Samherjasjóðurinn hefur gefið minna til góðgerðarmála en fyrirtækið borgar í mútur

Samherji hefur gefið mynd­ar­lega til góð­gerðar- og líkn­ar­mála í Eyja­firði í gegnum Sam­herj­a­sjóð­inn. Þær gjafir sam­svara hins vegar aðeins um helm­ingi af mútu­greiðslum.

Samherjasjóðurinn hefur gefið minna til góðgerðarmála en fyrirtækið borgar í mútur
Samherji gaf skíða­lyftu Samherji gaf Akur­eyr­ingum skíða­lyftu í Hlíð­ar­fjalla árið 2017 í gegnum Sam­herj­a­sjóð­inn. Kristján Þór Júl­í­us­son lét sig ekki vanta við afhend­ingu gjaf­ar­innar og sést hér milli þeirra Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar.

Styrkt­ar­sjóður Samherja hefur síð­ast­lið­inn ára­tug gefið nærri 670 millj­ónir króna til góðra mál­efna eins og mann­úðar- og líkn­ar­mála og til ýmissa íþrótta­fé­laga. Árið 2017 átti sjóð­ur­inn svo meðal ann­ars þátt í því að fjár­magna nýja skíða­lyftu í Hlíð­ar­fjalli á Akureyri. 

Upp­hæð­irnar sem Samherji hefur gefið til góðra mál­efna í gegnum þennan sjóð, Sam­herj­a­sjóð­inn, eru háar en þær eru samt umtals­vert lægri en þær upp­hæðir sem Samherji hefur greitt í mútur í Namibíu til að fá aðgang að fisk­veiði­kvóta í land­inu. 

Heild­ar­fjár­hæð­irnar sem Samherji hefur greitt í mútu­greiðslur, sem Samherji kallar „ráð­gjaf­ar­greiðslur“, að minnsta kosti í sumum til­fellum, til sex eign­ar­halds­fé­laga sem tengj­ast Tamson Fitty Hatuikulip, Sacky Shangala og James Hatukulipi, nema sam­tals rúm­lega millj­arði króna hið minnsta. 

Upphæðin sem Sam­herj­a­sjóð­ur­inn hefur gefið er svo rétt aðeins hærri en þær 640 millj­ónir króna sem Samherji hefur fengið borgað í sér­leyf­is­greiðslur frá Namibíu til eign­ar­halds­fé­lags síns, Mermaria Invest­ments, í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár