Tekur sér Kristján Loftsson til fyrirmyndar og biður ráðherra um greiða

„Ég geri að sjálfsögðu ráð fyrir því að ég sé jafn mikils­metinn þjóðfélags­þegn og Krissi hvala­morðingi,“ segir Lára Guðrún Jóhönnu­dóttir sem skorar á heilbrigðis­ráðherra að fella niður lyfja­kostnað og komugjöld krabbameins­sjúklinga.

Lára Guðrún Jóhönnudóttir
Lára Guðrún Jóhönnu­dóttir Telur ekki óeðli­legt að fyrst hægt sé að breyta reglu­gerðum fyrir Kristján Loftsson og Hval hf. þá sé einnig hægt að gera það fyrir hana. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Það einhvern veginn hentar mér bara ekki lengur að greiða svona mikið í heilbrigðis­þjónustu til að fyrir­byggja það að drepast fyrir fertugt. Þess vegna hef ég farið fram á það við nokkra af þínum forverum í starfi að reglu­gerðinni verði breytt, svo hún harmoneri við það hvernig hlutirnir eru framkvæmdir í alvöru velferðar­samfélagi.“

Þetta segir Lára Guðrún Jóhönnu­dóttir í opnu bréfi til Svandísar Svavars­dóttur heilbrigðis­ráðherra sem hún birtir á Facebook. Lára Guðrún greindist með krabba­mein árið 2017 og hefur vakið athygli á þeim miklu fjárhags­byrðum sem lagðar eru á krabbameins­veika hér á landi.

Í dag birtir hún bréf til heilbrigðis­ráðherra, eins konar eftir­líkingu af tölvu­pósti sem Kristján Loftsson, eigandi Hvals hf., sendi Kristjáni Þór Júlíussyni sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra.

Frétta­blaðið greindi frá því í morgun að Kristján hefði sent nafna sínum bréf, beðið um að reglugerð um hvalskurð yrði breytt og orðið að ósk sinni. Bréfið hófst á orðunum „Sæll Kristján Þór, Mér þykir leitt að þurfa að hvabba á þér vegna eftir­farandi.“

Svona hljóðar opið bréf Láru Guðrúnar til heilbrigðisráðherra:

Kæra Svandís,

Mér þykir leitt að þurfa að hvabba á þér vegna eftir­farandi tittlinga­skíts en ég geri að sjálfsögðu ráð fyrir því að ég sé jafn mikils­metinn þjóðfélags­þegn og Krissi hvala­morðingi, en hann virðist hafa fundið töfra­formúluna þegar kemur að því að breyta reglu­gerðum sér í hag og sýnir okkur hinum gott fordæmi með því að eiga frumkvæði að persónu­legum breytingum til hins betra. Við viljum jú öll græða meiri pening og það einhvernveginn hentar mér bara ekki lengur að greiða svona mikið í heilbrigðis­þjónustu til að fyrir­byggja það að drepast fyrir fertugt.

Þess vegna hef farið fram á það við nokkra af þínum forverum í starfi að reglu­gerðinni verði breytt, svo hún harmoneri við það hvernig hlutirnir eru framkvæmdir í alvöru velferðar­samfélagi.

Tóku þeir vel í mála­leitan mína.

Þetta hefur staðið yfir í meira en tvö ár.

Í meðfylgjandi viðhengi hef ég sett inn breytingar þær, sem ég fer fram á að verði gerðar með rauðu í “track changes” á reglugerð sem snýr að lyfja­kostnaði og komu­gjöldum krabbameins­sjúklinga á Land­spítalanum. Ætlun mín var að afhenda forvera þínum, Óttarri Proppé þetta skjal, en fundi okkar var aflýst vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna.

Ég breytti lágmarks­greiðslu sjúklinga úr 73.950 kr. í 0 kr. fyrir komugjöld og læknis­þjónustu og einnig úr 62.500 kr. Í 0 kr. fyrir lyfja­kostnað. Gildir þá engu hvort um er að ræða niður­greiðslu á samheita­lyfi eða frumlyfi, enda treystum við sjúklingum til þess að bera ábyrgð á eigin heilsu og eiga kost á að velja það besta fyrir sig óháð fjárhagi. Annað er auðvitað mismunun.

Ef þú gætir ljáð mér hálftíma viðtal, þá væri ég þér mjög þakklát, en þá get ég farið yfir röksemdir mínar fyrir breytingar­tillögunum í ítarlegra máli.

Kveðja,
Lára

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár