Halldór Benjamín fékk hlutabréfaskuldir afskrifaðar

Þegar Halldór Benjamín Þor­bergs­son, þáver­andi starfs­maður Askar Capital og núver­andi fram­kvæmda­stjóri SA, starf­aði hjá móð­ur­fé­lagi bank­ans, Milestone, fékk hann lán til hluta­bréfa­kaupa sem ekki var greitt til baka. Skuldir hans numu tæpum 30 millj­ónum og urðu hluta­bréfin verð­laus í hrun­inu. Halldór keypti kröf­urnar á félagið til baka fyrir ótil­greint verð.

Halldór Benjamín fékk hlutabréfaskuldir afskrifaðar
Stýrði fjár­fest­ingum í nokkrum heims­álfum Halldór Benjamín Þor­bergs­son stýrði fjár­fest­ingum Milestone í nokkrum heims­álfum og var einn af starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins sem fékk lán til að kaupa bréf í bank­anum sem síðar ekki var end­ur­greitt. Mynd: sa.is

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, núver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, fékk tæp­lega 25 millj­óna króna lán frá eign­ar­halds­fé­lag­inu Milestone afskrifað að mestu eftir að hann lét af störfum hjá fyr­ir­tæk­inu. Lánið var notað til að kaupa hluta­bréf í dótt­ur­fé­lagi bank­ans, Askar Capital. Halldór Benjamín segir í svörum sínum til Stund­ar­innar að engar per­sónu­legar ábyrgðir hafi verið fyrir umræddu láni. 

Árin fyrir efna­hags­hrunið 2008 vann Halldór Benjamín við fjár­fest­ingar hjá Milestone og Askar Capital og kom meðal ann­ars að við­skiptum í Evrópu og Banda­ríkj­unum gegnum dótt­ur­fé­lög í Milestone-sam­stæð­unni. 

Lánið var tekið af eign­ar­halds­fé­lagi í eigu Halldórs Benja­míns sem hét Hrímbakur ehf. árið 2007, en þetta félag var svo aftur í 100 pró­sent eigu Eign­ar­halds­fé­lags­ins Hrímbaks ehf. sem var í 100 pró­sent eigu hans sjálfs. Halldór Benjamín var einn af nokkrum starfs­mönnum Askar Capital, sem var í eigu Milestone, sem fékk lán til að kaupa hluta­bréf í bank­anum. 

„Þar af leið­andi er eina eign félags­ins, hluta­bréf í Askar Capital, verð­laus og hefur verið færð niður að fullu.“

Upp­lýs­ingar um lánið koma fyrir í árs­reikn­ingum þess­ara félaga og í vinnu­gögnum frá Askar Capital og Milestone sem Stundin hefur undir höndum en í skýrslu stjórnar í árs­reikn­ingi Hrímbaks ehf., sem varð gjald­þrota árið 2012, segir Halldór Benjamín: „Í maí árið 2009 til­kynnti Askar Capital að fyr­ir­tækið hefði lokið við fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu sína sem leiddi til þess að hlutafé félags­ins var fært niður að fullu. Þar af leið­andi er eina eign félags­ins, hluta­bréf í Askar Capital, verð­laus og hefur verið færð niður að fullu. Stjórn Hrímbaks ehf. hefur átt í við­ræðum við lán­ar­drottna sína en fram­tíð félags­ins er mjög óljós og þessum við­ræðum er ekki lokið.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár