Utanríkismálanefnd bað Jón Baldvin um umsögn vegna þriðja orkupakkans

Utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis leit­aði álits fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra sem hefur ítrekað verið sak­aður um kyn­ferð­is­lega áreitni og ósæmi­lega hátt­semi gagn­vart konum og stúlkum. Aðeins einn annar ein­stak­lingur fékk umsagn­ar­beiðni.

Utanríkismálanefnd bað Jón Baldvin um umsögn vegna þriðja orkupakkans

Jón Baldvin Hanni­bals­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, var beð­inn um að veita utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis umsögn um inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans.

Nefndin sendi 127 aðilum umsagn­ar­beiðnir þann 11. apríl síð­ast­lið­inn vegna umfjöll­unar um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­mála­ráð­herra þess efnis að ákvörðun sam­eig­in­legu EES-nefnd­ar­innar, nr. 93/2017, um breyt­ingu á IV. við­auka við EES-samn­ing­inn verði stað­fest.

Var einkum leitað til sam­taka, stofn­ana og sveit­ar­fé­laga, en auk þess voru tveir ein­stak­lingar beðnir um að veita umsögn. Þetta eru þau Jón Baldvin, sem lék lyk­il­hlut­verk við und­ir­ritun og lög­fest­ingu EES-samn­ings­ins á Íslandi, og Maria Elvira Mendez Pinedo, laga­pró­fessor og sér­fræð­ingur í Evr­ópu­rétti við Háskóla Íslands. 

Jón Baldvin hefur ítrekað verið sak­aður um kyn­ferð­is­lega áreitni en fjórar konur stigu fram í Stund­inni í jan­úar síð­ast­liðnum og lýstu fram­göngu hans.

Nýjasta atvikið mun hafa átt sér stað á heim­ili Jóns Baldvins og Bryn­dísar Schram, eig­in­konu hans, á Spáni síð­asta sumar en það elsta varðar meinta áreitni hans gagn­vart tveimur 13 og 14 ára nem­endum sínum þegar hann var kenn­ari í Haga­skóla.

Þá steig mág­kona hans fram í við­tali við Stundina og sagði frá meintri áreitni hans, auk þess sem nem­endur við Mennta­skól­ann á Ísafirði lýstu atvikum frá því hann var skóla­meist­ari þar.

Jón Baldvin hefur sagt frá­sagn­irnar upp­spuna sem runn­inn sé undan rifjum dóttur hans. Að því er fram kom í við­tali við Jón Baldvin í Silfri Egils í febr­úar vinnur hann nú að bók um ásak­an­irnar á hendur sér sem ber tit­il­inn Vörn fyrir æru: Hvernig fámennur hópur öfga­femínista hefur sagt rétt­ar­rík­inu stríð á hendur. Hefur hann skrifað fjölda greina þar sem hann varar við því að mann­orð fólks sé eyði­lagt, án dóms og laga, í nafni kynja­jafn­réttis.  

Jón Baldvin, sem nú er einn af tals­mönnum sam­tak­anna Orkan okkar, sendi Alþingi umsögn um inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans þann 17. apríl síð­ast­lið­inn. Í umsögn­inni seg­ist Jón Baldvin and­vígur einka­væð­ingu orku­fyr­ir­tækja og því að fjár­festar, inn­lendir jafnt sem erlendir, geti keypt virkj­ana­rétt og for­ræði yfir nýt­ingu auð­lind­ar­innar.

„Þetta er og hefur verið grund­vall­araf­staða okkar jafn­að­ar­manna varð­andi eign­ar­hald á og nýt­ingu þjóð­ar­auð­linda. Þessi afstaða er studd reynslu ann­arra þjóða, þar sem van­hugs­aðar til­raunir með einka­væð­ingu grunn­þjón­ustu af þessu tagi hafa skaðað almanna­hags­muni. Þess vegna vara ég ein­dregið við að inn­leiða lög­gjöf, sem til skamms tíma virð­ist vera mein­laus, en getur haft ófyr­ir­séðar og skað­legar afleið­ingar síðar,“ skrifar hann. 

Óttast fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra að þeir fyr­ir­varar sem rík­is­stjórnin hefur kynnt vegna orku­pakk­ans reyn­ist hald­litlir. Þá telur hann ljóst að sam­eig­in­leg yfir­lýs­ing núver­andi orku­mála­stjóra ESB og Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra muni reyn­ast mark­laus. Hann bendir á að EES-samn­ing­ur­inn veiti aðild­ar­ríkjum rétt til að hafna inn­leið­ingu lög­gjafar á til­teknu mál­efna­sviði ef hún er ekki talin eiga við. „Fyrir þessu eru mörg for­dæmi. Höfnun inn­leið­ingar hefur ekki í för með sér nein við­ur­lög. Afleið­ingin er sú, að mál­inu er vísað til sam­eig­in­legu EES-nefnd­ar­innar, þar sem samið er um málið. Þar með fást þeir einu fyr­ir­varar, sem öruggt hald er í.“

Loks segir hann að ef Evr­ópu­sam­bandið hætti að virða vilja kjós­enda í aðild­ar­ríkjum EES-samn­ings­ins sé hætt við að stuðn­ingur við EES- samn­ing­inn fari þverr­andi. „Þar með getur EES-samn­ing­ur­inn, með öllum þeim ávinn­ingi sem hann hefur tryggt Íslandi á und­an­förnum ald­ar­fjórð­ungi, verið í upp­námi. Á því bera þá þeir einir ábyrgð, sem vilja þröngva þriðja orku­pakk­anum upp á þjóð­ina – með ófyr­ir­séðum afleið­ingum og í trássi við þjóð­ar­vilj­ann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samningurinn hafi ekki verið borinn undir Alþingi
FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
Aðstoðarmaður Sigmundar réttlætir fullgildingu ECT-samningsins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræðuna“
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.
Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orkufjárfestinga
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár