Mótmælir hækkun leikskóla- og frístundagjalda á Seltjarnarnesi

Hækkun gjald­skrár fer gegn lífs­kjara­samn­ing­unum og er til komin vegna tap­rekst­urs og skulda­söfn­unar að sögn bæj­ar­full­trúa.

Mótmælir hækkun leikskóla- og frístundagjalda á Seltjarnarnesi

Bæjarráð Sel­tjarn­ar­nes­bæjar sam­þykkti að hækka gjald­skrár leik­skóla og frí­stundar um 10 pró­sent á fundi sínum í dag. Bæj­ar­full­trúi í minni­hluta segir hækk­un­ina koma verst við fólk í við­kvæmri stöðu.

Halli var á rekstri Sel­tjarn­ar­nes­bæjar upp á 264 millj­ónir króna í fyrra, eða um 324 millj­ónum frá áætlun. Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­son, bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar, segir gjald­skrár­hækk­un­ina vera við­brögð við tap­rekstri og stór­auk­inni skuld­setn­ingu und­an­farin ár.

„Þær aðgerðir sem gripið hefur verið til og þær til­lögur sem kynntar hafa verið snúa að því að hækka gjald­skrár eldri borg­ara, barna­fjöl­skyldna og húsa­leigu í félags­legu hús­næði bæj­ar­ins,“ segir Guð­mundur Ari.

„Staðan á rekstri bæj­ar­ins er ekki ákjós­an­leg en þetta er staða sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ber ábyrgð á að koma öllum Seltirn­ingum í. Það væri því mun mann­eskju­legri pólítík að allir bæj­ar­búar tækju þátt í við­snún­ingi bæj­ar­ins í sam­ræmi við tekjur sínar frekar en að hækka aðeins gjöld hjá hópum í við­kvæmri stöðu.“

Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­sonBæj­ar­full­trúi segir hækk­un­ina koma verst við fólk í við­kvæmri stöðu.

Guð­mundur Ari segir hækk­un­ina vera skýrt brot á yfir­lýs­ingu Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga vegna lífs­kjara­samn­inga. „Sam­bandið mælt­ist til þess að sveit­ar­fé­lögin myndu ekki hækka gjald­skrár sínar á árinu 2019 umfram það sem þegar er komið til fram­kvæmda,“ segir hann. „Einnig mælt­ist Sam­bandið til þess að á árinu 2020 hækki gjald­skrár sveit­ar­fé­laga um 2,5% að hámarki, en minna ef verð­bólga verður lægri. Hækkun sem þessi er skýrt brot á þess­ari yfir­lýs­ingu og er lík­leg til að setja kjara­við­ræður í enn meiri hnút.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár