Foreldrar ósáttir vegna myglu, kvíða og eineltis í skólanum – Bæjarstjóri segir gagnrýnina hafa „farið úr hófi fram“

For­eldra­fé­lagið í Varm­ár­skóla í Mos­fellsbæ hefur ítrekað lýst þungum áhyggjum vegna myglu í skóla­stofu, kvíða og ein­eltis meðal nem­enda og náms­ár­ang­urs undir með­al­tali.

Foreldrar ósáttir vegna myglu, kvíða og eineltis í skólanum – Bæjarstjóri segir gagnrýnina hafa „farið úr hófi fram“

For­eldrar og kenn­arar barna í Varm­ár­skóla eru ósáttir við skóla­stjórn­endur. Bæj­ar­stjóri Mos­fells­bæjar segir hins vegar gagn­rýni for­eldra á skóla­stjórn­endur Varm­ár­skóla vegna hús­næð­is­mála hafa farið úr hófi fram. 

Á fjöl­mennum fundi for­eldra barna í Varm­ár­skóla þann 1. apríl síð­ast­lið­inn var rætt um þungar áhyggjur for­eldra af líðan barn­anna, náms­ár­angri auk raka­skemmda í hús­næði. Að fundi loknum sendu for­eldrar ályktun á Harald Sverr­is­son, bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæjar, og skóla­stjórn­endur þar sem for­eldrar skora á bæinn og skóla­stjórn að fá utan­að­kom­andi fag­að­ila til að gera úttekt á skóla­starf­inu. 

Haraldur Sverr­is­son bæj­ar­stjóri segir hins vegar eina ástæðu þess að betri úrlausn náist ekki í hús­næð­is­málum vera sú að of mik­ill tími skóla­stjórn­enda fari í að svara eða bregð­ast við gagn­rýni af hálfu for­eldra. „Það hefur bara verið þannig að stór hluti af tíma stjórn­enda skól­ans und­an­farið hefur farið í að umgang­ast, bregð­ast við eða taka á gagn­rýni á þá stofnun. Ég verð að segja það að þótt gagn­rýni eigi rétt á sér þá finnst mér að hún hafi farið úr hófi fram,“ sagði Haraldur á bæj­ar­stjórn­ar­fundi 6. mars síð­ast­lið­inn.

„Ég verð að segja það að þótt gagn­rýni eigi rétt á sér þá finnst mér að hún hafi farið úr hófi fram“

Haraldur Sverr­is­sonHefur verið bæj­ar­stjóri frá árinu 2007. Hann telur skóla­stjórn­endur standa sig vel, en að for­eldrar valdi álagi á skóla­stjórn­endur með spurn­ingum sínum.

For­eldrar og for­eldra­fé­lag Varm­ár­skóla hafa gagn­rýnt skóla­stjórn­endur fyrir ýmis mál sem tengj­ast skóla­starf­inu. Einna helst má nefna gagn­rýni þeirra varð­andi við­brögð skól­ans við raka­skemmdum og myglu sem fund­ust í hús­næði skól­ans, en for­eldrar telja skól­ann hafa setið á upp­lýs­ingum sem varðar heilsu og vellíðan barna í skól­anum. 

Rakaskemmdir og mygla í húsnæði

Sjón­skoðun og raka­mæl­ing af hálfu verk­fræði­stof­unnar Eflu fór fram í júní 2017 á hús­næði skól­ans. Deild­ar­stjóri skól­ans hafði kallað eftir mæl­ingum þar sem starfs­fólk skól­ans hafði fundið til óþæg­inda á vissum svæðum í hús­inu. Auk þess hafi þakið lekið í tölu­verðan tíma og grunur var um myglu­sveppa­myndun. Við skoð­un­ina kom í ljós að tölu­verðar raka­skemmdir voru sjá­an­legar á þeim hlutum hús­næð­is­ins sem skoð­aðar voru.

Ein skóla­stofan kom sér­stak­lega illa út úr úttekt­inni en það er skóla­stofa 216. Efla tekur fram í minn­is­blaði að ekki sé hægt að mæla með notkun á rým­inu þar sem ekki er hægt að vita um ástand þess með fullri vissu. Vert er að minn­ast á að ekki var allur skól­inn skoð­aður í úttekt­inni.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár