sé meiri­hluta­vilji hjá almenn­ingi fyrir því að selja eign­ar­hluti rík­is­ins í bönk­um. Í hvít­bók um fjár­mála­kerfið sem birt var í lok árs 2018 var ein helsta nið­­ur­­staðan að traust þyrfti til svo fjár­mála­kerfið myndi virka sem skyldi. Í könnun sem gerð var við gerð Hvít­­bók­­ar­innar kom fram að 61,2 pró­­­sent lands­­­manna væri jákvæður gagn­vart því að íslenska ríkið sé eig­andi við­­­skipta­­­banka. Ein­ungis 13,5 pró­­­sent þeirra voru nei­­­kvæðir gagn­vart því og 25,2 pró­­­sent höfðu ekki sér­­­staka skoðun á því.

Í könnun sem Gallup gerði snemma á síð­asta ári fyrir ASÍ kom fram að kjós­­endur eins flokks, Sjálf­­stæð­is­­flokks, væru fylgj­andi sölu Íslands­­­banka. Kjós­­endur allra ann­­arra flokka voru að meiri­hluta á móti henni. Um 56 pró­­sent lands­­manna voru á móti henni og 23 pró­­sent þeirra fylgj­and­i.

Í könnun sem Gallup gerði um traust til helstu stofn­ana sam­fé­lags­ins og birt var í byrjun mán­aðar kom fram að banka­kerfið nýtur næst minnst trausts af þeim sem spurt var um, en 23 pró­sent lands­manna sögð­ust bera traust til þess. Traustið dróst saman milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár