Eitt af því undarlegra sem gerst hefur á síðustu árum er að lýðræði og mannréttindi virðast eiga undir högg að sækja á furðu mörgum stöðum. Maður hefði haldið að þegar þær systur velsæld og friðsæld hefðu látið í vaxandi mæli að sér kveða á síðari hlutanum af „öld alþýðunnar“, hinni tuttugustu, þá liti fólk varla við öðru en lýðræði upp frá því.
Gróðrarstía fasismans
En svo virðist ekki vera. Lýðskrum færist í aukana. Uggvænleg tákn eru á lofti um að virðing fyrir mannréttindum sé ekki svo í gadda slegin sem við töldum. Í sumum lýðræðislöndum er daður stjórnmálaleiðtoga við fasisma orðið áþreifanlegt. Hvernig á þessu stendur er mikið rannsóknarefni. Menn trúðu því lengi að gróðrarstía fasismans væri fyrst og fremst í ríkjum þar sem félagsleg óreiða, efnahagshrun og stjórnmálaupplausn færu saman og nefndu jafnan Þýskaland millistríðsáranna því til sönnunar. Ekkert slíkt var þó til staðar …






















































Athugasemdir