Jón Baldvin gaf skýrslu hjá lögreglu í gær

Jón Baldvin Hanni­bals­son var kall­aður til skýrslu­töku hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í gær. Carmen Jóhanns­dóttir hefur kært hann fyrir kyn­ferð­is­lega áreitni.

Jón Baldvin Hanni­bals­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og sendi­herra, gaf skýrslu hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í gær, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. Carmen Jóhanns­dóttir hefur kært hann fyrir kyn­ferð­is­lega áreitni.

Jón Baldvin neit­aði að svara spurn­ingum Stund­ar­innar um málið þegar blaða­maður hafði sam­band við hann í gær.

Sjö konur hafa stigið fram undir nafni og sakað Jón Baldvin um kyn­ferð­is­legra áreitni. Alls hafa 23 konur birt sögur sínar á vef­síðu og halda frá­sagnir áfram að ber­ast í sér­stökum MeToo hópi kvenn­anna á Facebook. Jón Baldvin hefur ítrekað sagt að sög­urnar eigi allar rætur að rekja til veik­inda dóttur sinnar.

Nýjasta til­fellið varðar atvik þegar Carmen, 34 ára, og móðir hennar, vin­kona Jóns Baldvins og Bryn­dísar Schram, voru staddar í veislu á þaki heim­ilis hjón­anna í Andalúsíu á Spáni. Þær segja að Jón Baldvin hafi káfað á rassi Carmenar. „Ég horfði á þetta ger­ast,“ sagði móðir hennar í sam­tali við Stundina.

Jón Baldvin afskrif­aði hins vegar atvikið í við­tali í Silfrinu á RÚV á þeim for­sendum að hann hafi það vott­fest frá Hugrúnu Jóns­dóttur, sem einnig var við­stödd, að hún hefði ekki orðið vör við snert­ing­una. „Veislan á þak­inu var svið­sett. Hún er ósönn. Ég meina það, að það getur ekki verið neitt annað að baki þess­ari heim­sókn en að setja þetta á svið.“ Aðspurður hvers vegna móð­irin ætti að koma í heim­sókn til að „siga dóttur sinni“ á hann: „Það er ekki mitt að skýra það.“ Hann kvaðst einnig vera með bók um málið í und­ir­bún­ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár