Bryndís Schram: „Hvers vegna þessi iðandi ormagarður af hatri?“

Bryndís Schram, eiginkona Jóns Baldvins Hannibals­sonar, spyr hvort þjóð­félagið sé sjúkt í grein í Frétta­blaðinu í dag. Segist hún hafa horft á hatur á manni sínum vegna EES samningsins og nú vegna umfjöllunar um meinta kynferðis­lega áreitni hans.

Bryndís Schram, eiginkona Jóns Baldvins Hannibals­sonar, spyr hvort þjóð­félagið sé sjúkt í grein í Frétt­blaðinu í dag. Hún mæti nú hatri dóttur sinnar, systur og systra­dætra. „Hvers vegna þessi iðandi orma­garður af hatri?“ spyr hún.

Tilefnið eru ásakanir um kynferðis­lega áreitni á hendur Jóni Baldvini. Sjö konur hafa stigið fram undir nafni og alls 23 birta nafn­lausar frásagnir á vefsíðu.

Bryndís segist hafa mætt miklu hatri vegna stjórnmála­ferils Jóns Baldvins. Þau hjónin hafi mætt miklu mótlæti vegna EES samningsins og annarra mála sem komu upp í tíð Jóns Baldvins í stjórn­málum. „Stundum hef ég líka deilt heiðrinum,“ skrifar hún. „Ég hef staðið við hlið mannsins, uppi á sviði, þar sem hann hefur verið sæmdur heiðurs­nafnbót og ausinn lofi. Lófatak þúsunda hefur glumið í eyrum mér. Þar hefur hann verið hylltur. Hann var maðurinn sem þorði að bera sann­leikanum vitni, þegar aðrir þögðu. En þetta var í útlöndum. Það er enginn spámaður í sínu föður­landi.“

Hún hafi trúað því að áhyggju­laust ævikvöld væri framundan þar til konur stigu fram í Stundinni og lýstu áreitni Jóns Baldvins. „Og enn einu sinni horfist ég í augu við ásýnd hatursins. Í þetta sinn er þetta ekki bara pólitík. Ekki bara svið­setning pólitískra mótherja, sem í hita leiksins vilja koma höggi á hættu­legan andstæðing. Að þessu sinni er andlit hatursins afskræmt af heift og hefni­girni út yfir gröf og dauða. Það er helsjúkt og hamslaust. Það birtist mér í andliti dóttur minnar, systur minnar og systur­dætra minna. Dóttir mín skrifar mér níðbréf og segir: „Helvíti – það eruð þið“. „Systur­dóttir mín, þátta­stjórnandi á RÚV, segir mig „siðblinda í meðvirkni“ og að ég sé „hætt að vera sjálfstæð persóna“.“

Þá ver Bryndís sig vegna einnar af sögunum á vefsíðunni, þar sem kona lýsir því að fjórtán ára hafi hún verið áreitt af Jóni Baldvini heima hjá sér, en faðir hennar hafi verið sendi­herra í London. „En hann vill að ég setjist í fangið á sér,“ skrifar konan ónafn­greinda. „Hann er blautur af svita og lyktar hræðilega. Lyktin.... hún var svo stæk. Og hann grípur um brjóstin á mér og sleikir á mér eyrun og hálsinn. Ég lít upp eftir hjálp og sé Bryndísi. En hún er að brosa. Hún brosir til mín. Og ég frýs. Jóni finnst þetta svo fyndið eitthvað og strýkur á mér rassinn þegar ég losa mig og stend upp. Bryndís eltir mig. Hún útskýrir fyrir mér að hann sé búinn að drekka aðeins of mikið. Honum þyki svo vænt um mig. Og svo bendir hún mér á að það sé búið að vera svo rosalega mikið að gera hjá þeim Jóni og pabba. Ég þurfi ekki að rugga bátnum; pabbi minn megi ekki við því.“

Bryndís segir söguna vera hugarburð og heila­spuna. „Trúlegt – eða hitt þó heldur!“ skrifar hún. „Upphaf­lega var þessi kona bara ein af ótal mörgum, sem veittu hatri sínu útrás – undir nafnleynd. Einhverjum hjá mbl.is tókst að draga hana fram í sviðs­ljósið. Þess vegna er hægt að svara henni. En hvað með allar hinar, sem fela sig á bak við nafnleynd? Svo lengi sem þær þora ekki að standa við orð sín, hljóta þau að teljast „dauð og ómerk“.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár