Ólétta konan sem var flutt úr landi er verkjuð og á leiðinni á spítala

Albanska konan sem var send úr landi í fyrrinótt er verkjuð og á leiðinni á spítala í Albaníu. Hún var send í nítján klukku­stunda flug þrátt fyrir að læknir mælti gegn því að færi í löng flug. Konan skildi símann sinn eftir á Íslandi og vinkona hennar leitar hennar.

Albönsk kona sem gengin er 36 vikur á leið og var send úr landi í gærmorgun er mjög verkjuð og leiðinni á spítala í Albaníu. „Mér líður ekki vel eins og er og er á leiðinni á spítala,“ segir hún í samtali við Stundina. Hún kom til heima­landsins Albaníu seint í gærkvöldi eftir nítján tíma ferðalag en læknir á kvenna­deild Land­spítalans hafði mælt gegn því að hún færi í langt flug þar sem hún væri að glíma við stoðkerfis­vandamál.

Leitar fregnaMorgane Priet Maheo hjá sam­tök­unum Réttur barna á flótta og vin­kona albönsku kon­unnar, hefur reynt að fá fregnir af henni síð­ast­lið­inn sól­ar­hring.

Morgane Priet Maheo hjá samtökunum Réttur barna á flótta og vinkona albönsku konunnar, hefur áhyggjur af heilsu hennar. Konan átti sitt fyrra barn á 36. viku meðgöngu með keisara­skurði. „Ég var að hringja til þess að reyna að ná sambandi við hana vegna þess að ég er með smá áhyggjur. Ég er bara að reyna að fá fréttir,“ sagði Morgane í samtali við Stundina í gær, en þá hafði hún allan daginn reynt að fá fregnir af því hvar konan væri niður­komin og hver staða hennar væri.

Hringdi hún meðal annars ítrekað í síma konunnar í þessum tilgangi. Eftir nokkrar hringingar svaraði hinsvegar maður sem hafði verið nágranni hennar á gistiheimilinu þar sem hún hafði haldið til ásamt unnusta sínum og barni. „Hann sagði að hún hefði skilið símann sinn eftir,“ sagði Morgane sem á erfitt með að átta sig á því hversvegna hún hafi ákveðið að  taka símann ekki með sér. „Hún skildi símann sinn eftir á hótelinu, sem er skrítið, þar sem hún er með fullt af myndum inni í símanum,“ segir Morgane. 

Reyndi að fá fréttir

Íslenskir lögreglu­menn úr stoðdeild Ríkis­lögreglu­stjóra fylgdu konunni, sem er gengin 36 vikur á leið, úr landi í gærmorgun með flugvél Icelandair, ásamt unnusta hennar og tveggja ára barni. Ekki var tekið tillit til vottorðs frá lækni á kvenna­deild Land­spítalans þar sem fram kom að hún væri slæm af stoðkerfis­verkjum og gæti átt erfitt með langt flug. Sjónar­vottar á vegum No Borders samtak­anna og samtökunum Réttur barna á flótta fengu ekki að vera viðstaddir á meðan fólkið pakkaði niður í töskur í fylgd lögreglu­manna.

Morgane fór með konunni í skoðun hjá Mæðra­vernd á mánudags­kvöld en var hinsvegar ekki viðstödd þegar lögreglu­menn tóku fjöl­skylduna af gistiheimilinu þar sem þau höfðu haldið til síðastliðin mánuð. Hún reyndi í allan gærdag að fá fregnir af því hvar fjöl­skyldan væri niður­komin og hringdi meðal annars þýska ríkislögreglustjóraembættiðí þeim tilgangi. Þar var henni hinsvegar tjáð að það væri ekkert á skrá um að komið hefði verið með albanska ríkis­borgara til landsins. Líkt og fram hefur komið milli­lenti fjöl­skyldan í Berlín í gær, áður en þau héldu ferðinni áfram til Vínar­borgar í Austur­ríki og þaðan til Albaníu, en ferða­lagið tók nítján klukku­stundir.

Stundin greindi frá því í gær að þýskir lögreglu­menn hefðu tekið á móti fjöl­skyldunni í Berlín. Sjónar­vottur lýsti því hvernig íslenskir lögreglu­menn fylgdu fjöl­skyldunni um borð í vélina á Leifstöð á undan öðrum farþegum. Þá fylgdu þeir þeim til móts við þýska lögreglu­menn sem tóku á móti þeim í Berlín.

„Ég tékkaði mig bara inn eins og venju­legur maður og þegar kom að því að fara inn í vélina þá sá ég að það var einhver seinkun. Allt í einu birtast lögreglu­menn með tvo fullorðna einstaklinga og eitt barn á milli sín og fara fram fyrir röðina og beint inn í vél. Ég pældi einhvern veginn ekkert í þessu og vissi í rauninni ekkert hvað væri að gerast, en tók náttúru­lega eftir þessu eins og aðrir,“ sagði farþeginn sem áttaði sig síðar á því að um væri að ræða fólkið sem fjallað hefur verið um í fréttum.

Útlendinga­stofnun hefur staðhæft að konan hafi verið ferðafær, samkvæmt vottorði frá lækni á heilsu­gæslunni á höfuð­borgar­svæðinu. Í vottorði læknis á kvenna­deild Land­spítalans kemur hinsvegar fram að konan sé „slæm af stoðkerfis­verkjum í baki og ætti erfitt með langt flug.“

Fylgdust með atburðarrásinni

No Borders samtökin hafa fylgt málinu eftir frá upphafi og flutt fregnir af atburðar­rásinni. Elínborg Harpa Önundar­dóttir, meðlimur samtak­anna, fór upp á spítala þegar hún fékk fregnir af því sem væri að gerast. Þegar hún kom á vettvang þá var lögreglan nýfarin, en henni tjáð að lögreglu­ljósin hefðu blikkað lengi vel fyrir utan gluggan á meðan verið var að skoða konuna. „Starfs­mönnunum og konunni fannst þetta mjög óhuggulegt og lýstu yfir óþægindum varðandi þetta, að það væri beðið svona fyrir utan gluggann á meðan hún væri þarna með bumbuna úti og mælitækin á sér,“ segir Elínborg Harpa í samtali við Stundina.

Vott­orðið veitti vonKatrín Alda Ámunda­dóttir, með­limur No Borders, hefur fylgst náið með atburða­rásinni.

Elínborg segist hafa verið vongóð um að brott­vísun yrði frestað, eftir að þau voru komin með vottorð í hendurnar þar sem fram kom að konan gæti átt erfitt með langt flug. „Þrátt fyrir að hafi séð Útlendinga­stofnun og stoðdeild lögreglunnar gera allskonar hluti, sem geta einhvernveginn ekki átt að vera hluti af verk­laginu þeirra, þá einhvern veginn svona trúði ég þí samt að þetta gæti breytt einhverju.“

Katrín Alda Ámunda­dóttir, annar meðlimur No Borders, sem fylgdist náið með atburðar­rásinni, tekur undir með Elínborgu um að vottorðið hafi veitt ákveðna von. „Sérstaklega í ljósi þess að hún hafði ekki séð neinn annan lækni í einhvern tíma og því hefði enginn annar getað gefið út „fit to fly“ vottorð,“ segir Katrín Alda í samtali við Stundina. Annað hafi hinsvegar komið á daginn þegar í ljós kom að lögreglan hafi fengið annað vottorð frá lækni sem konan hafði ekki verið í sambandi við.

Hún segir aðgerðir lögreglunnar því miður ekki koma henni eða félögum þeirra svo mikið á óvart. „Hreint út sagt þá kom það mörgum okkar ekkert sérlega á óvart þar sem við höfum horft upp á ýmislegt sem lögreglan gerir á vegum Útlendinga­stofnunnar. Þetta var hins vegar mjög gróft dæmi um þessa valdnýðslu sem á sér oft stað.“

Sem fyrr segir þá er konan nú talsvert verkjuð og á leiðinni á spítala í Albaníu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár