Minnihlutinn gagnrýnir fyrirhugað söluferli á Íslandsbanka

Þingmenn Pírata, Sam­fylk­ing­ar­innar og Flokks fólks­ins gagn­rýndu áform um fyr­ir­hug­aða sölu rík­is­ins á Íslands­banka í umsögn til Bjarna Bene­dikts­sonar. Einn þeirra mælti með því að annar ráð­herra sæi um söl­una, í ljósi fyrri tengsla Bjarna við bank­ann.

Fulltrúar stjórnarandstöðuþingmanna í efnahags- og viðskiptanefnd.
Full­trúar stjórn­ar­and­stöðu­þing­manna í efna­hags- og við­skipta­nefnd. Mynd: Samsett

Fjár­mála­ráð­herra ætti ekki að fá leyfi til að selja Íslands­banka, þar sem hann nýtur lít­ils trausts almenn­ings til verks­ins og hefur sýnt að hann stendur ekki undir ábyrgð­inni sem því fylgir. Einnig þyrfti annað og fleira að koma til heldur en salan á bank­anum svo að sam­keppni á inn­lendum banka­mark­aði stór­auk­ist. Þetta kemur fram í umsögnum frá minni­hluta­full­trúum efna­hags- og við­skipta­nefndar til ráð­herr­ans.

Umsagn­irnar hafa ekki enn verið birtar á vef Alþingis, en þær má nálg­ast með því að smella hér. Fjórar þeirra eru frá full­trúum stjórn­ar­and­stöðu í nefnd­inni, en þeir eru Guð­brandur Ein­ars­son, þing­maður Við­reisnar, Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, þing­maður Flokks fólks­ins, Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata.

Vill að salan fari í arðbærar fjárfestingar

Guð­brandur, Þór­hildur Sunna og Jóhann Páll sögð­ust ekki vera and­víg því að ríkið seldi eign­ar­hlut sinn í Íslands­banka í umsögnum sínum.

Þó segir Guð­brandur það vera mik­il­vægt að nýir kaup­endur bank­ans hafi ekki ríkra hags­muna að gæta sem beinir sam­keppn­is­að­ilar, eig­endur sam­keppn­is­að­ila eða séu við­skipta­vinir hans. Einnig bætir hann við að and­virði söl­unnar ætti að renna óskipt í fjár­fest­ingar eða nið­ur­greiðslu skulda, en ekki í almenna rekstur rík­is­sjóðs.

Vantraust skiljanlegt í ljósi fyrri tengsla

Samkvæmt Jóhanni Páli ætti for­sæt­is­ráð­herra að skipa annan ráð­herra heldur en Bjarna til að sjá um söl­una, í ljósi þess að 63 pró­sent lands­manna van­treysti honum í verkið, sam­kvæmt skoð­ana­könnun MMR. Jóhann Páll sagð­ist hafa skiln­ing á þessu van­trausti þar sem Bjarni hafi tekið þátt í við­skiptum sem veiktu bank­ann á árunum fyrir hrun ásamt skyld­mennum sínum og við­skipta­fé­lögum.

„Þá kom Bjarni að við­skiptafléttu árið 2008 þar sem Hæsti­réttur Íslands telur að hags­munir lán­taka hafi verið teknir fram yfir hags­muni bank­ans sjálfs. Til að fullt traust ríki um söl­una á Íslands­banka er rétt­ast að for­sæt­is­ráð­herra feli öðrum ráð­herra að fara með málið. “ bætti hann við. Einnig kall­aði hann eftir frek­ari grein­ingum, stefnu­mörkun og póli­tískri umræðu um hvernig sölu bank­ans yrði háttað áður en að hún haldi áfram.

Þór­hildur Sunna telur einnig að Bjarna ætti ekki að vera falið að sjá um söl­una á Íslands­banka. Samkvæmt henni hefur ráð­herr­ann sýnt að hann standi ekki undir þeirri ábyrgð sem því fylgir.

Því til stuðn­ings vísar Þór­hildur Sunna í sölu ráð­herr­ans á eign­ar­hlut rík­is­ins í Íslands­banka í fyrra, sem hún segir að hafa verið klúðrað með „stjarn­fræði­legum hætti“ þar sem bank­inn hafi verið seldur með 27 millj­arða króna afslætti. Þó bætir hún við að það sé almennt góð hug­mynd að losa um eign­ar­hald rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum, þannig að ríkið eigi ekki tvo banka.

Ætti ekki að selja gulleggin

Ólíkt hinum þremur stjórn­ar­and­stöðu­full­trúum nefnd­ar­innar var Ást­hildur Lóa ekki fylgj­andi sölu rík­is­ins á hlut sinn í Íslands­banka. Í umsögn sinni sagði hún að sala arð­bærra eigna veikti tekju­stofna rík­is­sjóðs til lengri tíma og að óvíst væri að vaxta­gjöld rík­is­sjóðs myndu lækka þótt allur ábati söl­unnar færi í að greiða niður skuldir rík­is­sjóðs.

„Þá er skulda­staða rík­is­sjóðs ekki svo alvar­leg að selja þurfi gul­leggin til að fjár­magna fjár­fest­ingar. Þvert á móti,“ sagði hún einnig.

Ást­hildur Lóa segir að rík­is­stjórnin sé stefnu­laus sem eig­andi bank­anna og að slíkt stefnu­leysi leiddi til engrar sam­keppni og sjálftöku í hagn­aði. Grund­vall­ar­at­riði væri að áform um að tryggja aukna sam­keppni fylgdu söl­unni, en sam­kvæmt henni væri mjög ósenni­legt að skyndi­lega stórjyk­ist sam­keppni á íslenskum banka­mark­aði með sölu bank­ann einni og sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár