Margrét Maack: Klaustursþingmenn skilja ekki kabarett

Margrét Erla Maack segir ljóst á kæru þing­manna Mið­flokks­ins í Klaust­urs­mál­inu að þeir skilji ekki hvernig kab­ar­ett sýn­ingar virka. Þing­menn­irnir telja fjar­vist Báru Hall­dórs­dóttur upp­ljóstr­ara af kab­ar­ettæf­ingu sýna ásetn­ing hennar um njósnir.

Margrét Maack: Klaustursþingmenn skilja ekki kabarett

Sviðs­lista­fólk kemur Báru Hall­dórs­dóttur, upp­ljóstr­ara í Klaust­urs­mál­inu, til varnar á net­inu í dag eftir að ljóst varð að þing­menn­irnir sem hún náði á upp­töku hyggj­ast halda áfram mála­rekstri gegn henni. Segir Margrét Erla Maack skemmti­kraftur að þing­menn­irnir hafi ekki skiln­ing á kab­ar­ett.

Þingmenn Mið­flokks­ins hafa kært úrskurð Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, þar sem hafnað var beiðni þeirra um að fram færu vitna­leiðslur og öflun sýni­legra sönn­un­ar­gagna um atburð­ina á Klaustri, til Lands­réttar.

Í kærunni er bent á að Bára hafi setið á Klaustri í fjóra tíma og sleppt æfingu sem hún hafi ætlað að fara á. „Hafi hún þó sagst hafa verið á leið­inni á æfingu á leik­sýn­ingu sem ætl­unin var að frum­sýna tveimur dögum síðar, án þess að þetta hafi neitt tálmað þaul­setu hennar yfir upp­tök­unum,“ segir í kærunni. Er þetta notað til þess að rök­styðja fyr­ir­fram­gef­inn ásetn­ing Báru um að „njósna“.

Í við­tali við Stundina kom fram að hún hafi ætlað á æfingu fyrir menn­ingar- og skemmti­við­burð­inn Rauða skálda­húsið í Iðnó kvöldið 20. nóv­em­ber þegar atburð­irnir áttu sér stað. Bára hefur komið fram í hlut­verki spá­konu og dregið Tarot-spil

Margrét Erla Maack, sem sjálf hefur sýnt á þessum kvöldum og stofn­aði einnig Reykja­vík Kabarett, segir í færslu á Facebook að þing­menn­irnir hafi ekki skiln­ing á hvernig kab­ar­ett virkar. „Þetta eru skemmti­at­riði,“ skrifar Margrét. „Hver og einn kemur með sitt, og hvert og eitt atriði teng­ist ekki öðrum. Æfingar eru oft­ast tækni­rennsli eða ein­fald­lega talað í gegnum sýn­ing­una, „kveikið á lag­inu minu áður en ég geng inn“ og svo­leiðis.“

Segja rök þingmannanna ekki halda vatni

Rauða skálda­húsið birti einnig færslu á Facebook í dag þar sem rök þing­manna Mið­flokks­ins og lög­manns þeirra, Reimars Pét­urs­sonar, eru hrakin. Segir í henni að umrætt kvöld hafi verið æfing fyrir sjö­undu sýn­ingu þeirra und­an­farið eitt og hálft ár. Bára hafi verið með hópnum frá byrjun og hafi því vitað nákvæm­lega hvernig sýn­ingin færi fram.  Æfingin hafi helst verið hugsuð fyrir nýliða og því eng­inn skaði skeður þó Bára hefði sleppt henni til þess að taka upp sam­talið á Klaustri.

„Þó við höfum saknað Báru á æfing­unni þá var ekki mik­ill skaði skeður þó svo að hún hafi ekki komið,“ segir í færsl­unni. „Ekki er um eig­in­lega 'leik­sýn­ingu' að ræða, þó svo að skemmti­kraftar kvölds­ins séu í karakter, en flestir æfa sinn karakter eða atriði í ein­rúmi og mætti kalla sýn­ing­una blöndu af kab­ar­ett og ljóða­upp­lestri með leik­húsí­vafi. Þannig vildi til á end­anum að Bára Hall­dórs­dóttir var veik það kvöld sem sýn­ingin var og var önnur spá­kona fengin í hennar stað á síð­ustu stundu. Svo þessi rök halda ekki vatni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár