Elísabet Ýr sýknuð

Kröfum fyrir hér­aðs­dómi um ómerk­ingu orða Elísa­betar Ýrar Atla­dóttur öllum hafnað.

Elísabet Ýr sýknuð
Sýknuð af meið­yrða­kröfu Öllum kröfum Bjarna Hilmars Jóns­sonar á hendur Elísa­betu Ýr var hafnað. Mynd: Davíð Þór

Elísabet Ýr Atla­dóttir var 8. jan­úar síð­ast­lið­inn sýknuð af öllum kröfum Bjarna Hilmars Jóns­sonar, en hann hafði stefnt Elísa­betu vegna meið­yrða. Krafðist Bjarni Hilmar þess að ell­efu til­greind ummæli Elísa­betar yrðu dæmd dauð og ómerk. Á það féllst dóm­ur­inn ekki.

Bjarni Hilmar stefndi Elísa­betu fyrir æru­meið­ingar í mars á síð­asta ári. Var ástæða stefn­unnar bloggskrif Elísa­betar á síð­una kven­frelsi.wordpress.com í febr­úar sama ár. Þar skrif­aði Elísabet pistil um við­tal sem birt­ist við Bjarna á frétta­vefnum Vísi undir fyr­ir­sögn­inni „Hand­tek­inn grun­aður um að hafa myrt eig­in­konu sína sem fyr­ir­fór sér“. Í við­tal­inu er rætt við Bjarna um and­lát eig­in­konu hans, Susan Mwihaki Maina, og um hand­töku hans vegna gruns um að hann hefði ráðið Susan bana.

Fyr­ir­sögnin á blogg­pistli Elísa­betar var hinn sama og í frétt Vísis, utan að hún sleppti síð­ustu þremur orð­unum. Fyr­ir­sögnin á pistli Elísa­betar var „Hand­tek­inn grun­aður um að hafa myrt eig­in­konu sína“ og er umrædd fyr­ir­sögn ein af níu ummælum úr pistl­inum sem Bjarni Hilmar krafð­ist þess að yrði dæmd dauð og ómerk. Ítarlega var rætt við Elísa­betu í við­tali í Stund­inni 7. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

Í dóms­orði kemur fram að fall­ast megi á það með Bjarna Hilmari að skrif Elísa­betar feli í sé afar nei­kvæða umfjöllun og einnig megi fall­ast á það að pistill­inn sé ósmekk­legur. Hins vegar verði að játa Elísa­betu rýmra frelsi en ella til að tjá sig um einka­líf Bjarna Hilmars þar eð hann hefði sjálfur gert það að opin­beru umfjöll­un­ar­efni með umræddu blaða­við­tali. Hvað varðar til­greind ummæli Elísa­betar og kröfu Bjarna Hilmars þess efnis að þau yrðu dæmd ómerk var þeim kröfum hafnað í öllum til­vikum.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár