Fjarlægja stæðin sem hylja verk Gerðar

Borgin hefur sam­þykkt að fjar­lægja bíla­stæði við Toll­húsið svo lista­verk Gerðar Helga­dóttur verði sýni­legra.

Fjarlægja stæðin sem hylja verk Gerðar

Bíla­stæðum verður fækkað veru­lega við Tryggva­götu þannig að lista­verk Gerðar Helga­dóttur á Toll­hús­inu verði betur sýni­legt. End­ur­hönnun göt­unnar var sam­þykkt í skipu­lags- og sam­göngu­ráði Reykja­víkur á mið­viku­dag.

Gert er ráð fyrir 150 millj­ónum króna vegna fram­kvæmda við Tryggva­götu. Gatan verður ein­stefna til vest­urs, lengra en nú er fyrir, þannig að ein­stefnu ljúki við gatna­mótin við Grófina. Síðasta sumar var gatan end­ur­nýjuð milli Lækj­ar­götu og Póst­hús­strætis og er gert ráð fyrir sam­bæri­legri útfærslu og þar. Gatnamót verða upp­hækkuð með stein- og hellu­lögn og gert er ráð fyrir gróðri.

„Tillagan gerir ráð fyrir að því að skapa rými fyrir fólk,“ segir í gögnum borg­ar­innar. „Það er gert með því að að fækka bíla­stæðum veru­lega. Í dag eru um 38 stæði í Tryggva­götu á þessum kafla, þar af 24 ská­stæði við Toll­húsið. Lögð verður áhersla á að tryggja stæði fyrir fatl­aða á fleiri en einum stað. Einnig skap­ast rými til að taka betur til­lit til vöru­dreif­ingar en er í dag.“

Við afgreiðslu máls­ins í skipu­lags- og sam­göngu­ráði lagð­ist Baldur Borg­þórs­son, full­trúi Mið­flokks­ins, gegn sam­þykkt þess. „Um er að ræða þjón­ustu sem er mikið sótt af borg­urum jafnt sem fyr­ir­tækjum og mun útrým­ing bíla­stæða við húsið valda miklu ónæði fyrir við­skipta­vini Toll­stjóra­emb­ætt­is­ins,“ segir í bókun hans.

Meiri­hlut­inn bendir á að bíla­stæðum í mið­borg­inni fjölgi, en fækki ekki, með til­komu nýs bíla­stæða­húss. „Norðan Tryggva­götu, við mósaíkverk Gerðar Helga­dóttur, er sól­ríkt svæði sem mun nýt­ast til úti­veru fyrir fólk í stað bíla,“ segir í bókun meiri­hlut­ans. „Því skal einnig haldið til haga að við hlið Toll­húss­ins, undir Hafn­ar­torgi, opnar innan skamms bíla­kjall­ari með 1.100 bíla­stæðum auk þess sem áfram verða bíla­stæði í götu­kanti sunnan Tryggva­götu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár