Segir Sigmund Davíð skulda sér fyrir rangeygða dagatalið

Hönnuður daga­tala sem sýna stjórn­mála­menn sem rang­eygða segir Sigmund Davíð Gunn­laugs­son skulda sér 1.500 krónur fyrir ein­tak.

Segir Sigmund Davíð skulda sér fyrir rangeygða dagatalið

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, hefur ekki greitt fyrir daga­tal sem sýnir hann rang­eygðan.

Þetta segir Erlingur Sig­valda­son, nem­andi í Versl­un­ar­skóla Íslands, sem hann­aði „Hið rang­eygða alm­anak“. Á daga­tal­inu eru myndir af stjórn­mála­mönnum sem gerðir hafa verið rang­eygðir með hjálp mynd­vinnslu­for­rits. Keyptu margir þeirra ein­tök á 1.500 krónur stykkið, meðal ann­ars Sig­mundur Davíð, og voru þau afhent í des­em­ber.

Aðspurður segir Erlingur alla þing­menn sem þáðu daga­tal hafa greitt sér fyrir, fyrir utan Sigmund Davíð. „Allir greiddu með reiðufé nema Bjarni Ben og Stein­grímur J,“ segir Erlingur. „En Bjarni Auraði á mig og Stein­grímur milli­færði. Sig­mundur sagð­ist vilja kaupa daga­tal, aðstoð­ar­mað­ur­inn fékk reikn­ings­númer og er ekk­ert að frétta síðan 11. des­em­ber.“

Hið rang­eygða alm­anakSig­mundur Davíð og Vigdís Hauks­dóttir voru meðal þeirra stjórn­mála­manna sem árit­uðu stykt­ar­ein­tak sem boðið var upp.

Í lok des­em­ber bauð Erlingur upp ein­tök af daga­tal­inu, þar á meðal eitt sem allir stjórn­mála­menn­irnir, fyrir utan Guðna Th. Jóhann­es­son for­seta, höfðu áritað. Upp­boð­inu á daga­töl­unum lauk 2. jan­úar og rennur allur ágóði óskiptur til Barna­spít­ala Hrings­ins.

Uppfært kl. 12:30: Erlingur segir að í kjöl­far birt­ingu frétt­ar­innar hafi hann fengið milli­færslu frá aðstoð­ar­manni Sig­mundar Davíðs upp á 1.500 kr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár