Sekta vegna óskráðrar Airbnb gistingar

Fjöldi ábend­inga hefur borist í tengslum við átak ráð­herra ferða­mála vegna óleyfi­legrar heimagist­ingar.

Sekta vegna óskráðrar Airbnb gistingar

Yfir 3000 ábend­ingar um óleyfi­lega heimagist­ingu hafa borist í tengslum við átak ráð­herra ferða­mála í mála­flokknum sem hófst í fyrra. 59 mál hafa verið send lög­reglu til rann­sóknar og 61 máli hefur verið lokið með stjórn­valds­sektum. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Á árinu 2017 var áætlað að fjórar af hverjum fimm íbúðum í skamm­tíma­leigu væru starf­ræktar án til­skil­inna leyfa eða skrán­ingar. Nú áætlar sýslu­maður að fjöldi óskráðra gisti­staða hafi dreg­ist saman um tæpan þriðj­ung og tíðni skrán­inga hafi fjór­fald­ast. „Það er ánægju­legt að átakið um aukna heimagist­ing­ar­vakt hafi skilað þetta miklum árangri,“ segir Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ráð­herra ferða­mála.

Upphæð fyr­ir­hug­aðra og álagðra stjórn­valds­sekta nemur tæp­lega 100 millj­ónum króna. Kostn­aður ráðu­neyt­is­ins vegna herts eft­ir­lits var 64 millj­ónir króna. Gert er ráð fyrir að bætt skatt­skil og sekt­ar­greiðslur muni vega þann kostnað upp.

Samkvæmt skýrslu Íslands­banka um stöðu ferða­þjón­ustu sem nýverið kom út hafa umsvif Airbnb dreg­ist saman á síð­ast­liðnu ári og hlut­deild skráðrar gisti­þjón­ustu auk­ist. Mest voru umsvif Airbnb árið 2017 þegar aðeins 74 pró­sent seldra gistinótta voru í skráðu gisti­rými.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár