Yfirlýsing Procar stenst ekki skoðun

Bíla­leigan Procar kennir fyrr­verandi starfs­manni um að hafa lækkað kílómetra­stöðu tuga bifreiða áður en þær voru seldar. Yfir­lýsingin stangast á við gögn sem Stundin hefur undir höndum.

Breytti sjálfur kílómetramælum
Breytti sjálfur kíló­metra­mælum Gunnar Björn Gunn­ars­son,fram­kvæmda­stjóri Procar, breytti sjálfur stöðu kíló­metra­mæla bíla fyr­ir­tæk­is­ins, þvert á það sem hann hélt fram við frétta­skýr­inga­þátt­inn Kveik.

Full­yrðing bíla­leigunnar Procar um að hætt hafi verið árið 2015 að eiga við kíló­metramæla í bílum sem fyrir­tækið hugðist selja er röng. Þetta sýna gögn sem Stundin hefur undir höndum. Umrædd gögn eru samningar um útleigu á bílum en í þeim var kílómetra­staða bílanna skráð. Á þeim kemur fram að í kíló­metramælum á þriðja tug bíla, hið minnsta, var breytt og þeir færðir niður árið 2016. 

Forsvars­menn fyrirtæksins hafa skellt skuldinni á fyrr­verandi starfs­mann, en gögn sýna fram á að tveir lykil­starfsmenn sem framkvæmdu niður­færslurnar eru enn starfandi, og er annar þeirra framkvæmda­stjóri fyrir­tækisins.

Kveikur greindi frá því í gær að bíla­leigan Procar hefði lækkað kílómetra­stöðu tuga bíla um allt að 105 þúsund kílómetra áður en þeir voru seldir og þannig aukið virði þeirra með því að blekkja kaupendur. Fyrr­verandi starfs­maður fyrir­tækisins aflaði um nokkurt skeið gagna sem sýndu fram á umrædda háttsemi og afhenti hann Kveik þau gögn. Stundin hefur einnig undir höndum gögn sem sýna athæfi lykil­starfsmanna bíla­leigunnar. Gögnin stangast í megin­atriðum á við yfir­lýsingu Procar í gærkvöldi. 

Framkvæmdastjórinn færði sjálfur kílómetramæla niður

Í umfjöllun Kveiks í gær kom fram að ítrekað hefði verið óskað eftir viðtali við Gunnar Björn Gunnarsson, forstjóra Procar, vegna umfjöllunarinnar. Gunnar Björn hafnaði viðtali og sagðist ekki kannast við að kílómetra­stöðu bíla hefði verið breytt. Í umfjöllun Kveiks kom fram að gögnin sýni að hans eigin aðgangur að kerfi bíla­leigunnar hefði verið notaður til að skrá lækkaða kílómetra­stöðu. Gögn sem Stundin hefur undir höndum sýna einnig að svo sé.

„Sá sem bar ábyrgð á þessari framkvæmd hefur hætt störfum og kemur ekki lengur nálægt rekstri fyrir­tækisins.“

Í yfir­lýsingu sem bíla­leigan Procar sendi frá sér í gærkvöldi, eftir að þáttur Kveiks var sýndur, er beðist afsökunar á þessari hegðun. Þar segir einnig: „Þessum inngripum í aksturs­skráningu bílanna var hætt árið 2015. Sá sem bar ábyrgð á þessari framkvæmd hefur hætt störfum og kemur ekki lengur nálægt rekstri fyrir­tækisins.“

Gögn sem Stundin hefur undir höndum sýna að þetta er rangt í tveimur megin­atriðum.

Annars vegar var stöðu kíló­metramæla bíla Procar breytt og hún færð niður langt fram á árið 2016, að minnsta kosti fram í maímánuð það ár.

Í yfir­lýsingunni kemur sem fyrr segir fram að sá sem hafi borið ábyrgð á þessari framkvæmd hafi hætt störfum hjá fyrir­tækinu og komi ekki lengur nálægt rekstri þess. Meðal þeirra sem endur­stilltu kíló­metramæla í bílum fyrir­tækisins voru hins vegar Gunnar Björn, þáverandi og núverandi framkvæmda­stjóri þess. Þá sýna gögn að í á þriðja tug tilfella, hið minnsta, breytti starfs­maður fyrir­tækisins, Smári Hreiðarsson, stöðu kíló­metramæla bílanna á árinu 2016. 

Smári er, eftir því sem næst verður komist, ennþá starfs­maður Procar. Hann var hins vegar ekki við á bíla­leigunni þegar Stundin hafði samband í morgun. „Hann er mjög upptekinn,“ sagði starfs­maður bíla­leigunnar.

Kílómetrastaða bíla fölsuð svo nam 100 þúsund kílómetrum

Þá er full­yrðing Procar í yfirlýsingunna um að í flestum tilfellum hafi niður­færsla kíló­metra­mælanna numið 15 til 30 þúsund kíló­metrum verulega hæpin. Stundin fór yfir gögn um tuttugu bíla þar sem kíló­metramælum var breytt á árinu 2016. Af bílunum tuttugu voru tveir þar sem breyting á kílómetra­stöðu var á bilinu 15 til 30 þúsund kíló­metrar og ein þar sem breytingin var lægri, 9 þúsund kílómetra niður­færsla. Í hinum sautján tilfellunum var um að ræða meiri breytingu og í sumum tilfellum var kílómetra­fjöldinn færður niður um nálægt 100 þúsund kíló­metrum. Stærsta breytingin sem gerð var á kílómetra­stöðu mælis var framkvæmd á bíl af tegundinni Suzuki Jimny, 13. apríl 2016 af Smára Hreiðars­syni. Þar var kílómetra­staða mælis bílsins færð úr 170.347 eknum kíló­metrum og niður í aðeins 64.589 ekna kílómetra. Alls nam niður­færslan því 105.758 kíló­metrum, sem jafn­gildir rúmlega 79 ferðum um hringveginn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár