Framferði gestsins „með öllu ósæmilegt“

Helgi Bern­ód­us­son skrif­stofu­stjóri Alþingis segir að hingað til hafi ekki þótt ástæða til að veita þeim sem koma á fund þing­nefnda sér­staka vernd. Atvikið í dag sé óvenju­legt og ósæmi­legt.

Framferði gestsins „með öllu ósæmilegt“

Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, segir að atvikið sem átti sér stað eftir opinn fund fasta­nefndar á Alþingi í dag sé „óvenju­legt og með öllu ósæmi­legt“.

Eins og fram hefur komið í fjöl­miðlum ýtti Baldvin Þor­steins­son, stjórn­ar­for­maður Eimskips og sonur Þor­steins Más Bald­vins­sonar eig­anda Samherja, við Má Guð­munds­syni seðla­banka­stjóra og hreytti í hann fúk­yrðum að loknum opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar um vinnu­brögð Seðla­bank­ans við rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins.

Helgi segir að í nefnda­húsi sé alltaf örygg­is­gæsla og aukin gæsla þegar opnir nefnda­fundir eru haldnir. „Þannig var það í dag, enda gestir í gesta­sætum. Atvikið sem þú gerir að umtals­efni átti sér stað eftir að fundi lauk. Þing­vörður var nærri en eins og mynd­band sýnir hafði hann ekki tök á því að hafa afskipti af fram­ferði eins gests­ins gagn­vart emb­ætt­is­manni sem kom fyrir nefnd­ina,“ segir Helgi í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið.

„Eins og mynd­band sýnir hafði hann ekki
tök á því að hafa afskipti af fram­ferði
eins gests­ins gagn­vart emb­ætt­is­manni
sem kom fyrir nefnd­ina“

„Það hefur fram að þessu ekki þótt ástæða til að veita þeim sem koma á fund nefnda sér­staka vernd, en þó eru til nokkur dæmi þar sem lög­regla var kvödd til fyrir fund og verið í húsi meðan á honum stóð. Engin ástæða þótti til slíks við­bún­aðar í dag.“

Helgi segir atvikið á nefnda­sviði í dag ein­stakt og með öllu ósæmi­legt. Að mati skrif­stof­unnar kalli það þó ekki á neinar var­an­legar breyt­ingar að því er varðar örygg­is­gæslu.

„Ég á ekki von á að gæslan verði hert að mun út af þessu atviki. Við metum alltaf stöð­una fyr­ir­fram, fylgj­umst með, og högum gæslu sam­kvæmt því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár