Smári spurði um hagsmuni Miðflokksmanna – Sigmundur segir hann ljúga og fara með meiðyrði

Harkaleg orða­skipti á Alþingi: Smári McCarthy velti fyrir sér hvaða hagsmuna Miðflokk­urinn og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson væru að verja með málþófi við afgreiðslu á áríðandi frumvarpi um aflands­krónur.

Hvöss orðaskipti
Hvöss orða­skipti Mynd: Pressphotos.biz - (Geirix)

Þingmenn Miðflokksins hafa staðið fyrir málþófi gegn aflands­krónu­frumvarpi Bjarna Benedikts­sonar fjármála­ráðherra síðan kl. 16 í dag, en engir aðrir þingmenn hafa tekið til máls á þingfundi síðan þá.

Seðla­bankinn hafði hvatt þingheim til að afgreiða frum­varpið áður en gjalddagi tiltekins flokks ríkis­skuldabréfa rynni upp, sem var í dag 26. febrúar. Telur Seðla­bankinn hætt við að stórir aflands­krónu­eigendur sem taldir hafa verið líklegir til að endur­fjárfesta í íslenskum skulda­bréfum leiti út með peninga sína. Fyrir vikið muni Seðla­bankinn þurfa að eyða mun meiri forða en áður til að koma í veg fyrir gengis­fall krónunnar auk þess sem draga muni meira úr framboði erlends fjár á innlendum skuldabréfa­markaði en áður var reiknað með.

Í frumvarpi Bjarna Benedikts­sonar eru lagðar til breytingar á lögum um meðferð krónu­eigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum sem miða að því að rýmka verulega undanþágur frá takmörkunum á ráðstöfunar­rétti þeirra eigna sem falla undir lögin. Lagt er til að  heimildum til úttekta af reikningum sem háðir eru sérstökum takmörkunum samkvæmt lögunum verði breytt þannig að öllum aflands­krónu­eigendum verði gefið færi á að losa aflands­krónu­eignir sínar. Þá er lagt til að heimilt verði að uppfylla bindingar­skyldu með endur­hverfum viðskiptum við Seðla­banka Íslands.

Í harða brýnu sló milli Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar, formanns Miðflokksins, og Smára McCarthy, þingmanns Pírata, í upphafi umræðunnar í dag.

Smári ýjaði að því að Miðflokkurinn hyggði á málþóf við afgreiðslu frum­varpsins. Spurði Smári hvort Sigmundur ætti hagsmuna að gæta að því að vinna gegn málinu og ef svo væri ekki, hvaða hagsmuni Miðflokkurinn væri að reka með því að reyna að  kæfa málið með málþófi. Sigmundur brást hinn versti við, sagði framgöngu Pírata ógeð­fellda og að Smári bæði lygi og gerðist sekur um meiðyrði.

Umræða stendur enn yfir um frum­varpið sem sagt er eitt af loka­skrefum þess að afnema fjármagns­höft sem sett voru eftir hrunið. Benti Smári á að mikilvægt væri að afgreiða frum­varpið í dag því að sá ríkis­skuldabréfa­flokkur sem er undir væri að renna út á tíma. Hann benti á að mælenda­skrá bæri með sér að Miðflokkurinn hyggðist tefja málið með málþófi og spurði hvort Sigmundur Davíð hefði persónu­lega hagsmuni af því. 

„Það muna sjálfsagt flestir eftir því að sá maður sem talaði mest um hrægammana hér um árið reyndist vera einn þeirra sjálfur“

Sigmundur Davíð kom í pontu eftir þetta, þungur á brún. „Því virðast fá takmörk sett hversu framganga Pírata getur orðið ógeðfelld á þessu Alþingi. Ég held að það sé orðið löngu tímabært að siðanefnd fari að fjalla um Pírata og hvernig þeir starfa, ekki bara eineltis­kúltúrinn innan þeirra raða heldur líka framkomu þeirra við aðra þingmenn,“ sagði Sigmundur og bætti við að þær forsendur sem Smári gæfi sér væru fráleitar og rökleysa. „Ég hef engra hagsmuna að gæta hjá vogunar­sjóðum eins og hátt­virtur þingmaður á að geta gert sér grein fyrir en ég ítreka það, mér finnst framganga Pírata hér á Alþingi undan­farnar vikur, undan­farna mánuði og reyndar kannski dálítið mörg ár vera fyrir neðan allar hellur.“

Smári kom þá í ræðustól að nýju og sagði spurningu sína réttmæta, með vísan til Panama­skjalanna, upplýsinga um eignar­hald Sigmundar Davíðs á félaginu Wintris og tengslum þess félags við meðferð á aflands­krónum. „Það muna sjálfsagt flestir eftir því að sá maður sem talaði mest um hrægammana hér um árið reyndist vera einn þeirra sjálfur,“ sagði Smári og bætti því við að það væri eðlilegt og ekki eineltis­tilburðir að spyrja spurninga þegar þessar upplýsingar væru til staðar.

Sigmundur varð aftur til svars, og sínu reiðara nú en áður. „Þing­maðurinn sem talaði hér á undan mér gerðist sekur um meiðyrði. Hann laug og lagði sig fram við það að reyna að stimpla inn ógeð­fellda mynd sem að hann, því miður og alltof margir félagar hans, hafa á undan­förnum árum reynt að viðhalda og koma inn hjá fólki. Ég hef aldrei haft nein tengsl við nokkra hrægamma­sjóði og það hafa engir ættingjar mínr gert heldur,“ sagði Sigmundur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár