Húsnæðisliður brottfelldur á tímum raunlækkunar fasteignaverðs

Sér­eign­ar­sparn­að­ar­leiðin verður fram­lengd þvert á til­lögu sér­fræð­inga­hóps sem taldi hana helst gagn­ast þeim tekju­hærri. 80 millj­arða fram­lag rík­is­stjórn­ar­innar til lífs­kjara­samn­inga felst meðal ann­ars í lækkun tekju­skatts, hækkun á skerð­ing­ar­mörkum barna­bóta, leng­ingu fæð­ing­ar­or­lofs og upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis. Flestar aðgerð­irnar fela í sér veru­legar lífs­kjara­bætur til hinna tekju­lægri en nokkrar af breyt­ing­unum gætu orðið umdeildar.

Húsnæðisliður brottfelldur á tímum raunlækkunar fasteignaverðs
Stór áfangi Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra kynnti umfangs­mikið fram­lag stjórn­valda til svo­kall­aðra lífs­kjara­samn­inga sem gætu orðið til þess að friður ríki á vinnu­mark­aði út kjör­tíma­bilið. Mynd: Pressphotos.biz

Bann við verð­tryggðum jafn­greiðslu­lánum til meira en 25 ára, tekju­skatts­lækkun í þágu lág­tekju­fólks, leng­ing fæð­ing­ar­or­lofs í 12 mán­uði, hærri skerð­ing­ar­mörk barna­bóta og kraft­mikil upp­bygg­ing félags­lega hús­næð­is­kerf­is­ins.

Þetta er á meðal þeirra aðgerða sem rík­is­stjórnin hefur skuld­bundið sig til að ráð­ast í á kjör­tíma­bil­inu vegna kjara­samn­inga. Drífa Snædal, for­seti ASÍ, segir í viku­legum pistli í dag að þær aðgerðir sem rík­is­stjórnin kom með að borð­inu hafi verið lyk­ill­inn að því að hægt var að ljúka samn­ingum.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir í pistli í Frétta­blað­inu í dag að rík­is­stjórnin hafi lagt sér­staka áherslu á bætt kjör barna­fjöl­skyldna. „Það gerum við með skatt­kerf­is­breyt­ingum og nýju lág­tekju­þrepi sem lækkar skatt­byrði hinna tekju­lægri og hækkun barna­bóta,“ skrifar hún og bætir við: „Fjöl­skylda með tvö börn mun þannig hafa allt að 411 þús­und krónum meira úr að spila á ári vegna sam­an­lagðra breyt­inga sem rík­is­stjórnin gerir, þ.e. lækkun á tekju­skatti og hækkun barna­bóta.“

Sérfræðingahópur mótfallinn framlengingu

Eitt af því sem stendur til er að fram­lengja heim­ild til að ráð­stafa sér­eign­ar­sparn­aði inn á íbúða­lán um tvö ár til við­bótar þrátt fyrir að sér­fræð­inga­nefnd og stýri­hópur stjórn­valda um breyt­ingar á skatt­kerf­inu hafi lagst gegn því að það yrði gert.

„Nýting þess hefur einkum verið hjá þeim sem hærri tekjur hafa,“ segir í skýrslu sér­fræð­inga­hóps­ins sem kynnt var í febr­úar.

„Sérfræð­ingahópur og stýrinefnd telja að þetta úrræði sé ekki til þess fallið að styðja við fólk á húsnæð­is­mark­aði, sem hefur lágar tekjur, og gera því ekki tillögu um fram­hald þessa úrræðis.“ Úrræðið kost­aði hið opin­bera um 2 millj­arða króna í ár. 

Húsnæðisliðnum kippt út á tímum raunlækkunar fasteignaverðs

Þá verður lögum um vexti og verð­trygg­ingu breytt á þann veg að vísi­tala neyslu­verðs án hús­næðis verði grund­völl­ur verð­trygg­ing­ar á nýj­um neyt­enda­lán­um.

Þessi breyt­ing á að koma til fram­kvæmda árið 2020, sem er athygl­is­vert í ljósi þess að flest bendir til þess að fast­eigna­verð muni lækka að raun­virði næstu árin og hús­næð­islið­ur­inn vega upp á móti verð­bólgu­þrýst­ingi.

Í spá grein­ing­ar­deildar Arion banka, sem kom út 2. apríl, skömmu eftir fall WOW air, er gert ráð fyrir að raun­verð hús­næðis muni lækka veru­lega næstu þrjú ár. Þannig er ósenni­legt að brott­fall hús­næð­islið­ar­ins gagn­ist lán­tak­endum á samn­ings­tím­anum. 

Verðtryggingin í skotlínunni

Samkvæmt yfir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar verður frá og með 2020 óheim­ilt að veita verð­tryggð jafn­greiðslu­lán til neyt­enda til lengri tíma en 25 ára nema með ákveðnum skil­yrðum. „Rök­in fyr­ir þessu fel­ast fyrst og fremst í þeim ókost­um verð­tryggðra jafn­greiðslu­lána að verð­bót­um er bætt við höf­uð­stól láns­ins og greiðslu þeirra frestað þannig að eigna­mynd­un verður hæg­ari en ella og lík­ur á nei­kvæðu eig­in fé lán­taka aukast.“

Und­an­farin ár hafa vextir nýrra verð­tryggðra íbúðalána verið lægri en raun­vextir óverð­tryggðra lána. Greiðslu­byrði óverð­tryggðra lána er tals­vert hærri en verð­tryggðra lána í byrjun lánstíma og hafa því tekju­lágir og ungt fólk frekar átt þess kost að stand­ast greiðslu­mat og taka verð­tryggðu lánin við kaup á hús­næði.

Í nýlegu Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti Seðla­bank­ans kemur fram að und­an­farna mán­uði hafi orðið sú breyt­ing að heim­ilin færi sig í síauknum mæli yfir í óverð­tryggð hús­næð­is­lán með fasta vexti. „Það bendir til þess að íslensk heim­ili reyni í auknum mæli að tryggja sig fyrir mögu­legri verð­bólgu og hækk­andi vaxta­stigi, jafn­vel þótt það geri það að verkum að mán­að­ar­leg greiðslu­byrði verði hærri en ella í upp­hafi láns­tím­ans,“ segir í rit­inu. „Því má færa rök fyrir því að íslensk heim­ili hafi dregið þann lær­dóm af efna­hag­skrepp­unni 2008 að draga úr áhættu þegar óvissa eykst.“

Minna vægi verðtryggingar leiði til lægri raunvaxta

Hag­fræð­ing­ur­inn Ólafur Mar­geirs­son hefur fært fyrir því rök að með minna vægi verð­trygg­ingar megi hækka greiðslu­byrði þeirra lána sem bjóð­ast til skamms tíma, þrýsta þannig niður hús­næð­is­verði enn frekar en spáð er og í raun neyða Seðla­banka Íslands til að lækka vexti til að fyr­ir­byggja verð­hjöðnun. „Það er full­kom­lega eðli­legt að vænta þess að afnám verð­trygg­ingar lækki raun­vexti á Íslandi,“ skrifar hann í pistli á vef sínum.

Áhrifa­fólk innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar hefur horft mjög til rök­semda Ólafs sem hefur gagn­rýnt Seðla­banka Íslands og ýmsar við­teknar hag­fræði­hug­myndir harð­lega. Gylfi Magn­ús­son, dós­ent í hag­fræði og for­maður banka­ráðs Seðla­bank­ans, varar hins vegar við hug­myndum um að þvinga Seðla­bank­ann til að lækka vexti með því að skapa hættu á verð­hjöðnun. „Ef hug­myndin er að koma af stað alvar­legri kreppu á hús­næð­is­mark­aði til að lækka vexti þá finnst mér það væg­ast sagt létt­geggjuð hug­mynd“, segir hann á Facebook. 

Ný tegund húsnæðislána

Í yfir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar segir að unnið verði með aðilum vinnu­mark­að­ar­ins að því að finna skyn­sam­legar leiðir og útfærslur á þeim til að auð­velda ungu fólki og tekju­lágum fyrstu fast­eigna­kaup.

„Ein mögu­legra leiða er að veitt verði sér­stök lán (t.a.m. Íbúða­lána­sjóður) með þeim skil­málum að höf­uð­stóll­inn geti svarað til til­tek­ins hlut­falls af mark­aðsvirði eign­ar­innar“, segir í yfir­lýs­ing­unni. „Slík „hlut­deild­ar­lán“ bæru lægri vexti og afborg­anir fyrstu árin og gerðu tekju­lágum kleift að kom­ast yfir útborg­un­ar­þrösk­uld­inn þar sem krafa um eigið fé væri lægri. Hlut­deild­ar­eig­andi fengi end­ur­greitt þegar eig­andi seldi við­kom­andi íbúð eða greiddi lánið upp á matsvirði.“

Horft til þess að hrinda í fram­kvæmd til­lögum sem koma fram í nýrri skýrslu frá starfs­hópi félags­mála­ráð­herra um lækkun þrösk­ulds ungs fólks og tekju­lágra inn á hús­næð­is­markað. Frosti Sig­ur­jóns­son, rekstr­ar­hag­fræð­ingur og fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, leiddi þá vinnu en Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra kynnti nið­ur­stöð­urnar á frétta­manna­fundi í dag.

Meðal til­lagna starfs­hóps­ins eru tvær nýjar teg­undir hús­næð­is­lána; start­lán og eig­in­fjár­lán. „Með start­lánum myndi ríkið veita við­bót­ar­lán með háum veð­hlut­föllum og hag­stæðum vöxtum til afmark­aðra hópa sem eiga sér­stak­lega erfitt með að eign­ast hús­næði. Startlán verði háð því að um hag­kvæmt hús­næði sé að ræða sem er í sam­ræmi við þarfir lán­taka. Til­tek­inn hluti start­lána gæti verið tengdur nýjum íbúðum til þess að auka fram­boð nýs, hag­kvæms hús­næðis,“ segir í til­kynn­ingu á vef vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins. „Með eig­in­fjár­láni myndi ríkið veita lán sem geta numið 15-30% af kaup­verði og eru án afborg­ana. Eig­in­fjár­lán lækka bæði þrösk­uld útborg­unar og greiðslu­getu og gætu nýst t.d. þeim hópi sem ekki ræður við greiðslu­byrði start­lána. Eig­in­fjár­lán verði afmörkuð við hag­kvæmt hús­næði og hægt að nota þau til að skapa auk­inn hvata til bygg­ingar slíks hús­næðis. Höf­uð­stóll eig­in­fjár­lána tekur breyt­ingum með mark­aðsvirði íbúð­ar­innar. Lánið end­ur­greið­ist við sölu íbúðar eða eftir 25 ár. Lántaki má greiða lánið upp fyrr á matsvirði eða í áföngum og hefur hvata til þess því eftir fimm ár reikn­ast hóf­legir vextir á lánið.“

Á meðal ann­arra til­lagna er að tekju­lágir geti full­nýtt skatt­frjálsan hús­næð­is­sparnað, að skil­yrði um fyrstu kaup verði rýmkuð, að fresta megi afborg­unum af náms­lánum LÍN um fimm ár, að vaxta­bótum verði beint að tekju­lægri hópum og að afsláttur af stimp­il­gjaldi við fyrstu kaup verði 200 þús­und kr.

80 milljarða framlag ríkisins

Heild­ar­um­fang aðgerð­anna sem rík­is­stjórnin ræðst í á kjör­tíma­bil­inu vegna kjara­samn­ing­anna nemur um 80 millj­örðum. Þar munar mest um skatta­lækk­an­irnar og hækkun barna­bóta en sam­an­lagt geta breyt­ingar á tekju­skatts­kerfi og barna­bótum aukið ráð­stöf­un­ar­tekjur fjög­urra manna fjöl­skyldu um allt að 411 þús­und krónur á ári.

Stjórn­völd munu beita sér fyrir því að óverð­tryggð íbúða­lán verði val­kostur fyrir alla tekju­hópa. Þá verður veitt heim­ild til að ráð­stafa 3,5 pró­sentum líf­eyr­is­ið­gjalds skatt­frjálst til hús­næð­is­kaupa. Svo dæmi sé tekið gæti þannig sam­búð­ar­fólk með sam­tals 650 þús­und krónur í mán­að­ar­laun valið að nýta sér 273 þús­und krónur skatt­frjálst til öfl­unar hús­næðis. Þá munu ríki og sveit­ar­fé­lög stuðla að verð­stöð­ug­leika með því að hækka ekki gjald­skrár umfram 2,5 pró­sent árið 2020 og minna ef verð­bólga er minni. 

Hér má lesa plagg rík­is­stjórn­ar­innar um aðgerðir vegna lífs­kjara­samn­ings­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár