Skúli notaði félag í skattaskjólinu Tortólu til að halda utan um hlutabréf sín

Á OZ-tíma­bilinu í kringum aldamótin fékk Skúli Mogensen um 1200 milljóna króna lán í ríkis­bankanum Lands­banka Íslands til að kaupa hlutabréf í ýmsum nýsköpunar- og tækni­fyrir­tækjunum. Fjár­festingarnar voru í gegnum félag á Tortólu og þurfti að afskrifa stóran hluta lánanna eftir að netbólan sprakk.

Tórtólafélag samkvæmt ráðgjöf Landsbankans
Tórtóla­fé­lag sam­kvæmt ráð­gjöf Lands­bank­ans Miðað við orð Skúla sjálfs var það rík­is­bank­inn Lands­banki Íslands sem ráð­lagði honum að stofna félag í skattast­kjól­inu Tortólu til að halda utan um hluta­bréf sín. Umsókn Tortóla­fé­lags­ins um íslenska kenni­tölu sést hér.

Skúli Mogensen, fjár­festir sem rær nú að því öllum árum að reisa flug­félagið WOW-air aftur við í kjölfar gjaldþrot þess, notaði eignarhalds­félag í skatta­skjólinu Tortólu til að halda utan um hlutabréf í hugbúnaðar­fyrirtækinu OZ og fleiri tækni­fyrirtækjum á árunum í kringum síðustu aldamót. Félagið hét Pallium International Limited og yfirtók Lands­banki Íslands félagið vegna skulda þess við bankann árið 2002. Skúli skuldaði Lands­bankanum um 1200 milljónir króna á þessum tíma. 

Fjallað er um Tortólufélagið í grein í Stundinni um viðskipta­sögu Skúla Mogensen. 

Viðskipta­saga Skúla í Lands­banka Íslands og notkun hans á umræddu Tortóla­félagi er hluti af stærri sögu um hvernig Skúli náði að efnast vel eftir að fyrir­tækið sem hann stýrði, OZ, hafði verið yfirtekið af Lands­banka Íslands árið 2002. Skúli fékk svo að kaupa eignir OZ aftur af Lands­banka Íslands eftir að bankinn hafði verið einka­væddur og seldur til nýrra eigenda, feðganna Björgólfs Guðmunds­sonar og sonar hans, Björgólfs Thors Björgólfs­sonar. Lands­bankinn hafði þá sett þessar eignir inn í kanadadískt dóttur­félag sem Skúli stýrði en svo eignaðist hann félagið, ásamt samstarfs­mönnum sínum hjá OZ, og stýrði félaginu til ársins 2008 þegar það var selt fyrir ótilgreint verð - fleiri milljarða króna - til finnska farsíma­risans Nokia sem á þeim tíma var eitt stærsta farsíma­fyrirtæki í heimi. 

  „Mig minnir en vil ekki fullyrða það að það hafi verið samkvæmt ráðgjöf Lands­bankans á þeim tíma að setja eignirnar í eignarhalds­félag“

Landsbankinn og Mossack Fonseca

Notkun Skúla á umræddu Tortóla­félagi hefur aldrei komið fram áður opinber­lega og hún vekur nokkra athygli. Lands­banki Íslands átti síðar eftir að verða stór viðskipta­vinur panömsku lögmanns­stofunnar Mossack Fonseca, eins og varð opinbert þegar Panama­skjölin rötuðu í fjölmiðla, og ráðlagði bankinn viðskipta­vinum sínum að stofna eignarhalds­félög í skatta­skjólum til að halda utan um fjár­festingar sínar. 

Ríkis­bankinn Lands­banki Íslands hafði hins vegar byrjað að veita slíka þjónustu fyrir einka­væðingu bankans, líkt og félag Skúla og fleiri sambærileg dæmi sýna fram á,  og beindi viðskipta­vinum sínum í þá átt að stofna félög í skatta­skjólum. 

Um stofnun félagsins segir Skúli: „Varðandi OZ þá er það rétt að Lands­bankinn tók það yfir 2002. Á þeim tíma hafði ég fjárfest töluvert í öðrum hátækni­fyrirtækjum bæði á Íslandi svo og erlendis.  Ég var sjálfur á þessum árum á stöðugu flakki og bjó um tíma í Banda­ríkjunum, Íslandi, Svíþjóð og Kanada. Mig minnir en vil ekki fullyrða það að það hafi verið samkvæmt ráðgjöf Lands­bankans á þeim tíma að setja eignirnar í eignarhalds­félag [Pallium International Limited] með þessum hætti og tóku þeir veð í því. Þess má líka geta að það tókst sem betur fer að endur­reisa OZ aftur með glæsibrag og þar með að gera upp við Lands­bankann samkvæmt uppgjöri okkar við þá á þeim tíma.“

Aflsáttur út á afskriftirBjörg­ólfs­feðgar fengu 400 millj­óna króna afslátt af Lands­banka Íslands út af afskriftum til Skúla Mogensen.

Útlánin til Skúla voru ekki færð niður

Nafn umrædds Tortólufélags kemur fram í minnis­blaði frá endur­skoðenda­skrif­stofunni PWC þarf sem fjallað er um afskriftar­þörf út af lánveitingum til Skúla en DV greindi frá umræddu minnis­blaði árið 2013. 

Í minnis­blaði PWC sagði að færa þyrfti útlán til Skúla meira niður: „Útlán til Skúla nema 666 m.kr. og bókfært verð yfir­tekins eigna­safns 517 eða 1183 m.kr. samtals. Framlag í afskriftar­sjóð er 100 m.kr. Til tryggingar yfirdráttar­skuldar og erlends láns, samtals að fjárhæð 666 m.kr. er talið safn hluta­bréfa í OZ og öðrum hátækni­fyrirtækjum að matsverði 520 milljónir. Óvissa um veðtöku er til staðar […] Eigna­safnið er metið á ætluðu markaðs­virði en raun­veruleg viðskipti með þessi bréf eru nánast engin.“

Lands­bankinn hafði sem sagt ekki fært niður útlánin töpuðu til Skúla Mogensen en slíkt hefði rýrt eignir bankans. Þetta er gagnrýnt í minnis­blaði endur­skoðendanna. „Hér virðist í fljótu bragði vera um að ræða tryggingar­vöntun og ofmat eigna að fjárhæð 400 m.kr. (146+254) en aðeins 100 m.kr. lagðar til afskriftar­sjóðs útlánsins. Þá er aðfinnsluverður losara­bragur á frágangi mála og afhendingu veðsettra bréfa og keyptra sem eykur enn á óvissu og áhættu tengdum þessum málum. Þess má geta að í vinnu­skjali útlána­eftirlits dags 27. nóv. 2001 er tryggingar­vöntun talin 401 m.kr. og gert ráð fyrir að framlag í afskrifta­sjóð þyrfti að vera 400 m.kr. Að auki er gerð sú athugasemd að mikil óvissa ríki um seljanleika væntanlegra veða.“

Afsláttur veittur út á afskriftir Skúla

Eins og kemur fram í grein Stundarinnar um viðskipta­sögu Skúla þá kom það í ljós eftir að Björgólfs­feðgar tóku við bankanum að eignasafn bankans, meðal annars veð á bak við lánveitingar til Skúla Mogensen, var ofmetið. Fyrir vikið fengu Björgólfs­feðgar 700 milljóna króna afslátt á Lands­banka Íslands og voru 400 milljónir króna af afslættinum út af ofmetnum lánum til Skúla Mogensen og áður­nefnds eignarhalds­félags Pallium International.

Um þetta sagði Valgerður Sverris­dóttir í svari á Alþingi í nóvember árið 2003:  „Já, það hefur verið gengið endanlega frá söluverði bankanna. Söluverð Lands­bankans vegna sölu til Samsonar, sem var 45,8% hlutur, var 139 millj. dollara, þ.e. um 12,3 milljarðar kr. miðað við gengi dollarans þegar gengið var frá samkomu­laginu um kaupin. Síðan hefur krónan styrkst gagnvart dollar. Það kemur hins vegar ekki að sök því að fjárhæðin er að fullu nýtt til að greiða niður erlend lán. Í samræmi við kaup­samninginn hafa sérstakir trúnaðar­endur­skoðendur farið yfir ólíkt mat samnings­aðila á afskrifta­þörf Lands­bankans. Niður­staðan af því mati er að lækka skuli kaupverð bankans um 700 millj. kr. í samræmi við kaup­samninginn.“

Á endanum greiddi eignarhalds­félag þeirra Björgólfs­feðga, Samson, því 11,6 milljarða króna fyrir bankann í stað 12,3 milljarða króna og varð íslenska ríkið því af 700 milljónum af kaup­verðinu, sem jafn­gildir 1,4 milljörðum króna að núvirði. Meira en helmingur af þessu var vegna þess að ríkis­bankinn Lands­banki Íslands hafði tekið mikla áhættu þegar bankinn lánaði Skúla Mogensen og eignarhalds­félagi hans meira en milljarð króna, meðal annars til að kaupa áhættusöm hlutabréf í tækni-og sprota­fyrirtækjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fall WOW air

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár