Vilja „róttækar breytingar“ á heilbrigðiskerfinu: Aukna samkeppni, einkarekstur og einstaklingsábyrgð

Samtök atvinnu­lífs­ins vilja að sam­keppni um veit­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu ríki sem víð­ast. Nýta verði fjöl­breytt rekstr­ar­form og „útsjón­ar­semi ein­stak­linga“.

Vilja „róttækar breytingar“ á heilbrigðiskerfinu: Aukna samkeppni, einkarekstur og einstaklingsábyrgð
Halldór Benjamín, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, rit­aði umsögn­ina. Mynd: MBL / Eggert Jóhannesson

Samtök atvinnu­lífs­ins kalla eftir rót­tækum breyt­ingum á stjórn­kerfi heil­brigð­is­mála og vilja að byggt verði í stór­auknum mæli á sam­keppni, einka­fram­taki og „útsjón­ar­semi ein­stak­linga“ auk þess sem fólk verði hvatt til að „bera í rík­ari mæli ábyrgð á eigin heilsu“.

Áhersla á opin­beran reksturSvandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur sætt gagn­rýni úr ýmsum áttum fyrir að leggja áherslu á að heil­brigð­is­þjón­usta sé á hendi rík­is­ins fremur en einka­að­ila.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í umsögn SA, heild­ar­sam­taka atvinnu­rek­enda, um til­lögu Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra til þings­á­lykt­unar um heil­brigð­is­stefnu til árs­ins 2030.

Í umsögn­inni, sem er und­ir­rituð af Halldóri Benjamín Þor­bergs­syni fram­kvæmda­stjóra, er gagn­rýnt að til­lagan fjalli nær alfarið um opin­beran rekstur. „Virðist sem ætl­unin sé að byggja heil­brigð­is­þjón­ust­una nær ein­göngu á vegum hins opin­bera,“ skrifar hann og bætir við: „Það mun verða til þess að kostn­aður verði meiri en ella og er ekki til þess fallið að laða hingað hæft starfs­fólk frá námi og störfum erlendis ef atvinnu­veit­and­inn er ein­ungis einn.“

SA gagn­rýna að „ekki sé fjallað um sívax­andi og fyr­ir­sjá­an­leg útgjöld til heil­brigð­is­þjón­ustu, að ekk­ert sé fjallað um gildi sam­keppni, né um hlut­verk einka­rekst­urs, sjálfs­eign­ar­stofn­ana og ann­arra þeirra sem veita heil­brigð­is­þjónustu og að nánast ekk­ert sé fjallað um þátt lýðheilsu, end­ur­hæf­ingar og fyr­ir­byggj­andi ráðstaf­ana“. Þá kalla sam­tökin eftir „rót­tækum breyt­ingum á stjórn­kerfi heil­brigð­is­mála“ þar sem stofn­anir fái aukið sjálf­stæði og ábyrgð.

„Sam­keppni um veit­ingu heil­brigðis-
þjón­ustu þarf að ríkja sem víð­ast“

SA vilja að byggt sé í auknum mæli á „einka­fram­taki, nýsköpun, rann­sóknum og útsjón­ar­semi ein­stak­linga til að mæta sívax­andi eft­ir­spurn eftir heil­brigð­is­þjón­ustu“. Ríkið eigi að vera kaup­andi vel skil­greindrar þjón­ustu og nýta „sam­keppni og fjöl­breytt rekstr­ar­form til að ná fram hag­ræð­ingu, auk­inni hag­kvæmni og gæðum“. Samtímis þessu þurfi að auka heil­brigð­is­fræðslu og hvetja fólk til að til­einka sér heil­brigða lífs­hætti og „bera í rík­ari mæli ábyrgð á eigin heilsu“.

Fjár­magna skuli heil­brigð­is­þjón­ustu óháð því hver veiti þjón­ust­una. „Sam­keppni um veit­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu þarf að ríkja sem víð­ast,“ segir í umsögn­inni auk þess sem hvatt er til stór­átaks í heima­hjúkrun og heil­brigð­is­þjón­ustu aldr­aðra. „Það með er unnt að skapa grund­völl fyrir sam­keppni og aukið fram­boð á þjón­ustu við aldr­aða utan spít­ala ásamt hvata til að veita þjón­ust­una á hag­kvæman hátt.“ 

Vikið er að ýmsu öðru í umsögn­inni. Hér má nálg­ast hana í heild.

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár