Jón Bald­vin spyr hvort endur­skoða eigi ör­orku­greiðslur til dóttur sinnar

Jón Baldvin Hanni­bals­son beinir spjótum sínum að Sigmari Guð­munds­syni, frétta­manni á RÚV, í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu. Þá fjallar hann ítar­lega um meint veik­indi dóttur sinnar.

Jón Bald­vin spyr hvort endur­skoða eigi ör­orku­greiðslur til dóttur sinnar

Jón Baldvin Hanni­bals­son skrifar heil­síðu­grein í Morg­un­blaðið í dag þar sem hann segir ástæður þess að dóttir hans hafi sakað hann um kyn­ferð­is­brot vera þær að hún kenni honum um nauð­ung­ar­vist­anir á geð­deild. Þá spyr hann hvort end­ur­skoða eigi örorku­mat og greiðslur til hennar, fyrst hún sé rang­lega greind með geð­hvarfa­sýki.

Sjö konur hafa stigið fram undir nafni og sakað Jón Baldvin um kyn­ferð­is­legra áreitni. Alls hafa 23 konur birt sögur sínar á vef­síðu og halda frá­sagnir áfram að ber­ast í sér­stökum MeToo hópi kvenn­anna á Facebook. Jón Baldvin hefur ítrekað sagt að sög­urnar eigi allar rætur að rekja til veik­inda dóttur sinnar.

Í grein með titl­inum „Sann­leik­ur­inn er sagna bestur“ beinir Jón Baldvin spjótum sínum að við­tali Sigmars Guð­munds­sonar við Aldísi Schram, dóttur Jóns Baldvins, á RÚV 18. jan­úar. Fjórar beiðnir um nauð­ung­ar­vistun bár­ust frá Jóni Baldvini á meðan hann var erlendis að störfum sem sendi­herra. Hefur Aldís birt vott­orð sál­fræð­ings sem segir hana ekki sýna merki geð­hvarfa­sýki.

„Eru íslenskir rík­is­borg­arar virki­lega núorðið varn­ar­lausir frammi fyrir níðrógi og mann­orðs­morðum af þessu tagi?“ skrifar Jón Baldvin „Það hlýtur að telj­ast grafal­var­legt mál, að alvöru­fjöl­mið­ill – eins og RÚV er ætlað að vera – skuli bera á borð fyrir hlust­endur sína fals­fréttir af þessu tagi.“

Rekur Jón Baldvin ferlið frá því að Aldís var fyrst nauð­ung­ar­vi­stuð árið 1992 og segir það alltaf hafa verið með hennar sam­þykki fram til árs­ins 2012. „Sjálfur á ég í fórum mínum eft­ir­far­andi vott­orð frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett 5. jan­úar 2012: „Lög­reglan hefur nokkrum sinnum á und­an­förnum árum haft afskipti af Aldísi Bald­vins­dóttur [...] eða sinnt verk­efnum vegna hennar. Að gefnu til­efni skal tekið fram, að for­eldrar hennar, Bryndís Schram og Jón Baldvin Hanni­bals­son, hafa aldrei kallað á lög­reglu eða beðið lög­reglu um aðstoð af neinu tagi hennar vegna. Þetta stað­fest­ist hér með.“ (Und­ir­skrift: Hörður Jóhann­es­son aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri.)“

Loks segir Jón Baldvin að Sigmar hafi ekki spurt réttra spurn­ingar eða fengið svör. „Ef það er satt, sem Sigmar hefur eftir Aldísi í við­tal­inu, að hún sé rang­lega greind með geð­hvarfa­sýki, ber þá ekki Trygg­inga­stofnun rík­is­ins, sem að fengnu áliti sér­fræð­inga Land­spít­al­ans hefur skil­greint Aldísi sem „geð­fatl­aða“, að end­ur­skoða þá máls­með­ferð og þar með greiðslu örorku­bóta, sem byggðar eru á þessu mati?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár