Fyrrverandi ráðherrar: Jón Baldvin með „samsæriskenningar og reiði“

Jón Sigurðsson, fyrr­verandi formaður Framsóknar­flokksins og seðla­bankastjóri, segir Jón Baldvin Hannibalsson hafa skaðað stöðu sína með viðtali í Silfrinu. Svavar Gestsson, fyrr­verandi ráðherra, segir Jón Baldvin draga upp óraunhæfa mynd af femínisma sem pólitísku vandamáli.

21 á Hringbraut
21 á Hring­braut Ráð­herr­arnir fyrr­ver­andi sögðu Jón Baldvin hafa verið reiðan í við­tali í Silfrinu.

Jón Baldvin Hannibalsson er „í nauðvörn“ vegna ásakana um kynferðis­lega áreitni, að mati Svavars Gests­sonar, fyrr­verandi ráðherra og formanns Alþýðu­banda­lagsins. Segir hann mál Jóns Baldvins líta „hroðalega“ út.

Svavar og Jón Sigurðsson, fyrr­verandi formaður Framsóknar­flokksins og seðla­bankastjóri, voru í viðtali hjá Sigmundi Erni Rúnars­syni í þættinum 21 á Hringbraut á þriðjudag. Ræddu þeir viðtal við Jón Baldvin í Silfrinu á RÚV síðastliðinn sunnudag.

„Þetta mál Jóns Baldvins er alveg hroðalegt eins og það lítur út,“ sagði Svavar. „Maður finnur til með þessu fólki eins og henni Aldísi [dóttur Jóns Baldvins]. Það er alveg nístandi að hugsa um hana. Það getur enginn nema reiður maður sett hlutina upp eins og hann gerði, að fólk hafi verið að opna þessa hluti bara af því að það vildi ekki að einhver bók kæmi út. Hvurs lags voðalegir hlutir eru þá í þessari bók?“

Sagði Svavar að málið væri greini­lega hvergi nærri búið þar sem Jón Baldvin ætlaði að skrifa bók um það. „Þegar leiðtogi jafnaðar­manna, eins og hann hefur titlað sig sjálfur oftar en allir aðrir, finnst mér, þegar hann fer að tala um femínisma, reyndar öfga­femínisma, sem sérstakt pólitískt vandamál, það er ansi mikið sagt. Hann er í nauðvörn,“ bætti hann við.

Jón Sigurðsson sagðist eiga erfitt með að tala um málið sem gamall vinur og velunnari Jóns Baldvins. „Í viðtalinu þá skaðaði hann frekar sjálfan sig með því að gleyma sér og koma með samsæris­kenningar og reiði,“ sagði Jón. „Ég held að hann sé laskaðri eftir sjónvarps­viðtalið en fyrir það, vegna þess að hann er sjálfur að taka upp ýmis einkamál inn á opinberan vettvang þar sem þau eiga eiginlega ekki heima. Hann er kannski að einhverju leyti að ögra þessum konum til þess að segja meira en þær ella hefðu sagt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár