Bækur eru hversdagsleg nauðsynjavara

Samtímis því að Sverrir Norland og Cerise Fontaine eign­uð­ust dótt­ur­ina Ölmu fædd­ist hug­myndin um að reka lítið bóka­for­lag á Íslandi, meðal ann­ars svo þau gætu þýtt á íslensku eft­ir­læt­is­barna­bæk­urnar sínar og lesið þær fyrir dóttur sína. Forlagið nefndu þau AM for­lag og á vegum þess eru nýkomnar út þrjár bækur eftir Tomi Ungerer.

Bækur eru hversdagsleg nauðsynjavara
Sverrir og Cerise Þau eru nýflutt til Íslands, eftir ára­langa búsetu erlendis, ásamt Ölmu dóttur sinni. Mynd: Davíð Þór

Þegar þau Sverrir Norland og Cerise Fontaine áttu von á fyrsta barni sínu fóru þau að skoða barna­bækur mark­visst, ekki síst af þeirri ástæðu að þau voru búsett í New York, fjarri báðum móð­ur­málum barns­ins, frönsku og íslensku. Þau tóku fljót­lega eftir því að af nógu var að taka af fal­legum og áhuga­verðum gæða­bókum á frönsku og ensku sem þau áttu eftir að geta lesið fyrir barnið. Þeim fannst minna fram­boð af slíkum barna­bókum á íslensku. „Það eru vissu­lega margir að gefa út fal­legar bækur hér líka, en okkur fannst að við gætum einnig lagt okkar lóð á vog­ar­skál­arnar,“ segir Sverrir. 

Þau höfðu hins vegar á þeirri stundu ekki endi­lega hug á að stofna bóka­út­gáfu, sem þó varð raunin um tveimur árum síðar. „Þetta var ekki endi­lega draumur hjá okkur, að reka okkar eigin bóka­út­gáfu, en á sama tíma var það mjög rök­rétt skref, fyrir okkur bæði. Ég var …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár