Uppskeruhátíð tónlistarsenunnar, hjartahlýir sigurvegarar, drullumall og japanskar ástarsögur

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir 1.-14. nóv­em­ber.

Uppskeruhátíð tónlistarsenunnar, hjartahlýir sigurvegarar, drullumall og japanskar ástarsögur

Þetta og svo ótal margt fleira er á döf­inni næstu tvær vik­urnar.

Iceland Airwaves 2019

Hvar? Miðbær Reykja­víkur
Hvenær? 6.–9. nóv­em­ber
Aðgangs­eyrir: Frá 19.900 kr.

Iceland Airwaves er upp­skeru­há­tíð íslensku tón­list­ar­sen­unnar. Hátíðin byrj­aði sem eins dags veisla í flug­skýli árið 1999 og hefur verið árlegur við­burður síðan þá. Hún stækk­aði með hverju ári þangað til í fyrra, þegar dögum var fækkað úr fimm í fjóra. Þrátt fyrir það er hún enn mið­punktur við­burða­daga­tals flestra hljóm­sveita lands­ins sem kepp­ast um tæki­færið til að koma þar fram, enda laðar engin önnur hátíð jafn marga gesti og gagn­rýnendur til sín. Hægt er að sjá alla flór­una af meg­in­straums­tón­list lands­ins, bæði frá sjó­uðum sveitum eins og Of Monsters and Men, Hatara og Mammút, og nýgræð­ingum sem eru að feta sín fyrstu skref, auk erlendra stór­stjarna.

Salvador Sobral

Hvar? Harpa
Hvenær? 1. nóv­em­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: Frá 6.990 kr.

Hjarta­hlýi sig­ur­veg­ari Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva frá 2017, Salvador Sobral, vann með flest greidd stig í sögu keppn­innar. Hann á leið til Íslands þar sem hann er að kynna plötu sína, Paris-Lisboa, sem fjallar um borg­irnar og ferða­lag þeirra á milli. Platan er einnig undir áhrifum Wim Wenders-mynd­ar­innar Paris-Texas og er ýmist flutt á portú­gölsku, spænsku, ensku eða frönsku. 

Atómstöðin – endurlit

Hvar? Þjóð­leik­húsið
Hvenær? 1.–30. nóv­em­ber kl. 19.30
Aðgangs­eyrir: 6.200 kr.

Skáld­saga Nóbelskálds­ins Halldórs Laxness, Atóm­stöðin, var afar umdeild þegar hún kom út árið 1948, enda fjall­aði hún um her­stöðv­ar­málið, sem var þá mikið hita­mál í íslensku sam­fé­lagi. Í þess­ari leik­sýn­ingu skoðar ný kyn­slóð leik­hús­lista­fólks verkið í sögu­legu sam­hengi og skapar krassandi og ögrandi sýn­ingu, fulla af húmor. Hand­ritið er skrifað af Dóra DNA, barna­barni Halldórs Laxness, í sam­vinnu við leik­stjór­ann Unu Þor­leifs­dóttur.

Vatn og blóð

Hvar? Lista­safn Íslands
Hvenær? 2. nóv.–3. jan.
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Vatn og blóð er nýtt víd­eó­verk eftir Gjörn­inga­klúbb­inn, sem sækir inn­blástur í líf og list Ásgríms Jóns­sonar list­mál­ara. Í verk­inu mætir for­tíðin nútím­anum þar sem sköp­un­ar­kraft­ur­inn, inn­sæið og nátt­úran skipa stóran sess í óræðum heimi. Við und­ir­bún­ing verks­ins var sjá­andi feng­inn til að kom­ast í tengsl við Ásgrím sem tjáði sig um ork­una sem býr í list­inni. Sérstakt opn­un­ar­teiti er haldið 2. nóv­em­ber kl. 16.00.

Æsingur 2019 

Hvar: Norræna húsið
Hvenær? 3. nóv­em­ber kl. 14.00–18.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Æsingur er hald­inn í fyrsta skiptið í ár, en hann er furðu­sagna­há­tíð þar sem höf­undar, útgef­endur og annað bók­mennta­fólk hitt­ist og ræðir um þennan flokk íslenskra bók­mennta. Meðal ann­ars er rætt um sögu furðu­sagna á Íslandi og hvað það er við furðu­sögur sem laðar að sér höf­unda og les­endur. Þar að auki verður lesið úr verkum í vinnslu og haldið „PubQuiz“ í Stúd­enta­kjall­ar­anum.

Stórskáldið

Hvar? Borg­ar­leik­húsið
Hvenær? 3., 8., & 17. nóv­em­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 6.750 kr.

Leik­ritið Stór­skáldið fjallar um heim­ild­ar­mynda­gerð­ar­kon­una Rakel sem fer ásamt Andra, töku­manni sínum og elsk­huga, djúpt í Amazon-frum­skóg­inn í leit að föður hennar, Benedikt, sem auk þess að vera nóbelskáld er dauð­vona. Óuppgerð fjöl­skyldu­mál og fram­andi hita­sótt bland­ast sjálfu höf­und­ar­verki Bene­dikts í draum­kenndri og ærsla­fullri atburða­rás þar sem áreið­an­leiki heims­ins fellur í sundur.

Lífið - Stórskemmtilegt drullumall!

Hvar? Tjarn­ar­bíó
Hvenær? 3., 10., 17. & 24. nóv. kl. 13.00
Aðgangs­eyrir: 3.100 kr.

Þessi sýn­ing er fjöl­skyldu­vænn við­burður á mörkum leik­húss og mynd­listar. Sýningin er unnin með óvenju­legri aðferð þar sem sagan í verk­inu fær að kvikna út úr efni­viðnum sem not­aður er í sýn­ing­unni. Lífið var valin besta barna­sýn­ingin árs­ins 2015 á Grímunni, en sýn­ingin fjallar um sköp­un­ar­kraft, vin­áttu og hringrás lífs­ins, þar sem unnið er með mold.

Ungleikur

Hvar? Borg­ar­leik­húsið
Hvenær? 5. & 6. nóv­em­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 0–2.500 kr.

Ung­leikur var fyrst hald­inn árið 2012 í þeim til­gangi að gefa ungum skáldum og leik­urum vett­vang til þess að sýna vinnu sína, en við­burð­ur­inn hefur verið hald­inn árlega síðan þá. Í ár eru fimm örverk sýnd saman á einu kvöldi, öll frum­samin eftir til­von­andi íslensk leik­skáld. Meðal þeirra er verkið Gesta­þrautir eftir Ernu Mist, sem tæklar eign­ar­hald á raun­sögum flótta­manna.

Opin æfing með Sinfóníuhljómsveit Íslands

Hvar? Harpa
Hvenær? 7. & 28. nóv­em­ber kl. 9.30
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Þessar loka­æf­ingar fyrir almenna áskrift­ar­tón­leika Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands eru opnar almenn­ingi, en þar gefst gestum tæki­færi til að heyra dag­skrá tón­leika kvölds­ins að hluta eða heild og þannig glöggva sig á við­fangs­efni tón­leik­anna. Stilla þarf vænt­ingum í hóf þar sem um er að ræða vinnu­æf­ingar en ekki hefð­bundna tón­leika, en aðgangs­eyrir end­ur­speglar þá stað­reynd.

Japanskar ástarsögur

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 8.–11. nóv­em­ber
Aðgangs­eyrir: 800 kr. á hverja mynd.

Á þess­ari kvik­mynda­há­tíð verða fjórar mik­ils­metnar jap­anskar kvik­myndir til sýnis. Umfjöll­un­ar­efni mynd­anna er margs konar, eins og svo sem fjöl­skyldu­líf, borg­ara­leg firr­ing og fleira. Kvik­mynd­irnar sýna að fólk túlkar ást á mis­mun­andi vegu og birt­ing­ar­mynd hennar er marg­vís­leg. Kvik­mynd­irnar eru sýndar á japönsku með enskum texta. 

Nordic Affect

Hvar? Mengi
Hvenær? 9. nóv­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Fram­sækni tón­list­ar­hóp­ur­inn Nordic Affect snýr aftur til Mengis til að halda þessa stöku tón­leika, en á þeim kemur fram rús­sí­bani fyrir trú­leys­ingja, amma í háloft­unum, ljós­mynd og fjall sem breyt­ast í tón­verk og meira að segja ástin. Hópurinn flytur tón­smíðar eftir Báru Gísla­dóttur, Bergrúnu Snæ­björns­dóttur, Jobina Tinnem­ans, Maja Ratkje og Veronique Vöku.

úngl-úngl

Hvar? Ásmund­ar­safn
Hvenær? 9. nóv.–31. des.
Aðgangs­eyrir: 1.800 kr.

Ólöf Nordal er með tvær sýn­ingar í gangi hjá Lista­safni Reykja­víkur, Úngl og svo þessa, úngl-úngl, en sú síð­ar­nefnda er hluti sýn­ingar­aðar sem er helguð list í almanna­rými. Ólöf Nordal á fjölda þekktra verka í almanna­rými í borg­inni og víðar, en meðal þekkt­ari verka er Þúfa á Granda, Brí­et­ar­brekka í Þing­holts­stræti og Geirfugl við Ægisíðu. Sérstakt opn­un­ar­teiti er 9. nóv­em­ber kl. 16.00.

Ragnar Kjartansson, Kristín Anna og Davíð Þór

Hvar? Gljúfra­steinn
Hvenær? 10. nóv­em­ber kl. 16.00
Aðgangs­eyrir: 3.500 kr.

Ragnar Kjart­ans­son, Davíð Þór Jónsson og Kristín Anna Val­týs­dóttir halda tón­leika á Gljúfra­steini upp úr bók Kjartans Júl­í­us­sonar, Reg­in­fjöll að haustnóttum, en Halldór Laxness skrif­aði for­mála að bók­inni árið 1978. Í henni má finna frá­sagnir Kjartans um skemmti­göngur hans um reg­in­fjöll að síð­hausti og und­urfagrar frá­sagnir af draugum og heimaln­ingum.

Konan í speglinum

Hvar? Harpa
Hvenær? 14. nóv­em­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Þrjár Ingi­bjargir renna saman í eina konu, einn hug­ar­heim, einn hljóm. Tón­leika­upp­lifun þar sem ljóð Ingi­bjargar Har­alds­dóttur flétt­ast inn í töfr­andi hljóð­heim tveggja ann­arra Ingi­bjarga. Þar hljóma langspil, klar­inett, kalimbur, spila­dósir, píanó, raf­hljóð, harm­on­íum og raddir. Ingi­björg Fríða og Ingi­björg Ýr hafa unnið að tón­list­inni síð­ustu ár og hlutu í ár lista­manna­laun til að full­vinna tón­list­ina og gera klára til flutn­ings og upp­töku á plötu.

Yui Yaegashi

Hvar? i8
Hvenær? Til 7. des­em­ber
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Verk Yui Yaegashi eru smá­gerð og geta virkað lát­laus, en í þeim leyn­ast flókin mynstur og lög smá­at­riða, þar sem hár­fín notkun Yui á máln­ingu og lita­vali skapar lif­andi spennu á milli þess til­vilj­un­ar­kennda og þess skipu­lagða; á milli nákvæmni og óvæntra til­brigða við feg­urð, sem fá áhorf­and­ann til að skoða aftur, og aftur, enn nær. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár