Þessir einstaklingar blekktu stjórnvöld, almenning og fjölmiðla

„Í íslensku laga­máli nær hug­takið blekk­ing almennt til þess að vekja, styrkja eða hag­nýta sér ranga eða óljósa hug­mynd manns um ein­hver atvik. Telja verður raunar að almennur skiln­ingur á þessu hug­taki sé í meg­in­at­riðum á sömu lund. Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis telur að þau gögn sem rakin hafa verið og birt í þess­ari skýrslu, og þau atvik sem umrædd gögn varpa skýru og ótví­ræðu ljósi á, sýni fram á svo ekki verði um villst að íslensk stjórn­völd hafi á sínum tíma verið blekkt um aðkomu Hauck & Auf­häuser að þeirri einka­væð­ingu Bún­að­ar­banka Íslands hf. sem lokið var með kaup­samn­ingi 16. jan­úar 2003. Á sama hátt varpar skýrsla þessi að mati nefnd­ar­innar skýru og ótví­ræðu ljósi á hverjir stóðu að þeirri blekk­ingu, komu henni fram og héldu svo við æ síðan, ýmist með því að leyna vit­neskju sinni um raun­veru­lega aðkomu Hauck & Auf­häuser eða halda öðru fram gegn betri vit­und.“

Þetta kemur fram í nið­ur­stöðu­hluta skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis á aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaupum á 45,8 pró­sent hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­banka Íslands í jan­úar 2003.

Leyni­legir samn­ingar voru gerðir til að blekkja Íslend­inga til að halda að erlendur banki væri að kaupa í íslenskum banka, þegar kaup­and­inn var í reynd aflands­fé­lags­fé­lagið Welling & Partner, skráð á Bresku Jóm­frú­areyj­unum. Kaupþing í Lúx­em­borg fjár­magn­aði það félag og allur nettó­hagn­aður sem varð að við­skipt­unum, sem á end­anum var rúm­lega 100 millj­ónir dal, um 11,4 millj­arðar króna á núvirði, rann ann­ars vegar til aflands­fé­lags í eigu Ólafs Ólafs­sonar og hins vegar til aflands­fé­lags sem rann­sókn­ar­nefndin telur að Kaupþing eða stjórn­endur þess hafi stýrt. Sá hagn­aður sem rann til Ólafs var end­ur­fjár­festur í erlendum verð­bréfum fyrir hans hönd. Ekkert er vitað um hvað var um þann hagnað sem rann til hins aflands­fé­lags­ins, sem rann­sókn­ar­nefndin ályktar að Kaupþing eða stjórn­endur hans hafi haft yfir­ráð yfir.

Hagn­að­ur­inn varð til vegna þess að eign­ar­hlutur Hauck & Auf­häuser í Bún­að­ar­bank­anum, sem þá hafði sam­ein­ast Kaup­þingi, hafði hækkað mjög í verði frá því að hann var keyptur og þar til að hann var að fullu seldur. Ávinn­ingnum var skipt á milli Ólafs Ólafs­sonar og aflands­fé­lags sem rann­sókn­ar­nefndin telur að hafi verið stýrt af Kaup­þingi. Sam­an­dregið þá kom Ólafur Ólafsson með ekk­ert eigið fé inn í við­skiptin um kaup á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum. Hann hagn­að­ist hins vegar gríð­ar­lega á þeirri fléttu sem búin var til í bak­her­bergjum.

Þýskur þingmaður þátttakandi í fléttunni

Í þessu ferli voru íslensk stjórn­völd, almenn­ingur og fjöl­miðlar blekktir til að halda að Hauck & Auf­häuser hafi keypt hlut í íslenskum við­skipta­banka, þegar ljóst var að svo var ekki. Starfs­menn franska stór­bank­ans Societe General, sem létu að því liggja að sá banki hefði áhuga á að kaupa hlut­inn, tóku þátt í blekk­ing­unni og voru trún­að­ar­menn Ólafs Ólafs­sonar í gjörn­ingnum. Þegar fram­kvæmda­nefnd um einka­væð­ingu var kynnt að Societe General hefði áhuga á að vera hluti af S-hópnum sem ætl­aði að kaupa í Bún­að­ar­bank­anum, þá var voru starfs­menn franska bank­ans að blekkja hana fyrir hönd Ólafs.

Starfs­menn Hauck & Auf­häuser tóku líka þátt í flétt­unni. Peter Gatti, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Hauck & Auf­häuser, sem sett­ist meðal ann­ars í stjórn Bún­að­ar­bank­ans og var við­staddur þegar kaup S-hóps­ins voru kláruð, gengdi þar lyk­il­hlut­verki. Það gerði Martin Zeil, fyrr­ver­andi for­stöðu­mann lög­fræðis­viðs bank­ans og síðar þing­maður í Þýska­landi, kom einnig að mál­inu.

Rann­sókn­ar­nefndin segir í skýrslu sinni að hún telji rétt að taka fram að í gögnum hennar hafi ekk­ert komið fram um að aðrir ein­stak­lingar sem voru í for­svari fyrir aðila innan S-hóps­ins, þ.e. þeir Kristján Loftsson, stjórn­ar­for­maður Kers hf., Margeir Dan­í­els­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­vinnu­líf­eyr­is­sjóðs­ins, Finnur Ing­ólfs­son, fram­kvæmda­stjóri VÍS hf. og Axel Gíslason, fram­kvæmda­stjóri Eign­ar­halds­fé­lags­ins Sam­vinnu­trygg­inga, hafi á nokkru stigi haft vit­neskju um gerð, til­vist, áhrif eða síð­ari fram­kvæmd þeirra bak­samn­inga sem um ræðir í skýrsl­unni.

Af gögnum rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar telur nefndin einnig hafið yfir allan vafa að til­teknir starfs­menn Kaup­þings hf. og Kaupt­hing Bank Luxembourg S.A hafi ann­ars vegar átt beinan og veru­legan þátt í eða hins vegar haft vit­neskju um bak­samn­ing­anna og gerð þeirra. „Ljóst er að drög að bak­samn­ing­unum voru m.a. samin og full­gerð af Bjarka Diego, sem starf­aði sem lög­fræð­ingur í Kaup­þingi hf. á þessum tíma. Þá fylgd­ust ýmsir stjórn­endur Kaup­þings hf. og dótt­ur­fé­lags þess í Lúx­em­borg með gerð samn­ing­anna og tóku ákvarð­anir um ráð­staf­anir sem tengd­ust þeim og fram­kvæmd þeirra. Þar á meðal voru Hreiðar Már Sig­urðs­son, þáver­andi aðstoð­ar­for­stjóri Kaup­þings hf., Stein­grímur Kárason, yfir­maður áhættu­stýr­ingar í Kaup­þingi hf., og Kristín Pét­urs­dóttir, for­stöðu­maður fjár­stýr­ingar Kaup­þings hf., eins og rakið er í 5. kafla skýrsl­unnar.“

Ólafur Ólafsson lagði ekkert fé í kaupin á Búnaðarbankanum en hagnaðist um milljarða á blekkingarleiknum með þýska bankanum.
Ólafur Ólafsson lagði ekk­ert fé í kaupin á Bún­að­ar­bank­anum en hagn­að­ist um millj­arða á blekk­ing­ar­leiknum með þýska bank­anum.

Að mati nefnd­ar­innar liggur fyrir að Sigurður Ein­ars­son, þáver­andi for­stjóri Kaup­þings, fékk sendar upp­lýs­ingar í tölvu­póstum um lán­veit­ingu Kaup­þings til Welling & Partners og fyr­ir­mæli um sím­greiðslur vegna þess láns inn á reikn­ing félags­ins hjá Hauck & Auf­häuser. „Af gögnum rann­sókn­ar­nefndar verður hins vegar ekki ráðið með óyggj­andi hætti hvort Sigurður hafi á þeim tíma öðl­ast vit­neskju um gerð bak­samn­ing­anna og efni þeirra, , enda verður hvorki séð að hann hafi komið að ráð­stöf­unum þeim tengdum eða sent öðrum upp­lýs­ingar eða fyr­ir­mæli þar um. Í bréfi Sigurðar til nefnd­ar­innar, dags. 20. mars 2017, kvaðst hann því miður ekki geta aðstoðað nefnd­ina við að svara þeim spurn­ingum sem að honum væri beint.“

Nefndin telur ljóst að innan Kaup­þings í Lúx­em­borg hafi bæði­Magnús Guð­munds­son, annar fram­kvæmda­stjóra bank­ans, og Eggert J. Hilm­ars­son, lög­fræð­ingur hjá bank­anum, vit­neskju um gerð bak­samn­ing­anna, auk þess sem þeir tóku virkan þátt í ráð­stöf­unum sem þeim tengd­ust og síð­ari fram­kvæmd þeirra. Í því sam­bandi nutu þeir aðstoðar Karim Van den Ende hjá félag­inu KV Associates S.A. sem útveg­aði félagið Welling & Partners, auk þess að ann­ast ýmsa umsýslu í tengslum við félagið og fram­kvæmd bak­samn­ing­anna með þeim hætti sem rakið er í þess­ari skýrslu.“

Ekkert bendir til að einkavæðingarnefnd hafi vitað

Ekkert í gögnum rann­sókn­ar­nefndar bendir til þess að nefnd­ar­menn í fram­kvæmda­nefnd um einka­væð­ingu, starfs­menn nefnd­ar­innar, ráð­herrar sem sátu í ráð­herra­nefnd um einka­væð­ingu eða raunar nokkur annar full­trúi eða starfs­maður íslenskra stjórn­valda eða stofn­ana þeirra hafi á nokkru stigi haft vit­neskju um hver aðkoma Hauck & Auf­häuser að kaupum á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­banka Íslands hf. hafi verið í reynd og „þá með hvaða hætti staðið var að þeim málum bak við tjöldin af hálfu Ólafs Ólafs­sonar, Guð­mundar Hjalta­sonar, til­tek­inna starfs­manna Kaup­þings hf., svo og ein­stakra starfs­manna Kaupt­hing Bank Luxembourg S.A og Hauck & Auf­häuser.“

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, var einnig í lykilhlutverki í fléttunni samkvæmt skýrslunni.
Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, var einnig í lyk­il­hlut­verki í flétt­unni sam­kvæmt skýrsl­unni.

Þá hefur ekk­ert komið fram við rann­sókn nefnd­ar­innar sem bent gæti til þess að neinn þess­ara aðila hafi haft hug­mynd um að fjár­hags­legur ávinn­ingur af við­skiptum með þá hluti í Eglu hf. sem Hauck & Auf­häuser var í orði kveðnu eig­andi að hafi frá upp­hafi verið áskil­inn og í reynd á end­anum runnið til aflands­fé­lags í eigu Ólafs Ólafs­sonar og aflands­fé­lags­ins Dekhill Advisors Ltd., sem nefnin ályktar að hafi verið undir yfir­ráðum Kaup­þings.

Í skýrsl­unni segir um þetta félag: „Við rann­sókn nefnd­ar­innar komu ekki fram upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur síð­ast­nefnda félags­ins. Með vísan til þess að Kaupþing hf. lagði fram fjár­muni til þeirra við­skipta sem bak­samn­ing­arnir lutu að, bar í reynd alla fjár­hags­lega áhættu af bak­samn­ing­unum og að öðru leyti ann­ars sem rakið hefur verið í skýrsl­unni varð­andi þátt starfs­manna Kaup­þings hf. í gerð og síð­ari fram­kvæmd hinna leyni­legu bak­samn­inga telur nefndin þó að líkur standi til þess að Kaupþing sjálft eða aðilar því tengdir hafi verið raun­veru­legir eig­endur Dekhill Advisors eða notið þeirra fjár­muna sem þangað runnu. Í bréfi Hreiðars Más Sig­urðs­sonar sem vitnað er til hér að framan kvaðst hann aldrei hafa heyrt minnst á þetta félag fyrr en í bréfi nefnd­ar­innar. Svör Bjarka Diego og Magnúsar Guð­munds­sonar í fyrr­nefndum bréfum þeirra sama dag voru á sömu leið. Í svar­bréfum Sigurðar Ein­ars­sonar, Krist­ínar Pét­urs­dóttur og Stein­gríms Kára­sonar var spurn­ingum nefnd­ar­innar um Dekhill Advisors ekki svarað sér­stak­lega. Í bréfum Sigurðar Ein­ars­sonar, Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, Stein­gríms Kára­sonar og Magnúsar Guð­munds­sonar var hins vegar full­yrt að þeir hefðu aldrei sjálfir notið fjár­hags­legs ávinn­ings af við­skiptum sem tengd­ust þeim bak­samn­ingnum sem fyr­ir­spurnir til þeirra lutu að. Þá hafa þeir Lýður og Ágúst Guð­munds­synir svarað fyr­ir­spurnum nefnd­ar­innar um félagið á þann veg að þá reki ekki minni til atriða sem því tengj­ast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hauck&Aufhäuser

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að opin­bera Ólaf Ólafsson er ekki mann­rétt­inda­brot

Ólafur Ólafsson hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir það að Alþingi hafi skipað rann­sókn­ar­nefnd til að upp­lýsa um það að hann og sam­starfs­fé­lagar hans hefðu beitt ríkið, fjöl­miðla og almenn­ing allan stór­kost­legum blekk­ingum til að kom­ast yfir Bún­að­ar­bank­ann árið 2003. Ólafur telur að vinna og birt­ing á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafi vegið „alvar­lega að orð­spori og æru“ hans án...

Mest lesið undanfarið ár