Atvinnulygarar og apaheilar

Gamall brand­ari segir að besta leiðin til að sjá hvort stjórn­mála­maður sé að ljúga sé að fylgj­ast með vörum hans. Ef þær hreyf­ist sé stjórn­mála­mað­ur­inn senni­lega að ljúga þá stund­ina.

Atvinnulygarar og apaheilar

Það er ekk­ert nýtt að kjós­endur efist um heil­indi kjör­inna full­trúa en segja má að umræðan um lygar þeirra hafi náð ákveðnu hámarki und­an­farin ár. Donald Trump Banda­ríkja­for­seti er auð­vitað þekktur fyrir að fara frjáls­lega með stað­reyndir svo ekki sé meira sagt. Öll Brexit-her­ferðin í Bret­landi er í dag sögð hafa verið byggð á lygum og stjórn­mála­menn á borð við Boris Johnson verið dregnir fyrir dóm­stóla fyrir vikið. Á Íslandi full­yrða þing­menn fullum fetum að þeir hafi verið að spauga þegar þeir náð­ust á upp­töku ræða póli­tísk hrossa­kaup og dreifa óhróðri um kollega sína. Sela­hljóð væru lík­lega komin frá hjól­reiða­mönnum inni á knæpu.

Dæmin eru ótal mörg en rauði þráð­ur­inn er að sann­leik­ur­inn er orð­inn afstæður í stjórn­málum og menn taka sér fullan rétt til að túlka stað­reyndir eftir eigin höfði eins og um skoð­anir væri að ræða. Deil­urnar um hversu margir voru við­staddir emb­ætt­is­töku Trumps for­seta …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár