Ríkisstjórnin vill afnema 3 milljarða skattaafslátt tekjuhærri heimila

Núver­andi dóms­mála­ráð­herra og for­maður fjár­laga­nefndar lögð­ust gegn sams konar laga­breyt­ingu árið 2016, en afnám samnýt­ing­ar­heim­ildar skatt­þrepa er ígildi skatta­hækk­unar, aðal­lega á tekju­hæstu 20 pró­sent heim­ila.

Ríkisstjórnin vill afnema 3 milljarða skattaafslátt tekjuhærri heimila
Mála­miðlun Tillögur rík­is­stjórn­ar­innar fela í sér afnám skatta­af­sláttar sem hefur runnið að langstærstum hluta til tekju­hæstu 20 pró­senta heim­ila. Þetta hefur verið kynnt sem hálf­gert tækni­at­riði eða aðgerð í þágu kynja­jafn­réttis – frekar en skatta­hækkun á þá tekju­hærri, nokkuð sem ekki er víst að myndi mæl­ast vel fyrir í bak­landi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Pressphotos.biz

Áform rík­is­stjórn­ar­innar um að girða fyrir samnýt­ingu skatt­þrepa eru ígildi um 3 millj­arða skatta­hækk­unar sem lendir að mestu á tekju­hæstu fjöl­skyldum lands­ins.

Hækkunin sem leggst á heim­ili sem samnýta skatt­þrep verður að með­al­tali miklu meiri en sú lækkun skatt­byrðar sem sömu heim­ili njóta vegna nýs lág­tekju­skatt­þreps.

Að þessu leyti er full­yrð­ing Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra um að það sé „ekki verið að hækka skatt­byrð­ina neins staðar“ röng.

Áformin eru athygl­is­verð í ljósi þess að þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins lögð­ust ein­dregið gegn sams konar laga­breyt­ingu árið 2016.

Kostnaður vegna samnýtingar tvöfaldaðist frá 2015

Samnýt­ingu þrepa hjá sam­skött­uðum má rekja til upp­töku þrepa­skipts skatt­kerfis í tíð vinstri­st­jórn­ar­innar árið 2010. Fyr­ir­komu­lagið lýsir sér þannig að ef tekju­skatt­stofn ann­ars skatt­að­il­ans er yfir efstu þrepamörkum og skatt­stofn hins aðil­ans undir þeim mörkum reikn­ast hluti skatt­stofns tekju­hærri aðil­ans út frá skatt­prósent­unni í þrep­inu fyrir neðan sem tekju­lægri aðil­inn fullnýtir ekki. 

Axel Hallhag­fræð­ingur kynnti skýrslu sér­fræð­inga­hóps um end­ur­skoðun tekju­skatts og bóta­kerfa í gær.

Við fækkun skatt­þrepa úr þremur í tvö í árs­lok 2015 rýmkaði samnýt­ing­ar­heim­ildin umtals­vert. „Í kjölfar þess­arar rýmkunar hefur end­ur­greiðsla vegna sam­sköttunar meira en tvöfald­ast og er nú um 2% af öllum tekjum ríkis­sjóðs af tekju­skatti ein­stak­linga,“ segir í skýrslu sér­fræð­inga­hóps um end­ur­skoðun tekju­skatts og bóta­kerfa sem kynnt var í gær. 

Stjórnarþingmenn lögðust gegn tillögu Bjarna árið 2016

Bjarni Bene­dikts­son lagði til að samnýt­ing­ar­heim­ildin yrði afnumin í apríl 2016. Ráðu­neyti hans rök­studdi þá afstöðu meðal ann­ars með eft­ir­far­andi hætti:

Samsköttun­ar­reglan eykur ráðstöfun­ar­tekjur tekju­hærri heim­ila, að lang­mestu leyti heim­ila í hæstu tekjutíund. Þau heim­ili sem munu hljóta ábatann eru jafn­framt með mjög stóran hlut fjármagnstekna heim­ila. Hún gengur því gegn því almenna hlut­verki hins opin­bera að stuðla fremur að því að jafna tekju­dreif­ing­una en auka hana. Tekju­hærri heim­ili geta að auki nýtt sér sam­sköttun­ar­regl­una til fulls ef annar aðil­inn hefur tök á að taka allar tekjur sínar í gegnum sam­lagsfélag eða einka­hlutafélag.

Lögðust gegn sams konar breyt­inguSigríður Andersen, núver­andi dóms­mála­ráð­herra, og Willum Þór Þórsson, núver­andi for­maður fjár­laga­nefndar, lögð­ust gegn afnámi samnýt­ing­ar­heim­ildar skatt­þrepa árið 2016.

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis – þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins auk Guð­mundar Stein­gríms­sonar úr Bjartri fram­tíð – var ósam­mála þessum sjón­ar­miðum. „Afstaða meiri­hlut­ans er að mik­il­vægt sé að þessi heim­ild hald­ist inni og telur að þau sjón­ar­mið sem bent hafi verið á vegi ekki eins þungt og þeir hags­munir ein­stak­linga sem þarna búa að baki,“ sögðu stjórn­ar­liðar í nefnd­ar­á­liti um sum­arið. Meðal þeirra sem skrif­uðu undir þessi sjón­ar­mið voru Sigríður Andersen, núver­andi dóms­mála­ráð­herra, og Willum Þór Þórsson, núver­andi for­maður fjár­laga­nefndar. Þessi ein­arða afstaða meiri­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar varð til þess að samnýt­ing­ar­heim­ild skatt­þrepa var áfram við lýði.

Hámarksskattaafsláttur er nú hálf milljón á ári

Í dag er hámark­sí­vilnun vegna samnýt­ingar þreps um 500 þús­und krónur á ári. Til sam­an­burðar er rétt að hafa í huga að áætluð hámarkslækkun skatt­byrðar til heim­ila vegna inn­leið­ingar nýs lág­tekju­þreps sem á að ganga upp tekju­stig­ann er 162 þús­und krónur á ári.

Árið 2015 var heild­ar­kostn­að­ur­inn af samnýt­ingu skatt­þrepa um 1,2 millj­arðar en í fyrra var kostn­að­ur­inn kom­inn upp í 3,5 millj­arða. Samnýt­ingin er langal­geng­ust meðal tekju­hæstu sam­búð­ar­að­ila eins og sjá má á mynd­unum hér að neðan. 

Samnýting skatt­þrepa reikn­ast ekki í stað­greiðslu heldur við álagn­ingu tekju­skatts, að jafn­aði ári eftir að tekn­anna er aflað. „Þess vegna er reikn­aður tekju­skattur tekju­hærri ein­stak­lings í sam­sköttun, sem upp­fyllir við­mið um samnýtingu skatt­þrepa, lægri við álagn­ingu en sá tekju­skattur sem við­kom­andi hefur greitt í stað­greiðslu, að öðru óbreyttu,“ segir í skýrslu sér­fræð­inga­hóps­ins. „Þannig skap­ast krafa til end­ur­greiðslu frá ríkinu sem greidd er tekju­hærri ein­stak­lingnum nema upp­hæðin sem er til­komin vegna samnýtingar skatt­þreps nýtist til skuldajöfnunar eigi ríkið kröfu á annan eða báða aðila vegna van­gold­inna skatta eða gjalda.“  

Sagði ranglega að enginn fengi þyngri skattbyrði

Þegar Bjarni Bene­dikts­son kynnti skatta­til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar í síð­ustu viku fagn­aði hann því mjög að skattar yrðu ekki hækk­aðir á neina. „Það er ekki verið að auka skatt­byrð­ina neins staðar. Þetta finnst mér afskap­lega mik­il­vægt,“ sagði hann. 

„Það er ekki verið að auka skatt­byrð­ina neins staðar. Þetta finnst mér afskap­lega mik­il­vægt“

Eins og hér hefur verið bent á fela þó til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar í sér afnám skatta­af­sláttar sem hefur runnið að stærstum hluta til hátekju­heim­ila.

Þetta hefur verið kynnt sem hálf­gert tækni­at­riði eða aðgerð í þágu kynja­jafn­réttis frekar en skatta­hækkun á tekju­háa, nokkuð sem ekki er víst að myndi mæl­ast vel fyrir í bak­landi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 

Ef ekki væri fyrir þessa aðgerð myndi miklu stærri hluti þeirra 14 millj­arða sem rík­is­stjórnin eyrna­merkti tekju­skatts­lækkun renna til þeirra sem eru ofar­lega í tekju­stig­anum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Fréttir

Stefán Ólafsson um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Mest lesið

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár