Staðsetning Vínbúða vinni gegn loftslagsstefnu stjórnvalda

Bryndís Har­alds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, vill að stað­setn­ing versl­ana ÁTVR sé í sam­ræmi við mark­mið sveit­ar­stjórna í umhverfis- og skipu­lags­málum. Vínbúð í Garðabæ var flutt úr miðbæ í útjaðar. Málið hefur fengið meiri umræðu á sam­fé­lags­miðl­inum Twitter en á Alþingi.

Staðsetning Vínbúða vinni gegn loftslagsstefnu stjórnvalda
Bryndís Har­alds­dóttir Þing­maður segir stað­setn­ingu Vínbúða ekki sam­ræm­ast lofts­lags­stefnu stjórn­valda. Mynd: xd.is

Áfengis- og tóbaks­verslun rík­is­ins (ÁTVR) ætti að hafa sam­ráð við sveit­ar­stjórnir þegar kemur að stað­setn­ingu Vínbúða vegna skipu­lags- og umhverf­is­sjón­ar­miða. Þetta er meg­in­efni frum­varps sem þrír þing­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna lögðu fram í des­em­ber en málið fékk enga umræðu á þingi.

Umræða um til­lög­una spratt hins vegar upp á sam­fé­lags­miðl­inum Twitter þriðju­dag­inn 4. júní. Vakti Björn Teitsson, fyrr­ver­andi for­maður Samtaka um bíl­lausan lífs­stíl, athygli á hug­mynd­inni. „Að færa áfeng­is­versl­anir úr „strip-malls“ í útjaðri borga og fá þær inn í hverfi myndi fækka óþarfa bíl­ferðum, draga veru­lega úr mengun, auka öryggi og heilsu og hafa styrkj­andi marg­föld­un­ar­á­hrif á aðra local-verslun innan hverfa. Augljós og árang­urs­rík aðgerð. Gera þetta strax!“

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Vinstri grænna, svar­aði með þeim hætti að hann harm­aði að frum­varpið hefði aldrei komið til umræðu. Björn bætti við að nú væri rekin sú stefna að hafa vín­búðir „í jaðri byggðar með enda­lausum bíla­stæðum, bein­línis hvetj­andi til akst­urs. Hvernig sam­ræm­ist það lofts­lags­stefnu rík­is­stjórnar?“

Bryndís Har­alds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins, kom þá inn í umræð­urnar. „Svarið er að það sam­ræm­ist hvorki lofts­lags­stefnu stjórn­valda né áherslum í skipu­lagi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.“

Vínbúð í Garðabæ flutt úr miðbænum í útjaðar

Upp­haf­legir flutn­ings­menn frum­varps­ins, auk Bryn­dísar, voru Ólafur Þór Gunn­ars­son, þing­maður Vinstri grænna, og Willum Þór Þórsson, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks. Frum­varpið komst ekki á dag­skrá þings­ins.

VínbúðinÞrýst er á að Vínbúðir verði stað­settar í íbúð­ar­hverfum með annarri verslun og þjón­ustu.

„ÁTVR hefur hingað til haft fullt frelsi til að stað­setja versl­anir sínar án þess að hafa þurft að hafa um það sam­ráð við hand­hafa skipu­lags­valds­ins, sjálf sveit­ar­fé­lögin,“ segir í grein­ar­gerð þess. „Þekkt er sú stað­reynd að sveit­ar­fé­lögin hafa ekki alltaf verið sátt við stað­setn­ingu versl­ana ÁTVR og hafa jafn­vel talið stað­ar­valið vinna gegn mark­miðum þeirra í skipu­lags- og umhverf­is­málum. Sem dæmi má nefna að sveit­ar­fé­lagið Garðabær hefur ítrekað kvartað yfir því að ÁTVR hafi ein­hliða lokað verslun sinni í miðbæ Garða­bæjar og hafi svo nokkrum árum síðar opnað nýja verslun í Kauptúni en ekki í miðbæ Garða­bæjar þrátt fyrir skýrar óskir sveit­ar­fé­lags­ins þar um.“

Bent er á að Reykja­vík­ur­borg hafi þá stefnu að efla verslun og þjón­ustu innan íbúða­byggða, svo dregið verði úr vega­lengdum, og að verslun með áfengi gæti ýtt undir fjölgun versl­ana í kjörnum hverf­anna. „Í ljósi þess að frum­varp um afnám einka­leyfis hefur ítrekað verið lagt fram og ekki fengið fram­gang á þing­inu er hér lagt til að sveit­ar­fé­lögin verði lög­bund­inn sam­ráðs­að­ili við val á stað­setn­ingu áfeng­is­versl­unar til að tryggja að sem flest sjón­ar­mið komi fram þegar stað­setn­ing er valin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár