Mynd: Shutterstock

Sótt til saka fyrir að hjálpa fólki á flótta

Þeim sem aðstoða flótta­fólk og sýna því sam­stöðu er mætt af síauk­inni hörku í ríkjum Evrópu. Dæmi eru um að fólk sem bjarg­aði hund­ruðum manns­lífa sé sótt til saka fyrir svo­kall­aða sam­stöð­u­glæpi. Í nýlegri skýrslu sam­taka sem berj­ast gegn ras­isma er fjallað ítar­lega um þessa ugg­væn­legu þróun og meðal ann­ars vísað í nýlegt dæmi frá Íslandi.

Ríki Evrópu beita nú ákæru­vald­inu af auk­inni hörku gegn ein­stak­lingum sem fremja svo­kall­aða sam­stöð­u­glæpi [e. crimes of solida­rity] með því að veita flótta- og föru­fólki aðstoð og/eða sýna því sam­stöðu. Fólk er meðal ann­ars sótt til saka fyrir að bjarga lífi sjó­far­enda á flótta, fyrir að veita þeim húsa­skjól í landi, eða fyrir að reyna að koma í veg fyrir að þeim sé vísað úr landi. Þá eru dæmi þess að sjálf­boða­liðar mann­úð­ar­sam­taka séu ákærðir á grund­velli hryðju­verka­laga, símar þeirra hleraðir og/eða banka­reikn­ingar frystir. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu frá breskri stofnun sem berst gegn ras­isma í Evrópu, Institute for Race Relations, IRR, en skýrslan ber heitið When witnesses won’t be silenced: citizens’ solida­rity and criminalisation.

Dæmdar fyrir sam­stöð­u­glæpJórunn Edda og Ragn­heiður Freyja voru í byrjun apríl dæmdar í þriggja mán­aða fang­elsi, skil­orðs­bundið til tveggja ára, fyrir að standa upp í flug­vél …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár